Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 23.05.2020, Qupperneq 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 2020 Anna Margrét Björnsson, blaða- maður og kynningarstjóri, mælir með list og afþreyingu sem njóta má innan veggja heimilisins í kóf- inu. „Kvikmyndir: Þar sem maður eyddi fleiri stundum heima með börnunum en venjulega þá var kærkomið þegar Studio Ghibli- myndirnar duttu inn á Netflix. Ég hef lengi verið mikill aðdáandi myndanna og áhuginn hefur smitast til barnanna. Ég horfði til dæmis á Kiki’s Delivery Service og Po- nyo aftur með átta ára gamalli dóttur minni. Kvikmyndir Studio Ghiblis sam- eina raunveruleika og fantasíu á mjög lifandi og skemmtilegan hátt. Þær eru spennandi, fyndnar, alvörugefnar, hræðilegar og fal- legar, og innihalda sumsé alla kosti góðrar fantasíu. Það sem myndir Studio Ghibli eiga sam- eiginlegt er að þær eru svo fal- lega teiknaðar að þeim má líkja við listaverk, í þeim eru mjög sterkar kvenhetjur eða persónur og það eru margar tilvísanir til japanskra þjóðsagna. Náttúran og töfrar hennar spila einnig stórt hlutverk. Ég fann svo Ghibli-teiknimynd- ina Grave of the Fireflies á You- Tube og við horfðum á hana heima líka. Hún fjallar um systk- ini í Japan í seinni heimsstyrjöld- inni og hún er ótrúlega sterk og falleg mynd og gífurlega sorgleg og sat heillengi í mér. Svo datt ég líka í hlustun á útvarpsleikgerð- inni að Elsku Míó minn eftir Ast- rid Lindgren á Rúv. Það var mjög gaman að rifja hana upp með dóttur minni. Bækur: Á meðan versta Covid- ástandið gekk yfir greip ég aftur í höfund sem er í uppáhaldi, Jos- eph Campbell. Ég hafði aðeins lesið hans frægustu bók, The Hero with a Thousand Faces, sem ber saman hetjusögur í goðsögn- um, skáldverkum, mannkynssög- unni og á okkar tímum, sumsé allt frá Ódysseifi upp í Star Wars. Ég sumsé gluggaði í fleiri bækur eft- ir hann og það er svona sameigin- legur þráður í skrifum hans að finna gleði í sársaukanum. Camp- bell er undir miklum áhrifum frá Jung og talar til dæmis um að þegar hlutirnir breytast hratt í kringum okkur þá getum við fyllst hræðslu og að eina leiðin út úr þessari hræðslu er að sam- þykkja hana, gera hið besta úr henni og breyta hvernig þú hugs- ar um hana. Mér fannst þetta allt mjög viðeigandi á erfiðum tímum. Tónlist: Ég hlustaði mikið á svona breskt „early 80’s minimal wave“ undanfarnar vikur, til dæmis á sveitina Solid Space en ég held að þeir hafi bara gefið út eina plötu. Hún er mjög góð. Svo uppgötvaði kærastinn minn hljóm- sveit sem heitir the Soundcarriers og hún er alveg frábær, búin að hlusta mikið á plötuna Harmon- ium sem kom út 2018. Þegar sólin fór að skína og meiri bjartsýni yf- ir hlutunum fór ég að hlusta aftur mikið á Bikini Kill og Le Tigre, það er svona „ultimate“ hressleiki og rokk og kvenlæg öskur.“ Mælt með í kófinu Heillandi Kvikmyndir Studio Ghiblis sameina raunveruleika og fantasíu á mjög lifandi og skemmtilegan hátt, segir Anna Margrét. Hér má sjá stillu úr einni slíkri teiknimynd, Grave of the Fireflies, sem finna má á YouTube. Ghibli, Campbell og kvenlæg öskur Anna Margrét Björnsson Hljóðberar Hljómsveitin The Soundcarriers er Önnu að skapi. Í uppáhaldi The Hero with a Thousand Faces eftir Joseph Camp- bell en sá höfundur er í miklu uppá- haldi hjá Önnu Margréti. Táradrottningin Jojo Moyessnýr aftur með þriðju bók-ina um Louisu Clark,Ennþá ég, sem er nú kom- in til New York og er fjarri kærast- anum, bráðaliðanum Sam, sem býr í London. Louisa landar starfi sem aðstoðarmaður ungrar konu, Agnes- ar Gopnik, sem er gift moldríkum eldri manni. Louisa er hokin af reynslu eftir að hafa gegnt starfi aðstoðarkonu Wills Traynors og hann er aldrei langt undan þótt hann hafi yfirgef- ið jarðvistina. Agnes er afar ólík Will og þarf Louisa að takast á við nýjar óvæntar áskoranir, sem felast meðal annars í því að berjast gegn fordómum í undarlegum heimi hinna ríku. Louisa kemst fljótt að því að hennar helsta verkefni felst í raun í að gera ekki neitt, eða eins og hún orðar það: „Ríka fólkið á í rauninni engin leynd- armál. Það hefur bara fólk á launum við að þegja yfir þeim.“ Louisa þegir yfir viðkvæmu leyndarmáli Agnesar sem setur sterkan svip á framvindu bókarinnar. Ákvarðanir sem gjörbreyta lífinu Bandaríkjamaðurinn Josh hefur einnig heilmikil áhrif á líf Louisu í borginni sem aldrei sefur og flækir ástalífið eins og við var að búast og setur fjarsambandið við Sam í upp- nám. Louisa þarf að taka stórar ákvarðanir og sama hver niður- staðan verður er ljóst að líf hennar mun gjörbreytast, sem er kannski akkúrat það sem hún þarf á að halda. Lesendur sem hafa kynnst skrif- um Moyes verða ekki fyrir von- brigðum með Ennþá ég. Louisa er sannarlega ennþá sama litríka, frjálsa, klaufska og hugljúfa breska Louisa Clark sem elskar að klæða sig upp í fallegar flíkur og því opnast henni heillandi heimur þegar hún kynnist Margot De Witt, gamalli konu sem reynist ekki vera alslæm líkt og fyrstu kynni gefa til kynna. Hugljúft lestrarléttmeti Ennþá ég er sjálfstætt framhald bókanna Ég fremur en þú og Eftir að þú fórst. Fyrsta bókin sló í gegn og kvikmyndin sem var gerð eftir bókinni sló heldur betur í gegn. Ennþá ég er kannski ekki efni í Hollywood-mynd en stendur þó fyrir sínu sem frásögn sem heldur les- anda við efnið en undirrituð þurfti að pína sig til að leggja bókina frá sér í hvert skipti. New York-heimurinn sem Moyes tekst að skapa er heillandi en nokkuð raunsær. Bókin er hugljúf en ljúfsár á köflum og kannski einmitt það lestrarléttmeti sem við þurfum á tímum eins og þessum. Það vill svo til að í hvert skipti sem undirrituð hefur lesið bækur eftir Moyes ber hún barn undir belti og því er auðvelt að kenna horm- ónum um tárin sem spretta fram. En það þarf þó ekki að vera. Þar að auki er okkur öllum hollt að gráta stöku sinnum og gráturinn yfir raunum Louisu Clark er svo sannarlega af hollari gerðinni. Ljúfsár Bókin er hugljúf en ljúfsár á köflum og kannski einmitt það lestrar- léttmeti sem við þurfum á tímum eins og þessum, skrifar gagnrýnandi. Grátur af hollari gerðinni Ástarsaga Ennþá ég bbbmn Eftir Jojo Moyes. Herdís M. Hübner íslenskaði. Bjartur gefur út. Kilja, 491 bls. ERLA MARÍA MARKÚSDÓTTIR BÆKUR Veiðivefur í samstarfi við

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.