Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.05.2020, Blaðsíða 48
Tónlistarparið Karl Olgeirsson og Sigríður Eyrún Frið- riksdóttir mætir í Hljóðberg í Hannesarholti á morgun kl. 14 og stjórnar fjöldasöng. Þau hafa margoft komið fram í Hannesarholti á ýmsum tónlistaruppákomum. Að venju verða textar birtir á tjaldi þannig að allir ættu að geta tekið undir. Aðgangur er ókeypis fyrir börn í fylgd með fullorðnum en aðgangseyrir fyrir full- orðna kr. 1.000. Fjöldasöngur með Siggu og Kalla LAUGARDAGUR 23. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er rólegur yfir fréttum af því að eitt besta lið Evrópu, grísku meistararnir Panathinaikos, vilji fá hann í sumar. Hann kveðst vita af áhuga Grikkjanna en vill gefa félagi sínu, Alba Berlín, tækifæri til að gera sér tilboð áður en lengra sé haldið. Martin er að búa sig undir úrslita- keppnina um þýska meistaratitilinn sem fer fram í München frá 6. til 28. júní og rætt er ítarlega við hann í blaðinu í dag. »41 Martin veit af áhuga Grikkjanna ÍÞRÓTTIR MENNING Eiríksson, fyrrverandi framhalds- skólakennari, verið með frá byrjun. „Flestir okkar hafa verið fjarverandi í lengri eða skemmri tíma vegna framhaldsnáms erlendis en svo kom- um við aftur þegar við komum heim og frá byrjun hafa um sjö til tíu manns að meðaltali komið saman í kaffið.“ Páll bætir við að í upphafi hafi eldri menn verið í hópnum. „Þegar við byrjuðum sat Þórhallur Vilmundarson, prófessor og for- stöðumaður Örnefnastofnunar, til dæmis með okkur á tímabili.“ Syngja ekki saman Dægurmál, sem efst eru á baugi hverju sinni, eru tekin fyrir á léttu nótunum. Páll bendir á að þar sem skoðanir manna séu misjafnar, ekki síst í pólitíkinni, sé ekki farið út á hál- ar brautir í því efni heldur frekar gantast með hlutina. „Við erum ekki með og á móti og förum ekki djúpt í málin með það í huga að maður er manns gaman og þessar samveru- stundir byggja á tryggð. Við settum okkur þá óskrifuðu reglu að rífast ekki um pólitík heldur tala um hana í léttum dúr.“ Sagt hefur verið um Skagfirðinga að þeir kunni að skemmta sér, en á þessum kaffifundum hefur aldrei verið bragðað vín og enginn sungið. „Einhverra hluta vegna hafa ekki verið stórsöngvarar í þessum hópi og við höfum aldrei neytt áfengis á fund- unum, þótt við séum Skagfirðingar.“ Eins og ungra manna er siður voru strákarnir ekki sérlega alvarlega þenkjandi þegar þeir hittust yfir kaffibolla á laugardögum fyrir liðlega hálfri öld. „Áhugamálin voru sjálf- sagt eins og gengur hjá ungum mönnum,“ rifjar Páll upp. „Sumir segja að við höfum bara talað um stelpur en það er ekki rétt. Við sett- um okkur þá reglu að vera aldrei með gróft tal eða klám en tvíræðar vísur væru leyfilegar.“ Í því sambandi bendir hann á að góðir hagyrðingar og vísnabankar hafi verið og séu í hópnum og hafi oft látið í ljós sitt skína. Karlarnir hafa lítið sem ekkert hist nema fyrir tilviljun fyrir utan kaffi- fundina. „Góður frændi minn fyrir norðan spurði hvernig í ósköpunum stæði á því að engar konur væru í hópnum og mér varð svarafátt en sagði að svona hefði þetta alltaf verið. Hins vegar væri enginn útilokaður og allir velkomnir.“ Vegna breytinga á rekstri og svo kórónuveirufaraldursins var Nor- ræna húsið lokað lengi í vetur. „Við þurftum því að fara annað í kaffi á laugardögum. Nú er búið að opna aft- ur og við komnir á okkar stað, en vegna tveggja metra reglunnar heyr- um við ekki allt sem sagt er og þess vegna er mikið um ha og hvað.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skömmu eftir að Norræna húsið var opnað í Vatnsmýrinni í Reykjavík 1968 byrjuðu ungir háskólanemar og samstúdent þeirra, sem var nætur- vörður í Árnagarði, að venja þangað komur sínar í kaffi á laugardögum. Þeir hafa haldið uppteknum sið síð- an, eða í 52 ár. „Vissulega hefur kvarnast úr hópnum og nýir bæst við en við erum nokkrir sem höfum stað- ið vaktina allan tímann,“ segir Páll Sigurðsson, prófessor em- eritus, en hann kenndi við lagadeild Háskóla Íslands í 41 ár. „Nú er þetta hópur karla sem einu sinni voru strákar,“ segir Páll. Í fyrstu samanstóð hópurinn einkum af Skagfirðingum og vinum þeirra, sem vildu halda sambandinu áfram, en flestir höfðu verið saman í Menntaskólanum á Akureyri. Páll segir að Ögmundur Helgason, sem lést fyrir nokkrum árum, hafi haldið utan um hópinn og hann síðan tekið við að boða menn, en auk Páls hafa til dæmis Gunnar Stefánsson, fyrrver- andi útvarpsmaður, og Kristján Tvíræðni er leyfileg  Hafa hist vikulega í kaffi í Norræna húsinu í um 52 ár Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Í Norræna húsinu Kaffikarlar frá vinstri: Ragnar Björnsson, Gunnar Stefánsson, Páll Sigurðsson og Óskar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.