Morgunblaðið - 30.05.2020, Side 6

Morgunblaðið - 30.05.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 518.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! o e s i e m .is Tvö ný útboð verkefna á sviði jarðhita og lítilla vatnsaflsvirkjana á vegumUppbyggingarsjóðs EES í Póllandi - tækifæri á samstarfi pólskra og íslenskra fyrirtækja Jarðhiti Markmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis – með aukinni notkun á jarðhita. Framkvæmd verkefnanna munu leiða til minni losunar á CO2 og auka hagkvæmni. Litlar vatnsaflsvirkjanir Markmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis – með endurnýjun og aukinni hagkvæmni lítilla vatnsaflsvirkjana (allt að 2MW). Verkefninu er einnig ætlað að auka fræðslustarfsemi sem miðar að því að þjálfa fagfólk á sviði vatnsaflsvirkjana. Áður hafa verið auglýst 8 útboð verkefna á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála, semmunu leiða til munminni losunar á CO2. Heildarumfang allra verkefnanna getur verið allt að 65milljarðar sem skapamikil tækifæri á samstarfi pólskra og Íslenskra fyrirtækja. ri in st r Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru engin lög eða reglugerðir um sölu á þessum púðum. Þó er hærra nikótínmagn í þessum vörum heldur en í vörum sem eru leyfðar. Það er því auðvelt að fá allskonar eitrunaráhrif enda fylgja engar að- varanir,“ segir Guðlaug B. Guðjóns- dóttir, framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags höfuðborgarsvæðisins. Aðalfundur félagsins sem haldinn var á dögunum skoraði á heilbrigð- isyfirvöld að móta framtíðarstefnu í tóbaksvörnum. Ekkert hafi gerst á þeim sjö árum sem liðin eru frá því að starfshópur um verkefnið var skipaður. „Seinagangur hins opinbera í setningu laga og reglugerða sem eiga að vernda íslensk börn og ung- menni veldur miklum vonbrigðum. Rafsígarettusalar gátu óáreittir í mörg ár markaðssett og selt sinn varning. Nú eru það nikótínpúðarnir sem eru markaðssettir og seldir án allra takmarkana eða eftirlits. Ís- land ætti að sýna gott fordæmi og banna sölu og markaðssetningu á rafsígarettum eins og mörg lönd hafa gert og einnig á nikótínpúðum,“ segir í ályktuninni. Guðlaug segir það áhyggjuefni að nikótínpúðar séu seldir án eftirlits. „Það má selja þetta óheft. Í versl- unum og á samfélagsmiðlum. Það er enginn feluleikur. Stjórnendur í skólum hafa lýst áhyggjum og komið með athugasemdir enda eru hvítir litlir púðar úti um allt á skólalóðum.“ Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Embætti land- læknis, segir að til standi að innleiða evrópsku tóbaksvarnalögin hér á landi en þar sé að hluta til tekið á sölu á nikótínpúðum. Innleiðing lag- anna hafi dregist vegna málaferla í Noregi og Liechtenstein. „Það breytir því ekki að ég get tekið undir með Krabbameinsfélagi höfuðborgarsvæðisins að það er nauðsynlegt að setja lög og reglu- gerðir sem ná utan um aldurs- takmark, eftirlit með sölunni og upp- lýsingar um innihald nikótínpúða.“ Morgunblaðið/Eggert Sala Svens við Dalveg í Kópavogi var opnuð í síðasta mánuði. Svens er sérverslun með snus og nikótínpúða. Vilja að lög og reglur nái utan um sölu nikótínpúða  Telja það áhyggjuefni að ekkert eftirlit sé með sölunni Á aðalfundi Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins var í álykt- un lýst yfir mikilli ánægju með framkvæmd Neytendastofu á eftirliti með sölustöðum rafsíga- retta og fylgihluta. Samkvæmt upplýsingum frá Skarphéðni Grétarssyni, sérfræð- ingi hjá Neytendastofu, hefur Neytendastofa í eftirlitsferðum sínum lokið málum vegna 394 vörutegunda. Þeim málum hefur ýmist lokið með varanlegu sölu- banni eða að varan hefur verið tek- in af markaði. Um 40 vörutegundir höfðuðu til barna og aðrar voru ekki barnheldar. Tæplega 290 áfyllingar voru með rofnum inn- siglum og nikótíni hafði verið bætt í. Einnig voru áfyllingar sem inni- héldu of mikið nikótín. 400 tegundir teknar úr sölu EFTIRLIT NEYTENDASTOFU MEÐ RAFSÍGARETTUM Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veip Neytendastofa hefur gert at- hugasemdir við söluhætti veipbúða. Þór Steinarsson Helgi Bjarnason Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins tóku stöðuna í samningaviðræðum á fundi hjá ríkissáttasemjara eftir hádegið í gær og lauk fundi þeirra um sjöleytið í gærkvöldi. Aðalsteinn Leifsson ríkissátta- semjari segir fundinn hafa gengið vel og dagurinn hafi heilt yfir verið góð- ur, en fundinum átti upphaflega að ljúka kl. 15. „Þetta var mjög góður dagur og mjög virkt samtal og við förum núna inn í þessa hvítasunnu- helgi og hittumst aftur á þriðjudag- inn,“ sagði Aðalsteinn í samtali við mbl.is. Næsti fundur í kjaradeilunni hefst klukkan 14 á þriðjudaginn. Báðar samninganefndir hafa ákveðið að tjá sig ekki um gang viðræðnanna við fjölmiðla, en Gunnar Helgason, for- maður samninganefndar Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga, sagði fyrir fundinn að unnið hefði verið að ýmsum verkefnum í hópum og ætl- unin hefði verið að taka stöðuna á fundinum í gær. Afgerandi skilaboð „Það eru býsna afgerandi skilaboð sem hjúkrunarfræðingar beina til okkar. Annars vegar krafa um að grunnlaun hækki meira og hins vegar vilji til að fara í aðgerðir til að knýja á um að orðið verði við kröfunni,“ segir Gunnar um niðurstöður viðhorfs- könnunar sem félagið lét gera meðal félagsmanna fyrr í mánuðinum. Félagsmenn voru meðal annars spurðir um viðhorf sitt, ef félagið teldi að boða þurfi til aðgerða til að knýja fram kjarabætur. Tæplega helmingur svarenda, 49,6%, kvaðst tilbúinn í almennt verkfall, tæpur þriðjungur, 32,5%, sagðist reiðubú- inn í yfirvinnubann og rétt rúmur þriðjungur, 33,5, sagðist ekki vilja fara í verkfall eða yfirvinnubann. Fé- lagsmenn gátu merkt við tvo kosti um aðgerðir en ljóst er að mikill meirihluti þeirra sem svöruðu er tilbúinn að fara í vinnustöðvun af ein- hverju tagi, ef það er talið þurfa. „Niðurstöður þessarar könnunar segja til um hver staðan er, við hlust- um á það og höfum til hliðsjónar í okkar viðræðum,“ segir Gunnar. Meirihluti til í aðgerðir  Afgerandi niðurstaða í viðhorfskönnun  Samninganefnd- ir hjúkrunarfræðinga og ríkisins fóru yfir stöðuna í viðræðum Morgunblaðið/Eggert Að störfum Mikið álag hefur verið á hjúkrunarfræðingum. „Það er afar mikilvægt að Norðan- fiskur verði áfram á Akranesi og að kominn sé öflugur hópur fjárfesta sem ætlar að byggja upp fyrirtækið og hefur trú á því til framtíðar, ekki síst á þessum óvissutímum sem nú eru,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, en tilkynnt var í gær að hópur fjárfesta á Akra- nesi hefði undirritað kaupsamning við Brim hf. um kaup á öllu hlutafé Norðanfisks ehf. Sævar Freyr segir það mjög ánægjulegt að söluferli Brim hafi lokið á þennan farsæla hátt fyrir samfélagið á Akranesi, en um þrjá- tíu manns starfa hjá fyrirtækinu. „Það er því gríðarlega mikilvægt að þau störf verða hér áfram,“ segir Sævar Freyr, en hann sinnti jafn- framt ráðgjöf fyrir fjárfestahópinn meðan á söluferlinu stóð. Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úr- valssjávarfangi til veitinga- og stór- eldhúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í versl- unum um land allt, en fyrirtækið hefur verið starfandi í um 20 ár. Í fréttatilkynningu segir að kaup- samningurinn sé undirritaður með fyrirvara um niðurstöður áreiðan- leikakönnunar. Gangi þeir fyrir- varar eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum á næstu vikum. sgs@mbl.is Sömdu um kaup á Norðanfiski ehf.  Gríðarlega mikilvægt fyrir Akranes Ljósmynd/Aðsend Undirritun Norðanfiskur verður áfram á Akranesi eftir kaupin í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.