Morgunblaðið - 30.05.2020, Síða 20
VIÐTAL
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Tvennt fornkveðið: Öll él birtir upp
um síðir og sjaldan fellur eplið langt
frá eikinni. Ekki klisjur, heldur
sannindi, sem renna nú í eitt: KK,
Kristján Kristjánsson, og Plastic-
boy sonur hans Kristján (Steinn)
Kristjánsson, voru að gefa út lag
saman.
Boðskapur lagsins er boðskapur
dagsins: Aftur kemur vor, heitir
það. „Þetta er lag um að það birti
alltaf til,“ segir Kristján eldri, í
samtali mbl.is við hvorn tveggja.
„Það er boðskapur sem er alltaf
nauðsynlegur.“
Kristján yngri, sem er í listnámi
við Konunglegu akademíuna í Den
Haag, sá þann kost vænstan á dög-
unum að bregða sér heim til Íslands
á meðan það versta gengi yfir í
heimsfaraldrinum. Hann mætti aft-
ur í kjallarann heim, og fór eins og
aðrir að fara út í gönguferðir.
„Ég hafði saknað fjallanna og
þegar ég kom heim og fór að taka
þau inn, virkilega horfa á þau, þá
var útkoman eiginlega bara þetta
lag. Ég byrjaði að glamra á gítarinn
þegar ég kom heim og það varð til,“
segir hann.
Hvað það var nákvæmlega sem
hann sá í fjöllunum má finna vís-
bendingu um í þessari línu lagsins:
„Er ég stend úti á klakanum, finn
fyrir fjöllunum, segja mér hver ég
er.“
Fyrsta formlega lag feðga
Það var síðan svo að segja í miðju
glamri sem Kristján eldri blandaðist
í málið og fór að raula með syni sín-
um. Þeir hafa áður gert tónlist sam-
an en þó aldrei þannig að þeir hafi
gefið saman út lag, heldur hafði sá
eldri hjálpað til við að radda lögin
hjá syni sínum og annað slíkt.
Feðgana langar að gera í það
minnsta eitt lag enn saman í sumar,
segja þeir. Hæg eru heimatökin,
þeir verða skiljanlega ekki á of
miklu flakki og búa saman í Laug-
ardalnum. Önnur síður listrænni
samstarfsverkefni eru þá fyrir-
huguð: Vonir KK standa til að fá
Plasticboy til að hjálpa til við að
skipta um klæðningu á húsinu í
sumar. Þess á milli – músík.
KK hefur ekki gefið út plötu um
árabil en hefur gefið út lag við og
við og heldur áfram að stíga á svið.
Plasticboy gaf út plötu síðasta vor,
sem hét einmitt Plasticboy. Þar
kennir ýmissa grasa en til einföld-
unar má kalla það sem þar er að
finna rapp.
Tónlistarmyndbandinu að Aftur
kemur vor leikstýrði Móki, öðru
nafni Jóhann Ingi Skúlason. Mel-
korka Embla Hjartardóttir sá um
leikmyndina og stílisti var Karítas
Spanó. Þá tók Lóa Yona Zoé Fenzy
ljósmyndir.
Faðir, sonur og glænýtt lag
KK og sonur hans Plasticboy með nýtt lag Annað í vinnslu, en fyrst: Skipta um klæðningu á húsinu
Ljósmynd/Karítas Spanó
Feðgar KK og Plasticboy koma úr ólíkum áttum í tónlist, en í nýju lagi renna þær snurðulaust saman.
Ljósmynd/Lóa Yona Fenzy
Vor Tónlistarmyndbandið er á YouTube.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Halla
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Sölustjóri
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Sölufulltrúi
820 6511
Kristján
Sölufulltrúi
691 4252
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur
kynnt átak í atvinnumálum og fjár-
festingum sem viðspyrnu vegna efna-
hagslegra afleiðinga kórónu-
veirufaraldursins. Þegar teknar eru
með fjárfestingar á vegum ríkisins
sem í mörgum tilvikum er þegar unn-
ið að nema fjárfestingar nokkuð á
fjórða milljarð, að sögn Stefáns
Vagns Stefánssonar, formanns
byggðaráðs. Þá fjölgar atvinnutæki-
færum nokkuð.
„Við töldum rétt að gera lista yfir
aðgerðir sem sveitarfélagið og ríkið
gætu farið í til að veita viðspyrnu og
spýta krafti inn í atvinnulífið til að
draga úr högginu sem verður hér,
eins og annars staðar,“ segir Stefán
Vagn. Tillögurnar hafa verið unnar í
samvinnu allra fulltrúa í byggðaráði
og voru kynntar í gær á vef sveitarfé-
lagsins.
Ný störf verða til
Stærstu fjárfestingarverkefnin
eru á vegum Landsnets og Rarik í
tengslum við lagningu nýrrar Sauð-
árkrókslínu frá Varmahlíð sem tekin
verður í notkun í haust og fram-
kvæmdir á vegum Vegagerðarinnar í
höfnum og sjóvörnum á Sauðárkróki
og Hofsósi. Áætlað er að endurbætur
á sjóvörn í Sauðárkrókshöfn og við
Strandveg sem fór illa í óveðrum í
vetur kosti á þriðja hundrað milljónir
kr. Vegna þessara framkvæmda eyk-
ur sveitarfélagið fjárfestingar sínar
um 180 milljónir en áður voru 500
milljónir kr. ætlaðar til fjárfestinga
og viðhalds.
Stefán Vagn segir að atvinnu-
ástandið hafi versnað á síðustu vikum
og mánuðum en sé eigi að síður
þokkalegt. Þó þurfi að bæta í, til að
snúa vörn í sókn, og næg tækifæri
séu til þess.
Sveitarfélagið skapar 140 störf í
sumar. Auk þess hefur komið fram að
Reykjadalur mun ráða í 20 ný sum-
arstörf við ævintýrabúðir í Háholti í
Skagafirði. Loks hefur félagsmála-
ráðherra tilkynnt um átta ný varan-
leg störf hjá Húsnæðis- og mann-
virkjastofnun á Sauðárkróki.
Húsnæðisskortur hefur verið á
Sauðárkróki og víðar í Skagafirði.
Verið er að byggja eða undirbúa
byggingu á um 30 íbúðum þar og í
Fljótum og Stefán Vagn segir að
samningar séu á lokastigi um að hefj-
ast handa við uppbyggingu á 40-80
íbúða byggð við Freyjugötu á Sauð-
árkróki.
Taka upp þráðinn
Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
og sveitarstjóri Skagafjarðar skrif-
uðu fyrr í vikunni undir viljayfirlýs-
ingu um að koma upp koltrefjafram-
leiðslu á Sauðárkróki. Þetta verkefni
hefur lengi verið í umræðu og undir-
búningi en ekkert orðið úr.
Gísli Sigurðsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna í sveitarstjórn, segir að fyrir
bankahrun hafi staðið á rafmagni en
nú sé það mál að leysast með jarð-
streng. Notkun á koltrefjum hafi
aukist. Hann segir að viljayfirlýsing-
in geri sveitarfélaginu kleift að fara
aftur af stað og vísa til bakstuðnings
ríkisins. Haft verði samband við kol-
trefjaframleiðendur en tengsl við
marga þeirra hafi aldrei rofnað þótt
verkefnið hafi legið í láginni um tíma.
Átak í atvinnumálum
boðað í Skagafirði
Ljósmynd/adsend
Vilji Gísli Sigurðsson, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Stefán Vagn Stef-
ánsson og Sigfús Ingi Sigfússon eftir undirritun samnings um koltrefjar.
Koltrefjaframleiðsla sett á dagskrá á nýjan leik