Morgunblaðið - 30.05.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.05.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Bændasamtak- anna. Annað fé- lag, Bændahöllin ehf., er einnig í 100% eigu Bændasamtak- anna en það er eignarhaldsfélag um fyrrnefnda byggingu. Rekstrartekjur Bændahallarinn- ar eru leigutekjur af húsnæðinu en langstærstur hluti þeirra kemur frá hótelstarfseminni. Þá eru Bænda- samtökin sjálf með skrifstofur í hús- inu ásamt hárgreiðslustofu, Hinu ís- lenska bókmenntafélagi og nokkrum smærri rekstraraðilum. Árið 2015 var lögð tillaga fyrir Bún- aðarþing sem opnaði fyrir þann möguleika fyrir stjórn Bændasam- takanna að setja fyrirtækið í söluferli. Var með ákvörðuninni tilgreint að Bændasamtökin myndu eiga og reka Hótel Sögu að minnsta kosti næstu þrjú árin. Var ákvörðunin talsvert umdeild á þeim tíma er hún var tekin. Hins vegar var ferðaþjónustan í afar örum vexti á þessum tíma og margir sem álitu að Bændasamtökin gætu notið mjög góðs af auknu verðmæti hótelrekstrarins sökum þess. Þá voru margir innan hreyfingar bænda sem veltu fyrir sér með hvaða hætti hefði verið rétt að ráðstafa þeim miklu fjár- munum sem mögulega gætu fengist úr sölunni. Tillagan sem lögð var fyrir Búnað- arþing um heimild til handa stjórn- inni kom til í kjölfar þess að árið 2014 barst stjórn Bændasamtakanna fyrir- spurn um mögulega sölu fyrirtækis- ins. Í framhaldi af því var fyrirtækja- ráðgjöf MP banka falið að kanna áhuga fjárfesta á hótelinu. Lögðu fjórir hópar fram skuldbindandi til- boð í fyrirtækið og reksturinn en stjórn Bændasamtakanna hafði hafn- að þeim öllum þar sem þau þóttu ekki viðunandi. Hefðu fengið 2-3 milljarða í vas- ann ef salan hefði gengið eftir Heimildir Morgunblaðsins herma að tilboðin hafi hljóðað upp á að heild- arvirði starfseminnar væri metið á bilinu 3 til 4 milljarðar. Í lok árs 2015 voru skuldir Bændahallarinnar ehf., sem fer með 100% eign Bændasam- takanna í hótelbyggingunni, tæpar 970 milljónir. Því er ljóst að Bænda- samtökin hefðu fengið á bilinu 2 til 3 milljarða út úr sölunni, ef gengið hefði verið að tilboðunum á árinu 2015. Sérfræðingar á hótelmarkaði sem Morgunblaðið hefur rætt við segja stórar ákvarðanir bíða Bændasam- takanna. Á sama tíma og Bændahöll- in ehf. hafi ráðist í afar kostnaðarsam- ar breytingar á Grillinu, á efstu hæð hússins, Súlnasal og jarðhæð þar sem móttaka og veitingastaður eru, standi eigandi húsnæðisins frammi fyrir því að auka þurfi hagkvæmni rekstrarins. Það verði aðeins gert með stórfelld- um endurbótum á gistirými hótelsins og nýtingu þess að öðru leyti. Óhagkvæm eining Þannig bendir viðmælandi blaðs- ins, sem ekki vill koma fram undir nafni, að í greiningu á hótelbygging- um á höfuðborgarsvæðinu hafi komið í ljós að fjöldi þeirra fermetra á Hótel Sögu, sem standi að baki hverju hót- elherbergi sem unnt er að leigja út, sé miklum mun meiri en á sambæri- legum hótelum. Þannig sé gjarnan viðmiðið, á hótelum sem eru 3-4 stjörnur, að að baki hverju herbergi standi um 45 fermetrar af húsnæði, þ.e. herbergið sjálft auk hlutdeildar í öðrum rýmum, s.s. móttöku, morgun- verðarsal og herbergjagöngum. Þetta hlutfall sé hins vegar yfir 70 fermetr- ar fyrir hvert herbergi á Hótel Sögu sem geri rekstrareininguna mjög þunga. Hótel Saga á heljarþröm Morgunblaðið/Hari Forn frægð Á Hótel Sögu eru nokkur þekkt kennileiti í borgarlífinu, m.a. Súlnasalur, Grillið og Mímisbar.  Mikill taprekstur á nýliðnu ári  Félagið greiðir mörgum birgjum ekki reikn- inga  Eigið fé orðið neikvætt um hundruð milljóna  Leita nýrra hluthafa Sagan » Hótel Saga var reist á ár- unum 1956 til 1962. » Viðbygging var reist við hús- ið norðanvert og lauk fram- kvæmdum 1985. » Á hótelinu eru 235 herbergi. » Einn frægasti veislusalur landsins, Súlnasalur, er á ann- arri hæð hússins. BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Rekstur Hótels Sögu gekk afleitlega á nýliðnu ári. Heimildir Morgun- blaðsins herma að tapið hafi numið um 450 milljónum króna. Ingibjörg Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri hót- elsins, segir í samtali við blaðið að reksturinn hafi orðið fyrir afar þungu höggi við fall WOW air í lok mars- mánaðar í fyrra. „Stærsti hluti hótelgesta voru Bandaríkjamenn eða um 35%, og brottfall WOW hafði mikil áhrif á hópabókanir fyrir Hótel Sögu.“ Þá segir hún að eftirspurn eftir hótelher- bergjum hafi minnkað vegna kyrr- setningar Boeing 737-MAX-véla Ice- landair. „Herbergjatekjur drógust saman um 63 milljónir á milli ára vegna þessa. Veitingatekjur jukust hinsveg- ar um 93 milljónir vegna tilkomu nýs veitingastaðar á jarðhæð. Brúttó framlegð á gistitekjur er u.þ.b. 65% en rétt fyrir ofan núllið af veitinga- tekjum, svo þær tekjur eru dýrari. Launakostnaður hækkaði umtalsvert á árinu vegna kjarasamningsbund- inna launahækkana. Húsaleigan hækkaði svo um 48 milljónir á milli ára.“ Uppsafnað tap 670 milljónir Uppsafnað tap af rekstri hótelsins nemur um 670 milljónum króna síð- ustu þrjú rekstrarárin. Eigið fé fé- lagsins nam 5 milljónum króna í árs- lok 2018 og því ljóst að eiginfjárstaða félagsins er orðin neikvæð sem nem- ur hundruðum milljóna. Ingibjörg segir að vinnan við að vinna úr þeirri stöðu sé á viðkvæmu stigi en að leitað verði eftir nýju hlutafé frá nýjum hluthöfum. Líkt og önnur hótel í landinu hefur Hótel Saga orðið fyrir þungum búsifj- um af völdum kórónuveirunnar. Rekstrarörðugleikar fyrirtækisins voru hins vegar orðnir talsverðir áður en ósköpin tengd veirunni riðu yfir og hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að birgjum sem þjónustað hafa starfsemina hafi gengið erfiðlega að fá greidda reikninga frá því um ára- mótin. Hótel Saga ehf. er rekstrarfélag um hótelstarfsemi í byggingu sem stendur við Hagatorg og er um 20 þúsund fermetrar að stærð. Rekstrarfélagið er í 100% eigu Ingibjörg Ólafsdóttir ● Viðskiptajöfnuður við útlönd var já- kvæður um 11,4 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins, samanborið við 50,9 milljarða afgang á síðasta fjórðungi árs- ins 2019. Á fyrsta fjórðungi síðasta árs var afgangurinn 44 milljarðar. Segir í tilkynningu frá Seðlabank- anum að lakari afgangur nú en yfir sama tímabil í fyrra skýrist fyrst og fremst af umtalsvert óhagstæðari vöru- viðskiptum og nemur viðsnúningurinn í þeim efnum 21,3 milljarði króna. Út- flutningstekjur drógust saman um 26,4 milljarða en verðmæti innfluttra vara dróst einnig saman, um 5,1 milljarð. Þjónustuviðskipti voru óhagstæðari um sem nam 5,5 milljörðum og frum- þáttatekjur um 5,3 milljarða. Halli rekstrarframlaga var lítillega meiri en á sama tíma í fyrra, eða 0,5 milljarðar króna. Hrein staða við útlönd var jákvæð um 692 milljarða, eða 23,3% af vergri landsframleiðslu, og batnaði um 64 milljarða frá áramótum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.210 milljörðum í lok marsmánaðar en skuldir stóðu í 3.518 milljörðum. 11,4 milljarða viðskipta- afgangur á 1. fjórðungi 30. maí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 137.04 Sterlingspund 167.84 Kanadadalur 99.47 Dönsk króna 20.229 Norsk króna 13.861 Sænsk króna 14.274 Svissn. franki 141.28 Japanskt jen 1.2718 SDR 187.18 Evra 150.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.2207 Hrávöruverð Gull 1723.3 ($/únsa) Ál 1504.0 ($/tonn) LME Hráolía 33.92 ($/fatið) Brent ● Félagið Brekkuás ehf. keypti 300.000 hluti í Arion banka í gær á genginu 59,99. Nemur kaupverðið því tæpum 18 milljónum króna. Félagið er í eigu Ragn- heiðar Ástu Guðnadóttur, eiginkonu Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Þá keypti félagið BBL VII ehf. 149.994 hluti í bankanum á sama gengi. Það félag er í 100% eigu félagsins Reyk- fjörð ehf. sem aftur er í 100% eigu Ás- geirs Helga Reykfjörð Gylfasonar, að- stoðarbankastjóra Arion banka. Mikil viðskipti voru með bréf bankans eða upp á ríflega 1,3 milljarða króna. Hækkuðu bréfin um 1,5% í viðskiptunum og stend- ur gengi þeirra nú í 60,4. Topparnir bæta við hlut sinn í Arion banka STUTT Erlendir ferðamenn keyptu 3.000 gistinætur á hótelum í apríl síðast- liðnum. Íslendingar keyptu hins vegar 6.200 gistinætur, eða 67,3% allra seldra gistinótta í mánuðinum. Sala hótelherbergja, mæld í seldum nóttum, dróst saman um 97% frá sama mánuði 2019. Jafngilti það 3,5% herbergjanýtingu í mánuðin- um og dróst saman um 45,7 pró- sentur frá fyrra ári. Litið til allra tegunda gististaða voru seldar gistinætur 20.800 í apr- íl. Í sama mánuði í fyrra voru þær 519.000. Hlutfall Íslendinga í þess- um tölum var 68% en útlendra ferðamanna 32%. Í lok marsmánaðar tóku forsvars- menn margra hótela ákvörðun um að loka tímabundið vegna kórónu- veirufaraldursins, sem þá var í miklum vexti. Var 75 hótelum lokað samkvæmt tölum Hagstofunnar. Framboð gistirýmis minnkaði því um 44,6% frá aprílmánuði 2019, mælt í fjölda hótelherbergja. ses@mbl.is 96% færri gistinætur  75 hótelum var lokað hér á landi í apríl síðastliðnum Greiddar gistinætur ferðamanna 2018-2020 Þúsundir gistinátta frá maí 2018 til apríl 2020 1.800 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Hótel og gistiheimili Vefsíður á borð við Airbnb Aðrar tegundir 2018 2019 2020 Heimild: Hagstofa Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.