Morgunblaðið - 30.05.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 30.05.2020, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is Í húsinu hefur verið rekið þjónustumiðstöð, veitingar- og sýningarstarfsemi. Fasteignin er ekki í rekstri í dag. Stærð fasteignar er 835,7 fm. Stærð lóðar er 11.186 fm. Fyrir liggja teikning af 70 herbergja hóteli og samþykkt deiluskipulag. Frekari upplýsingar hjá palmar@thingvangur.is, sími 896 1116.. Veitingarými - salir – gistirými Tækifæri til frekari uppbyggingar á gistimöguleikum á svæðinu TIL SÖLU EÐA LEIGU HELLNAR Við lifum á einkennilegum tímum. Lýð-skrumarar beita fyrir sig tungutaki semvið héldum mörg að væri komið á ösku-hauga sögunnar. Á eina hönd er end- urnýtt slípuð mælskulist róttækra kommúnista og sósíalista frá miðbiki síðustu aldar og óánægju al- þýðunnar beint að íbúum í Arnarnesinu. Á hina er óánægju þeirrar sömu harðduglegu alþýðu beint að frjálslyndu elítunni sem óski sér einskis heitar en lepja evrópska kaffidrykki í bíllausri miðborg. Hug- myndaheimur síðari hópsins kemur vel fram í skrýtlu sem sögð var í Sovétríkjum kommúnismans um af hverju þrír lögreglumenn gengju alltaf vaktir í Moskvu: einn til að lesa, annar til að skrifa og sá þriðji hafði gát á þessum menntamönnum. Það setur að manni leiða þegar gömlu orðfæri er beitt í valdabaráttu samtímans án þess að reynt sé að endurnýja hugmyndaheiminn og þar með tungu- takið. Það liggur fyrir að tímarnir breytast og tungutakið líka. Við höfum séð það í kófinu hvað orðaforðinn hefur spilað með og átt sinn þátt í að spegla hinn nýja farsóttarveruleika – sem er að vísu bara nýr fyrir okkur nútíma- fólki. Nýyrðunum hefur verið fagnað og þau höfð til marks um að íslenskan sé sprelllifandi og endurnýi sig í takt við nýja tíma. Það mætti ætla að sami fögnuður brytist fram þegar tungutakið lagar sig að auknu frjálslyndi, víðsýni og um- burðarlyndi. En þá bregður svo við að sumir telja að þar sé hinn frjálslyndi menntamaður að þvinga tungumálið að pólitískum rétt- trúnaði sinnar elítu með því að benda á að mörg gömul orð geymi gamlar og nú ótækar hugmyndir; líkt og þegar talað var hiklaust um vitleysingahæli, aumingja og hóruhús – og gleðimenn sem þau stunduðu (í því samhengi eru konur ekki menn). Nú hugsum við og tölum með öðrum hætti um geðrask- anir og þroskafrávik hvers konar; að ekki sé minnst á gleðikonurnar sem eru nú fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis – þótt stöku gleðimenn hafi á árum áð- ur haft aðrar hugmyndir um ástleitni senjórítanna. Tungutakið endurspeglar alltaf viðteknar hugmyndir þeirra sem ráða mestu í samfélaginu. Þegar fornafna- og kynjakerfi indóevrópskra tungu- mála var í mótun voru það til dæmis eingöngu karlar sem fóru með opinber mál og ráðskuðust með þjóðfélögin; konur voru hafðar heima að gæta bús og barna. Við þær aðstæður voru allir viðstaddir á mannamótum líffræðilega karlkyns – og velkomnir. Þetta feðraveldi hélst lítt breytt fram undir þarsíð- ustu aldamót. Síðan þá hefur konum fjölgað við stjórnvölinn og nú er ekki lengur hægt að ganga að því vísu að forsætisráðherra, biskupinn, fyrrver- andi forseti og háskólarektor séu allir jafn glaðir að hittast og þeir hefðu get- að verið í jólaboði fyrir aðeins 40 árum. En að sjálfsögðu mun það taka tíma að vinda ofan af þeim kynjahalla sem hafði búið um sig í tungutakinu öll ár- þúsundin þar á undan frá því ísinn fór að hopa af sléttunum við Svartahaf. Endurnýting og endurnýjun tungutaksins Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Endurnýjun orðaforða „Tungutakið endurspeglar samtímann hverju sinni.“ Kórónuveiran hefur sett strik í reikninginnhjá íslenzkri æsku og þá sérstaklega þeimsem eru að ljúka ákveðnum áföngum ínámi. Útskriftir verða með öðrum hætti en tíðkast hefur í áratugi hjá nýstúdentum og þeir sem eru að ljúka háskólanámi, ýmist heima eða erlendis, standa frammi fyrir erfiðri stöðu. Íslenzkir náms- menn sem stundað hafa nám við erlenda háskóla hafa margir hverjir komið heim og stundað fjarnám við þá sömu skóla og tekið próf með sama hætti. En stóra strikið er kannski að það unga fólk sem er að ljúka háskólanámi og hefur stefnt að því að fara út á vinnumarkaðinn að því námi loknu stendur allt í einu frammi fyrir gjörbreyttum aðstæðum og „fordæmalausum“, svo notað sé alþekkt orð. Atvinnulíf og viðskiptalíf um heim allan er nánast í rúst og enginn veit hversu langan tíma endurreisnin tekur. Óhætt er að segja að engin kynslóð ungs fólks hefur staðið frammi fyrir áþekkum aðstæðum nema kannski þær sem stóðu í sömu sporum í lok heims- styrjaldanna beggja á síðustu öld. Þá hafa aðstæður á margan hátt verið svipaðar og nú þótt „rústirnar“ séu annars eðlis nú en þá. Það liggur í augum uppi að það getur orðið erfitt fyrir þá sem eru að ljúka háskólanámi á þessu ári að finna starf á sum- um þeirra sviða sem þetta unga fólk hefur menntað sig til. Og þar með er umhugsunarefni hvort hægt er að finna því verkefni og nýta menntun þess og starfskrafta í þjóðar þágu. Þetta á ekki bara við um Ísland heldur öll lönd í okkar heimshluta og vafa- laust í öðrum heimshlutum líka. Það er óskemmtilegt að þurfa að hefja starfsævina á atvinnuleysisbótum. Nú má auðvitað vel vera að einhverjir í þessum aldurshópum grípi til þess ráðs, sem dæmi eru um frá fyrri kynslóðum, að þau skapi sér verkefnin sjálf og byggi þá á eigin hugviti. Það er í takt við þá áherzlu sem nú er lögð á „nýsköpun“. Í kreppunni miklu upp úr 1930 náði atvinnuleysi í Bandaríkjunum nær 25%. Aðgerðir Roosevelts Bandaríkjaforseta á þeim tíma, sem kenndar eru við „New Deal“, snerust mjög mikið um ungar kynslóðir þeirra tíma. Tveir greinarhöfundar í brezka blaðinu Guardian bentu á það fyrir nokkrum dögum að af þeim aðgerðum mætti sitthvað læra. Þessir tveir greinarhöfundar, sem skrifa sameiginlega grein um þetta, David Blanchflower, prófessor við Dartmouth College í Hanover í New Hampshire (en við þann há- skóla var hið mikla pólarbókasafn Vilhjálms Stef- ánssonar landkönnuðar varðveitt og er kannski enn), og maður að nafni David Bell, vekja athygli á einum þætti í „New Deal“ Roosevelts, sem gekk undir nafn- inu Civilian Conservation Corps (og þeir segja að hafi verið uppáhald hans) sem réði ungt fólk til starfa til þess að stuðla að varðveizlu og þróun nátt- úruauðlinda í dreifðum byggðum. Kannski má segja að hinar ungu friðarsveitir Johns F. Kennedy, þremur áratugum síðar, hafi byggt á sömu hugsun, en þær voru byggðar upp af ungu fólki sem var þjálfað til að starfa í þróunar- ríkjum og aðstoða við uppbyggingu þeirra. Blasa einhver slík verkefni við á Íslandi sem hægt væri að nýta þekkingu og hugvit íslenzks æskufólks við? Kannski ættum við að nota tækifærið og senda ungar sveitir landverndarfólks út um allt Ísland til þess að lagfæra þær skemmdir sem orðið hafa víða á vinsælum ferðamannastöðum, bæði í byggð og óbyggðum, vegna gífurlegrar umferðar erlendra ferðamanna. Nú eru þeir horfnir um skeið og þá get- um við gert tvennt: Annars vegar lagfært skemmdir á náttúrunni og hins vegar búið okkur undir mót- töku ferðamanna á ný með því að móta reglur um takmörkun á fjölda ferðamanna á hverju stað, hverju sinni, svo að slíkar skemmdir verði ekki endurteknar. Slíkar ungar sveitir landverndarfólks gætu bæði tekið að sér lagfæringar á skemmdum og mótun nýrrar stefnu í móttöku útlendinga sem vilja kynna sér náttúru Íslands. Greinarhöfundarnir tveir í Guardian benda á að ný útgáfa af CCC-sveitum Roosevelts (sem íslenzkar landverndarsveitir yrðu á sinn hátt) mundu byggja á brennandi áhuga æsku allra landa að bjarga jörð- inni. Sænska stúlkan Greta Thunberg er eins konar tákn þeirrar ástríðu ungs fólks. Inn í slíkt stórt verkefni væri hægt að setja hinn nýja miðhálendisþjóðgarð, sem vonandi verður að veruleika. Í stuttu máli sagt væri með þessu íslenzku æsku- fólki falið það viðamikla verkefni að vernda einstæða náttúru Íslands, sem er í hættu stödd vegna mikils átroðnings, þótt lítið hafi verið um það fjallað í opin- berum umræðum. Það verkefni yrði þeim ungu sveit- um innblástur til að vernda þá náttúru um aldur og ævi. Um leið myndi unga fólkið kynnast landinu bet- ur og öðlast nýja sýn á það hvað við erum heppin sem hér búum og höfum tekið þetta land í arf frá forfeðrum okkar. Það er ekki bara miðhálendið sem hér kemur við sögu. Hið sama má segja um nyrztu svæðin á Vest- fjarðakjálkanum, sem munu í framtíðinni ekki síður verða eftirsótt. Náttúra Íslands er ígildi fiskimiðanna. Hana þarf að vernda ekki síður en fiskistofnana í kringum land- ið. Hún er auðlind ekki síður en fiskurinn. Sú auð- lind mun gera okkur kleift að lifa farsællega í þessu landi um langa framtíð. En við þurfum að læra af reynslunni að fara betur með þá auðlind, alveg eins og við þurftum að stöðva rányrkjuna á fiskimið- unum. Landverndarsveitir Íslands! Takið til höndum! Unga fólkið og kórónuveiran Fram Landvernd- arsveitir Íslands! Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Í frjálsum löndum leyfist okkur aðhafa skoðanir, en rökfræðin bannar okkur þó að lenda í mótsögn við okkur sjálf. Þriðji frumburður móður er ekki til, aðeins frumburð- urinn eða þriðja barnið. Á Íslandi eru þrjár mótsagnir algengar í stjórnmálaumræðum. 1. Sumir segjast vera jafnaðar- menn, en berjast gegn tekjuskerð- ingu bóta, til dæmis barnabóta eða ellilífeyris frá ríkinu. En auðvitað er slík skerðing tilraun til að skammta það fé skynsamlega, sem til skipt- anna er, láta það renna til þeirra, sem þurfa á því að halda, ekki ann- arra. Maður, sem nýtur ríflegs líf- eyris úr lífeyrissjóði starfsgreinar sinnar eða af einkasparnaði, þarf ekki þann opinbera grunnlífeyri, sem fólk á lífeyrisaldri nýtur, hafi það ekki aðrar tekjur. Menn geta deilt um, við hversu háar tekjur á að hefja skerðingu, en varla um sjálfa regluna: að skammta opinbera að- stoð eftir þörf, en ekki óháð tekjum. 2. Sumir vilja leggja niður krón- una, taka upp evru, en afnema verð- tryggingu. En efnahagsleg áhrif af því að taka upp evru í öllum við- skiptum væru svipuð og af því að taka upp verðtryggða krónu í öllum viðskiptum. Við gætum þá engu breytt um peningamagn í umferð. Gjaldmiðillinn væri á föstu og óbreytanlegu verði. Nú eru á Íslandi notaðir tveir gjaldmiðlar, venjuleg króna í hversdagslegum viðskiptum og verðtryggð króna í langtíma- viðskiptum. Kosturinn við hina fyrri er, að hana má fella í verði, þegar það er nauðsynlegt. Kosturinn við hina síðari er, að hana er ekki hægt að fella í verði. Hún er stöðug, held- ur gildi sínu, hvað sem á bjátar. Lán- ardrottnar (oftast lífeyrissjóðir og því vinnandi fólk) fá fé sitt til baka. 3. Sumir þykjast vera frjáls- hyggjumenn, en berjast fyrir auð- lindaskatti og jafnvel fyrir því að taka kvóta af útgerðarmönnum. En frjálshyggja hvílir á tveimur stoðum, einkaeignarrétti og viðskiptafrelsi. Einkaeignarrétturinn er hag- kvæmur, af því að menn fara betur með eigið fé en annarra og vegna þess að ágreiningur leysist þá af sjálfum sér: menn fara hver með sína eign og þurfa ekki að eyða tíma í þrætur um, hvernig eigi að fara með sameign. Sjaldan grær gras í al- menningsgötu. En hvernig geta menn verið hlynntir einkaeign á nýt- ingarrétti beitarlands og laxveiðiár og ekki einkaeign á nýtingarrétti fiskistofns? Hvers vegna vilja þeir breyta útgerðarmönnum í leiguliða ríkisins og útvega misvitrum stjórn- málamönnum nýjan tekjustofn til að þræta um? Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Þriðji frumburður móðurinnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.