Morgunblaðið - 30.05.2020, Qupperneq 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
30. maí 1987
Arnór Guðjohnsen er marka-
kóngur efstu deildar og
meistari með Anderlecht, auk
þess sem hann er útnefndur
besti leikmaður deildarinnar
af tveimur stærstu dagblöðum
landsins.
30. maí 1998
Jón Arnar Magnússon setur Ís-
landsmet í tugþraut, 8.573
stig, og er þriðji
í keppni flestra
bestu tugþraut-
armanna heims í
Götziz í Aust-
urríki. Hann
bætir eigið met
um 103 stig og
kemst í 20. sæti í heimslista
greinarinnar frá upphafi.
Metið stendur enn.
30. maí 2010
Kiel, með Alfreð Gíslason sem
þjálfara og Aron Pálmarsson
sem leikmann, er Evr-
ópumeistari í handknattleik
eftir sigur á Barcelona, 36:34,
í úrslitaleik Meistaradeild-
arinnar í Köln.
31. maí 1982
Jón Diðriksson setur Íslands-
met í 1.500 metra hlaupi á
móti í Rehlingen í Vestur-
Þýskalandi, 3:41,65 mínútur.
Metið stendur enn.
31. maí 1984
Sigurður T. Sigurðsson setur
Íslandsmet í stangarstökki á
móti í Lage í V-Þýskalandi,
stekkur 5,31
metra. Metið stendur enn.
31. maí 1989
Vésteinn Haf-
steinsson setur
Íslandsmet í
kringlukasti á
móti á Selfossi,
kastar 67,64
metra. Metið
stendur enn.
31. maí 1989
Ísland nær afar óvæntu jafn-
tefli við Sovétríkin í Moskvu,
1:1, í und-
ankeppni HM í
knattspyrnu
karla og er fyrst
liða til að ná
stigi gegn Sov-
étmönnum í
þessari keppni á
heimavelli þeirra frá upphafi.
Halldór Áskelsson
jafnar á 86. mínútu og það er
fyrsta mark sem Sovétríkin fá
á sig á heimavelli í keppninni
í 24 ár.
31. maí 1997
Ísland sigrar Egyptaland,
23:20, í leik um 5. sætið á HM
karla í handknattleik í Kuma-
moto í Japan og nær þar
besta árangri sínum í keppn-
inni frá upphafi.
31. maí 1997
Jón Arnar Magnússon setur
Íslandsmet með raftímatöku í
100 m hlaupi þegar hann
hleypur á 10,56 sekúndum á
tugþrautarmóti í Götziz í
Austurríki. Metið stendur
enn.
31. maí 2009
Ólafur Stefánsson skorar
markið sem ræður úrslitum
þegar Ciudad Real sigrar í
Meistaradeild Evrópu annað
árið í röð. Hann skorar átta
mörk þegar Ciudad vinnur
upp fimm marka forskot Kiel
á útivelli.
Á ÞESSUM DEGI
og á frábærar minningar, þetta
var alveg fullkomið dæmi til að
kýla á.“
Sveinbjörn segist hafa haft
mikla löngun til að snúa aftur, en
þó aðeins erlendis þar sem hann
getur einbeitt sér að fullu að
handboltanum. „Það var lengi í
kollinum á mér að reyna að spila
aftur en þá bara erlendis, þar sem
þetta er full atvinnumennska. Það
er aðeins auðveldara fyrir líkam-
ann að vera atvinnumaður heldur
en að vinna sem málari heilan dag
og spila með því. Núna verð ég
bara í handboltanum og í flottri
aðstöðu með aðgang að sjúkra-
þjálfara. Maður er kannski bara í
vinnunni í 3-4 tíma á dag og hefur
allan tímann þar á milli til að
hugsa vel um sig.“
Íslendingahefð í Aue
Þó nokkrir Íslendingar hafa
spilað fyrir Aue en Rúnar Sig-
tryggsson þjálfaði meðal annars
liðið á árunum 2012 til 2016 eða á
sama tíma og Sveinbjörn var þar.
Hann er einn sjö Íslendinga sem
hafa spilað fyrir félagið en sig-
ursælasti kaflinn í sögu félagsins
kom einmitt á þessum árum.
„Arnar Jón Agnarsson braut ís-
inn þarna 2009. Svo komum við á
færibandi, ég og Rúnar komum
saman 2012 og svo komu Bjarki
Már Gunnarsson og Árni Þór Sig-
tryggsson ári á eftir. Svo kom
Hörður Fannar Sigþórsson og
auðvitað spilaði Sigtryggur, sonur
Rúnars þjálfara, þarna. Þetta voru
bestu árin hjá liðinu, við náðum
6.-7. sæti tvö ár í röð. Þeir kunna
vel við okkur Íslendingana og við
áttum frábæra tíma þarna allir
sem einn,“ segir Sveinbjörn en
eins og áður sagði verður hann
með landa sínum Arnari Birki
Hálfdánssyni í liðinu á næstu leik-
tíð. „Við höfum verið í smá sam-
bandi eftir að þetta kom upp,
hann spurði mig út í Aue, hvernig
liðið og bærinn væru, áður en
þetta kom upp hjá mér. Þetta kom
upp hjá mér fyrir kannski tveimur
vikum og ég skrifaði undir um síð-
ustu helgi.“
Þá segist Sveinbjörn ekki vera
að fara til Þýskalands til að gera
neitt annað en að spila en hann
ætlar sér að vera í stóru hlutverki
í þýsku annarri deildinni í vetur.
„Sá sem meiddist var alveg númer
eitt, svo er einn 18 ára markvörð-
ur sem er nýstiginn upp í meist-
araflokk og annar nokkuð ungur
að láni frá öðru liði. Ég býst við
að spila mikið og stefni að því, þó
auðvitað sé ekkert öruggt í því.
Ég er fenginn þangað til að spila
og ég ætla mér gott hlutverk,“
sagði Sveinbjörn ennfremur.
Sveinbjörn Pétursson var hættur eftir bílslys Málningarvinna eða handbolti
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Endurkoma Sveinbjörn Pétursson er á leið til Þýskalands á ný eftir að kallið kom frá Aue.
HANDBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Handknattleiksmarkvörðurinn
Sveinbjörn Pétursson er á leiðinni
aftur í atvinnumennskuna eftir að
hafa hætt í handbolta fyrir tæpu
ári. Hann lenti í bílslysi veturinn
2018 og í kjölfar þess að hafa
glímt við erfið meiðsli í baki
vegna þess ákvað hann að leggja
skóna á hilluna í fyrrasumar eftir
að hafa varið mark Stjörnunnar í
Garðabænum frá 2016. Nú er
hann hins vegar að ganga í raðir
þýska B-deildarfélagsins Aue sem
hann spilaði með á árunum 2012
til 2016 og verður því annar
tveggja Íslendinga sem spila með
liðinu næsta vetur.
Arnar Birkir Hálfdánsson varð
fyrr í vikunni sjöundi Íslending-
urinn í sögunni til að semja við
Aue en félagið tilkynnti komu
þeirra beggja á fimmtudaginn.
Þegar Morgunblaðið slær á þráð-
inn til Sveinbjörns er hann í
vinnunni en Ísfirðingurinn er mál-
ari. Hann segist ekki hafa hætt í
handboltanum vegna þess að hann
langaði til þess, meiðslin sem
hann varð fyrir í bílslysinu hafi
einfaldlega sett honum afarkosti:
hætta að vinna eða hætta í hand-
bolta.
„Fyrir slys vann ég 6-7 tíma á
dag og fór svo á æfingu, allt í
góðu. Eftir á þurfti ég hins vegar
að velja á milli; annaðhvort að
vinna eða spila bolta. Ég var ekki
að fá það mikið borgað að geta
bara spilað og ég gat ekki gert
hvort tveggja. Ég hætti aldrei af
því að mig langaði til þess,“ segir
Sveinbjörn sem er fullur tilhlökk-
unar yfir að byrja aftur.
„Þetta kom upp fyrst í byrjun
janúar, þá meiðist hjá þeim mark-
vörður og þeir hafa samband,
spyrja hvort ég geti hoppað inn.
Það var of stuttur aðdragandi að
því fannst mér en svo slítur þessi
sami markvörður krossband í
endurhæfingunni fyrir u.þ.b. tíu
dögum,“ bætir Sveinbjörn við og
segist hafa verið á leiðinni til
Þýskalands með kærustu sinni.
Það stóð alltaf til að komast aftur
í handboltann og var hann tilbú-
inn að semja við töluvert lægra
skrifað félag. „Það hefur alltaf
verið gott samband á milli mín og
félagsins síðan ég var þarna og
kærastan mín er þaðan. Þeir vissu
að við vorum á leiðinni til Þýska-
lands aftur og ég hafði stefnt á að
byrja að spila aftur.
Ætlaði í hvaða lið sem er
Ég ætlaði bara að komast í
hvaða lið sem er, bara það sem
var í boði til að koma mér aftur af
stað og sýna mig. Ég bjóst ekki
við því að tilboð kæmi úr annarri
deildinni, ég var alveg undir það
búinn að fara í deildina fyrir neð-
an og byrja þar. Ég er í góðu
sambandi við marga stráka þarna
Sveinbjörn Pétursson
» Markvörður frá Ísafirði en
lék fyrst í meistaraflokki á Ak-
ureyri.
» Hér heima hefur hann leikið
með HK, Akureyri og Stjörn-
unni.
» Snýr nú aftur til Aue þar
sem hann lék árin 2012-2016.
Þeir kunna vel við Íslendinga
Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk
Gunnarsdóttir og stöllur í Wolfs-
burg sneru aftur í þýsku efstu
deildinni í knattspyrnu eftir
tveggja mánaða hlé vegna kór-
ónuveirufaraldursins.
Toppliðið fékk Köln í heimsókn
og spilaði Sara allan leikinn fyrir
heimakonur, sem unnu öruggan
4:0-sigur. Liðið er á toppi deild-
arinnar með átta stiga forystu á
Bayern München og fer loka-
umferðin fram 28. júní. Sara ætlar
sér fjórða titilinn í röð í sumar áður
en hún fer frá félaginu.
Öruggt hjá Söru í
endurkomunni
Morgunblaðið/Eggert
Sigur Sara Björk Gunnarsdóttir
vann öruggan sigur með Wolfsburg.
Íris Björk Símonardóttir, fyrrver-
andi landsliðsmarkvörður í hand-
knattleik, verður markmannsþjálf-
ari U-16 ára landsliðs kvenna og
verður hluti af teymi þeirra Ágústs
Jóhannssonar og Árna Stefáns
Guðjónssonar sem þjálfa liðið. Íris
Björk hætti í handbolta fyrr í vik-
unni eftir glæstan feril en hún var
einn besti markvörður landsins um
árabil. Á þarsíðasta tímabili, 2018-
19, var hún kjörin besti leikmaður
deildarinnar en þá vann Valur alla
þrjá titlana sem í boði voru. Fékk
hún sömu nafnbót árið 2015.
Íris þjálfar efni-
lega markverði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjálfari Íris Björk Símonardóttir
hefur snúið sér að þjálfun.