Morgunblaðið - 30.05.2020, Síða 42

Morgunblaðið - 30.05.2020, Síða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 15:04 100% Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rán Flygenring, einn þekktasti teiknari Íslands, veit sem er að það er virkilega erfitt að teikna hest. Rán tekst nú á við þá áskorun með opinni vinnustofu í Gryfjunni í Ásmundarsal sem ber yfirskriftina Erfitt að teikna hest, mætir þangað alla þá daga sem safnið er opið og leyfir gestum að virða afraksturinn fyrir sér og spjalla við hana, hafi þeir áhuga á því. Vinnu- stofan hófst 4. maí og lýkur 20. júní og verða þá væntanlega allir veggir þaktir teikningum Ránar af hestum. Fyrst fuglar, nú hestar Rán er að ræða við gest þegar blaðamann ber að garði og ljóst er að truflanir eru og verða tíðar í hinni opnu vinnustofu. Hún tekur þeim truflunum þó með bros á vör. En hvers vegna ákvað hún að teikna hesta vikum saman? Jú, fyrir þremur árum kom út bók hennar og Hjörleifs Hjartarsonar, Fuglar, helg- uð fuglum Íslands og næst á dagskrá er bókin Hestar. Hún fjallar um ís- lenska hestinn og hvernig hann hefur mótað bæði land og þjóð frá land- námi. Munu myndirnar sem Rán vinnur nú að í Gryfjunni prýða bók- ina. Rán bendir á að fuglabókin sé strangt til tekið ekki fræðibók heldur bók sem hafi að geyma ýmsan fróð- leik, sögur og skemmtilegt og áhuga- vert efni tengt fuglum landsins. Ætl- unin sé að gera svipaða bók um íslenska hestinn, bók sem ætlað sé að ná ekki aðeins eyrum og augum áhugamanna um dýrið heldur einnig þeirra sem hafa lítinn og jafnvel eng- an áhuga á því. Þarfasti þjónninn „Hjörleifur er búinn að skrifa, ég er að myndlýsa og svo brýt ég text- ann svolítið upp, vinn hann inn í myndir og hengi beint upp á veggina. Fólk getur komið hingað, kíkt í hesta- bækur, skoðað og fengið um leið inn- sýn í hvernig bók verður til,“ útskýrir Rán fyrir blaðamanni og les upp textabrot úr bókinni sem finna má uppi á vegg innan um teikningar og skissur: „Í meira en þúsund ár hefur íslenski hesturinn verið einstakur meðal allra heimsins hrossa. Í meira en þúsund ár hefur hann þraukað í köldu landi með kaldlyndu fólki sem hann hefur þjónað af einstakri þraut- seigju og lítið þegið að launum fyrir utan nafnbótina „þarfasti þjónninn“.“ Hlutverk íslenska hestsins er gjör- breytt frá því sem áður var, nú er hann ekki lengur þarfasti þjónninn en Rán segir að í bókinni verði farið enn lengra aftur í tímann en til land- náms Íslands, allt aftur til hella- málverka og þess tíma er hinn viti- borni maður fékk þá flugu í höfuðið að temja hest. Þrjár leiðir Teiknistíll Ránar ætti að vera flest- um kunnur því hún hefur myndlýst fjölda bóka og sinnt margvíslegum teikniverkefnum, eins og sjá má á vefsíðu hennar ranflygenring.com. Rán er einnig rithöfundur því í fyrra kom út bók hennar um Vigdísi Finn- bogadóttur sem hún bæði skrifaði og myndlýsti. Rán er þaulreyndur teiknari en segir þó alltaf áskorun að teikna hest. „Ég sé eiginlega þrjár leiðir í þessu,“ segir hún um ólíkar nálganir teiknara á viðfangsefnið. „Það er þessi ana- tómískt rétti hestur sem ég ætla ekk- ert að reyna við, það er á færi margra sem gera ekkert annað en að teikna hest anatómískt rétt. Svo er það al- gjör stílísering og þá getur maður gert alls konar grín með form hests- ins sem verður mjög abstrakt,“ út- skýrir Rán og bendir á nokkrar spaugilegar teikningar af hestum uppi á vegg. „Þriðja leiðin er sú sem mig langar að ná en það er hestur með sterkan persónuleika og sér- staklega þennan íslenska karakter.“ Halldór meistarinn Rán bendir blaðamanni á dæmi þar um og segir Halldór Pétursson hafa náð þessum karakter fullkomlega í verkum sínum, eins og sjá má til dæmis í hinni sígildu barnabók Helgi skoðar heiminn. „Það kemst enginn með tærnar þar sem hann hefur hæl- ana,“ segir Rán um Halldór. Hún segist hafa leitað að þessum karakterum fuglanna í fuglabókinni fyrrnefndu. Vilji fólk vita hvernig til- tekinn fugl líti út geti það gúgglað hann en hún hafi aftur á móti viljað túlka fuglinn, sýna karakter flórgoða, svo dæmi sé tekið. „Það sama á við um þessa bók, ég leyfi stílnum eða tólunum að ráðast af því sem mig langar að segja frá hverju sinni,“ út- skýrir hún. Vill helst vakna kl. 5 En hvernig er dæmigerður vinnu- dagur hjá Rán, þarf hún að komast í teiknistuð með einhvers konar upp- hitun eða hvaða hátt hefur hún á? „Ég er algjör A-manneskja, vand- ræðalega mikil. Ég vil helst vakna klukkan fimm, fara í sund og setjast svo niður og byrja að teikna,“ svarar hún kímin og bætir við að hún vilji helst vera laus við áreiti á borð við tölvupóst og síma fram að hádegi. „Ég er ekki hörð á því en ef maður vill komast í flæði er gott að hafa þetta þannig.“ Rán segir opna vinnu- stofu samt fína áskorun og skemmti- lega. „Svo er náttúrlega rosalega gott að hafa svona skýran ramma utan um verkefni. Hér er ég bara að teikna og hugsa um hross,“ segir hún. Farartæki fyrir sögur Rán lærði grafíska hönnun og er því ekki lærð í myndlýsingu, því sem kallað er illustration á ensku. „Ég kem svolítið að þessu út frá hönnun- arhugsuninni og sé teikninguna næstum eins og farartæki fyrir sögur eða einhvers konar skilaboð,“ segir hún. Því taki hún helst eftir því í verkum annarra teiknara hvernig þeir noti myndir til að segja eitthvað frekar en stíl þeirra eða efnunum sem þeir noti í verkin. Rán er að lokum spurð að því hvort hún muni ekki á endanum fá nóg af því að teikna hesta og svarar hún nei, síður en svo. „Æfingin skapar meist- arann,“ segir hún brosandi og greini- lega ekki af baki dottin. Hestar með sterkan persónuleika  Teiknarinn Rán Flygenring teiknar myndir fyrir bók um íslenska hestinn í opinni vinnustofu í Gryfjunni í Ásmundarsal  Teiknar og hugsar um hross alla daga  Seir gott að hafa skýran ramma Morgunblaðið/Eggert Hestakona Rán Flygenring í Gryfjunni. Hún hefur bæði gaman af því að fara á hestbak og teikna hesta. Morgunblaðið/Eggert Fjölbreytt Verk Ránar eru uppi um alla veggi í Gryfj- unni og sýna meðal annars íslensku hestalitina. Ljósmynd/Helgi Snær Til sýnis Á borði má skoða bækur um hesta og einnig bók Ránar og Hjörleifs um fugla, auk forláta trélíkans. Knapar Skemmtilegar teikningar af hestum og knöpum í vinnustofunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.