Morgunblaðið - 30.05.2020, Qupperneq 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rán Flygenring, einn þekktasti
teiknari Íslands, veit sem er að það er
virkilega erfitt að teikna hest. Rán
tekst nú á við þá áskorun með opinni
vinnustofu í Gryfjunni í Ásmundarsal
sem ber yfirskriftina Erfitt að teikna
hest, mætir þangað alla þá daga sem
safnið er opið og leyfir gestum að
virða afraksturinn fyrir sér og spjalla
við hana, hafi þeir áhuga á því. Vinnu-
stofan hófst 4. maí og lýkur 20. júní
og verða þá væntanlega allir veggir
þaktir teikningum Ránar af hestum.
Fyrst fuglar, nú hestar
Rán er að ræða við gest þegar
blaðamann ber að garði og ljóst er að
truflanir eru og verða tíðar í hinni
opnu vinnustofu. Hún tekur þeim
truflunum þó með bros á vör.
En hvers vegna ákvað hún að
teikna hesta vikum saman? Jú, fyrir
þremur árum kom út bók hennar og
Hjörleifs Hjartarsonar, Fuglar, helg-
uð fuglum Íslands og næst á dagskrá
er bókin Hestar. Hún fjallar um ís-
lenska hestinn og hvernig hann hefur
mótað bæði land og þjóð frá land-
námi. Munu myndirnar sem Rán
vinnur nú að í Gryfjunni prýða bók-
ina.
Rán bendir á að fuglabókin sé
strangt til tekið ekki fræðibók heldur
bók sem hafi að geyma ýmsan fróð-
leik, sögur og skemmtilegt og áhuga-
vert efni tengt fuglum landsins. Ætl-
unin sé að gera svipaða bók um
íslenska hestinn, bók sem ætlað sé að
ná ekki aðeins eyrum og augum
áhugamanna um dýrið heldur einnig
þeirra sem hafa lítinn og jafnvel eng-
an áhuga á því.
Þarfasti þjónninn
„Hjörleifur er búinn að skrifa, ég
er að myndlýsa og svo brýt ég text-
ann svolítið upp, vinn hann inn í
myndir og hengi beint upp á veggina.
Fólk getur komið hingað, kíkt í hesta-
bækur, skoðað og fengið um leið inn-
sýn í hvernig bók verður til,“ útskýrir
Rán fyrir blaðamanni og les upp
textabrot úr bókinni sem finna má
uppi á vegg innan um teikningar og
skissur: „Í meira en þúsund ár hefur
íslenski hesturinn verið einstakur
meðal allra heimsins hrossa. Í meira
en þúsund ár hefur hann þraukað í
köldu landi með kaldlyndu fólki sem
hann hefur þjónað af einstakri þraut-
seigju og lítið þegið að launum fyrir
utan nafnbótina „þarfasti þjónninn“.“
Hlutverk íslenska hestsins er gjör-
breytt frá því sem áður var, nú er
hann ekki lengur þarfasti þjónninn
en Rán segir að í bókinni verði farið
enn lengra aftur í tímann en til land-
náms Íslands, allt aftur til hella-
málverka og þess tíma er hinn viti-
borni maður fékk þá flugu í höfuðið
að temja hest.
Þrjár leiðir
Teiknistíll Ránar ætti að vera flest-
um kunnur því hún hefur myndlýst
fjölda bóka og sinnt margvíslegum
teikniverkefnum, eins og sjá má á
vefsíðu hennar ranflygenring.com.
Rán er einnig rithöfundur því í fyrra
kom út bók hennar um Vigdísi Finn-
bogadóttur sem hún bæði skrifaði og
myndlýsti.
Rán er þaulreyndur teiknari en
segir þó alltaf áskorun að teikna hest.
„Ég sé eiginlega þrjár leiðir í þessu,“
segir hún um ólíkar nálganir teiknara
á viðfangsefnið. „Það er þessi ana-
tómískt rétti hestur sem ég ætla ekk-
ert að reyna við, það er á færi margra
sem gera ekkert annað en að teikna
hest anatómískt rétt. Svo er það al-
gjör stílísering og þá getur maður
gert alls konar grín með form hests-
ins sem verður mjög abstrakt,“ út-
skýrir Rán og bendir á nokkrar
spaugilegar teikningar af hestum
uppi á vegg. „Þriðja leiðin er sú sem
mig langar að ná en það er hestur
með sterkan persónuleika og sér-
staklega þennan íslenska karakter.“
Halldór meistarinn
Rán bendir blaðamanni á dæmi þar
um og segir Halldór Pétursson hafa
náð þessum karakter fullkomlega í
verkum sínum, eins og sjá má til
dæmis í hinni sígildu barnabók Helgi
skoðar heiminn. „Það kemst enginn
með tærnar þar sem hann hefur hæl-
ana,“ segir Rán um Halldór.
Hún segist hafa leitað að þessum
karakterum fuglanna í fuglabókinni
fyrrnefndu. Vilji fólk vita hvernig til-
tekinn fugl líti út geti það gúgglað
hann en hún hafi aftur á móti viljað
túlka fuglinn, sýna karakter flórgoða,
svo dæmi sé tekið. „Það sama á við
um þessa bók, ég leyfi stílnum eða
tólunum að ráðast af því sem mig
langar að segja frá hverju sinni,“ út-
skýrir hún.
Vill helst vakna kl. 5
En hvernig er dæmigerður vinnu-
dagur hjá Rán, þarf hún að komast í
teiknistuð með einhvers konar upp-
hitun eða hvaða hátt hefur hún á?
„Ég er algjör A-manneskja, vand-
ræðalega mikil. Ég vil helst vakna
klukkan fimm, fara í sund og setjast
svo niður og byrja að teikna,“ svarar
hún kímin og bætir við að hún vilji
helst vera laus við áreiti á borð við
tölvupóst og síma fram að hádegi.
„Ég er ekki hörð á því en ef maður
vill komast í flæði er gott að hafa
þetta þannig.“ Rán segir opna vinnu-
stofu samt fína áskorun og skemmti-
lega. „Svo er náttúrlega rosalega gott
að hafa svona skýran ramma utan um
verkefni. Hér er ég bara að teikna og
hugsa um hross,“ segir hún.
Farartæki fyrir sögur
Rán lærði grafíska hönnun og er
því ekki lærð í myndlýsingu, því sem
kallað er illustration á ensku. „Ég
kem svolítið að þessu út frá hönnun-
arhugsuninni og sé teikninguna
næstum eins og farartæki fyrir sögur
eða einhvers konar skilaboð,“ segir
hún. Því taki hún helst eftir því í
verkum annarra teiknara hvernig
þeir noti myndir til að segja eitthvað
frekar en stíl þeirra eða efnunum sem
þeir noti í verkin.
Rán er að lokum spurð að því hvort
hún muni ekki á endanum fá nóg af
því að teikna hesta og svarar hún nei,
síður en svo. „Æfingin skapar meist-
arann,“ segir hún brosandi og greini-
lega ekki af baki dottin.
Hestar með sterkan persónuleika
Teiknarinn Rán Flygenring teiknar myndir fyrir bók um íslenska hestinn í opinni vinnustofu í
Gryfjunni í Ásmundarsal Teiknar og hugsar um hross alla daga Seir gott að hafa skýran ramma
Morgunblaðið/Eggert
Hestakona Rán Flygenring í Gryfjunni. Hún hefur bæði gaman af því að fara á hestbak og teikna hesta.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölbreytt Verk Ránar eru uppi um alla veggi í Gryfj-
unni og sýna meðal annars íslensku hestalitina.
Ljósmynd/Helgi Snær
Til sýnis Á borði má skoða bækur um hesta og einnig bók
Ránar og Hjörleifs um fugla, auk forláta trélíkans.
Knapar Skemmtilegar teikningar af hestum og knöpum í vinnustofunni.