Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þessi titill kemur úr öðru af tveim- ur ljóðum eftir Ásdísi Sif Gunnars- dóttur á plötunni,“ segir Páll Ragnar Pálsson um hljómplötuna Atone- ment sem nýverið kom út hjá banda- rísku útgáfunni Sono Luminus. Á plötunni flytja Caput og Tui Hirv, undir stjórn Guðna Franzsonar, fimm verk sem Páll Ragnar samdi á árunum 2011 til 2018. „Í ljóðinu, sem er titillag plötunnar, fjallar Ásdís um tímamót í lífinu þar sem ljóðmælandi leitar að frið eftir erfiða tíma áður en haldið er til móts við nýja tíma. Titillinn undirstrikar að tónsmíð- arnar sjálfar séu ákveðin friðþæging og ritúal. Hann endurspeglar líka að tónsmíðar fela í sér ákveðið íhugunarferli þar sem maður er að þróa sig áfram sem mannveru,“ seg- ir Páll Ragnar og viðurkennir fús- lega að í sínum huga sé tónlist hans nátengd hinu trúarlega. Sterkur heildarsvipur „Tilurð plötunnar má rekja til tón- leika sem Caput hélt á Myrkum músíkdögum 2014 með verkum mín- um. Ég samdi verkið Stalker’s Monologue sérstaklega fyrir þá tón- leika auk þess sem hljómsveitin flutti fleiri eldri verk. Þá sáum við strax að við værum komin með efni í plötu og þegar ég kynnti svo Guðna og Collin Rae hjá Sono Luminus komst skriður á verkefnið,“ segir Páll Ragnar. Hin fjögur verkin á plötunni eru Atonement, Lucidity, Midsummer’s Night og Wheel Crosses Under Moss. „Það er mjög sterkur heildar- svipur yfir allri plötunni og hún gef- ur góða mynd af mér sem kammer- tónskáldi,“ segir Páll Ragnar og nefnir að sama hljóðfærasamsetning einkenni alla plötuna. „Stundum í stærri og stundum smærri hljóð- færasamsetningu. Þetta eru litlar hljómsveitarsamsetningar þar sem flytjendur eru frá fimm til níu. Þetta er því fíngerð tónlist en með skýrum kjarna. Því það heyrist vel að bak við öll verkin er sama hugsunin – sem má segja að sé eins og manifesto á minni fagurfræði,“ segir Páll Ragn- ar. Þegar hann er beðinn að koma nánari orðum að henni svarar Páll Ragnar: „Ég sem tónlist til að þurfa ekki að koma orðum að hlutum. Tón- listin tekur við þar sem orðunum sleppir.“ Páll Ragnar segir að nokkur þemu ráði för þegar hann semji tónlist. „Ég sé tónlistina fyrir mér sem org- anískt ferli. Á sama tíma er tónlistin mín línuleg, sem kallast á við þá tíma í tónlistarsögunni þegar fólk hugsaði tónlistina lárétta en ekki lóðrétta,“ segir Páll Ragnar og tekur fram að tónlist hans sé undir mjög miklum áhrifum af því sem hann lærði þegar hann bjó og var við nám í Eistlandi á sínum tíma. Þrjú af fimm verkum plötunnar eru sungin, en Tui Hirv, eiginkona hans, syngur verkin. Ásdís Sif les eigin texta í verkinu Midsummer’s Night auk þess sem hún samdi titil- ljóðið. „Textinn við lokalagið kemur úr sálmum frá eyjunni Vormsi, við vesturströnd Eistlands, þar sem var lengi vel sænskt samfélag sem lagð- ist endanlega af í seinni heimsstyrj- öldinni. Einnig nota ég texta úr myndinni Stalker í leikstjórn And- reis Tarkovsky. Sá texti er ekki trúarlegur, en hins vegar mjög sterkur andlega og felur í sér mikla lífsspeki. Hann fjallar um það að þeir sem eru harðir eins og tré brotna frekar og lifa ekki af en þeir sem eru mjúkir og sveigjanlegir eiga auðveldara með að aðlagast breyt- ingum,“ segir Páll Ragnar og bendir á að myndin Stalker hafi mikla þýð- ingu fyrir Eista. „Myndin inniheldur duldar vísanir í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar sem talaði sterkt til Eista, sem eru honum því ávallt þakklátir fyrir myndina,“ segir Páll Ragnar og rifjar upp að myndin hafi verið tekin í Tallinn á stöðum sem hann hafi reglulega sótt meðan hann bjó þar í borg. Ótrúlegt frumkvöðlastarf Atonement er þriðja útgáfa Páls Ragnars hjá Sono Luminus en áður hafa komið út Concurrence, sam- starfsverkefni Sono Luminus og Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, þar sem Sæunn Þorsteinsdóttir flutti Quake fyrir selló og hljómsveit undir stjórn Daníels Bjarnasonar, og svo Verna- cular, einleiksplata Sæunnar þar sem hún lék Afterquake fyrir selló. „Samtal mitt við Sono Luminus hef- ur staðið síðustu ár og má rekja aft- ur til Concurrence. Með fyrri plöt- unum tveimur komst nafn mitt meira inn í umræðuna og fékk um- fjöllun í alls kyns fjölmiðlum, sem skapar grundvöll fyrir því að gefa út plötu sem inniheldur einvörðungu mín verk,“ segir Páll Ragnar og hrósar útgáfufyrirtækinu fyrir frumkvöðlastarf sitt. „Sono Luminus hefur unnið ótrú- legt frumkvöðlastarf með því mark- visst að skrásetja og kynna á heims- vísu íslenska nútímaklassík eins og hún er í dag. Þeir eru að skrásetja tónlistina á eins vandaðan hátt og hægt er með því að gera topp- upptökur,“ segir Páll Ragnar og vís- ar þar til þess að upptökunum, sem fram fóru fyrir rúmu ári í Kaldalóni í Hörpu, hafi verið stjórnað af Grammy-verðlaunahöfunum Daniel Shores og Dan Merceruio. „Það er oft sagt að stúdíó manns sé aldrei betra en lélegasta snúran í því. Þegar við vorum að taka upp hugsaði ég oft: „Vá, það er engin lé- leg snúra hér.“ Upptökuferli er svo margþætt og margt sem verður að vera í lagi; upptökugræjurnar og upptökustjórarnir, salurinn, flytj- endurnir og tónverkin.“ Gjöfult samtal og samstarf Spurður hvort og hvenær til standi að fylgja plötunni eftir með útgáfutónleikum segist Páll Ragnar fyrir allnokkru hafa gert sér ljóst að kórónuveirufaraldurinn myndi seinka öllum slíkum plönum. „Þess vegna setjum við á núverandi tíma- punkti frekar kraft í stafræna kynn- ingu. Ég trúi samt ekki öðru en að okkur takist að finna leið til að halda formlega útgáfutónleika þegar kóf- inu léttir,“ segir Páll Ragnar. Ekki er hægt að sleppa Páli Ragn- ari án þess að forvitnast um sam- starf þeirra hjóna, en þau Tui Hirv hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina. „Mér finnst það ótrúlega mik- ill kostur að vinna með henni. Sam- talið okkar á milli verður fyrir vikið mjög djúpt. Á milli okkar ríkir ákveðinn skilningur á því hvaða fagurfræði við viljum sýna. Þessi plata er afrakstur endalausra sam- tala okkar yfir uppvaskinu og kvöld- sjónvarpinu. Ég þekki röddina henn- ar mjög vel og sem tónlistina fyrir hennar rödd. Hún flytur tónlistina út frá sinni fagurfræði og okkar samtali. Ég geri mér alveg grein fyr- ir að þetta virkar ekki alltaf svona hjá pörum og því finnst mér ég ótrú- lega heppinn,“ segir Páll Ragnar og rifjar upp að þau hafi fyrst byrjað að vinna saman stuttu eftir að þau kynntust. „Ég hef samið þó nokkurn fjölda verka fyrir hana, að mig minn- ir tíu verk á síðustu tólf árum.“ Út fyrir þægindarammann Inntur eftir því hvort hann eigi mikinn fjölda verka sem bíða upp- töku svarar Páll Ragnar því játandi, vissulega eigi hann í handraðanum verk sem gaman væri að taka upp við tækifæri. „Það að semja er hins vegar mjög hæggengt ferli. Vinnan við hvert verk er talin í mánuðum og ekki vikum. Þannig getur stærra verk fyrir hljómsveit tekið allt að hálft ár í vinnslu,“ segir Páll Ragnar, sem er með ýmislegt á prjónunum sem stendur. „Ég er að fara að gera tónlistina við kvikmyndina Skjálfti í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur, sem verður fyrsta kvikmyndatónlistin mín. Þetta er því ný áskorun. Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni og sýnist það krefjast þess að ég fari töluvert út fyrir þægindarammann minn. Sem ég held að allir hafi gott af – svona einstaka sinnum,“ segir Páll Ragnar kíminn. Myndin byggir á skáldsögunni Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur, en svo skemmti- lega vill til að sú bók varð Páli Ragn- ari innblástur að Quake, sem nefnt var hér að ofan. „Auk þess er ég með eitt hljóm- sveitarverk í vinnslu sem ég mun örugglega vinna meðfram öðrum verkefnum. Ég var að skila af mér stuttu fiðlusólói um daginn fyrir bandaríska fiðluleikarann Patrick T. S. Yim sem býr í Hong Kong en ég kynntist á hátíð hérlendis fyrir nokkrum árum,“ segir Páll Ragnar og tekur fram að hann viti ekki enn hvenær gera megi ráð fyrir að það sóló fái að hljóma hérlendis. „En vonandi gerist það fyrr en síðar.“ Morgunblaðið/Eggert Hjónin „Á milli okkar ríkir ákveðinn skilningur á því hvaða fagurfræði við viljum sýna,“ segir tónskáldið Páll Ragn- ar Pálsson um samstarf þeirra Tui Hirv söngkonu. Samstarfið, sem verið hefur gjöfult, á sér nærri tólf ára sögu. „Þar sem orðunum sleppir“  Atonement nefnist hljómplata með verkum Páls Ragnars Pálssonar sem Sono Luminus gefur út  „Gefur góða mynd af mér sem kammertónskáldi“  Tónlistin við Skjálfta er næst á dagskrá ERTU MEÐ STERK BEIN? BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI OSTEO ADVANCE er fullkomin blanda fyrir beinin • Kalk og magnesíum í réttum hlutföllum • D vítamín tryggir upptöku kalksins • K2 vítamín sér um að kalkið skili sér í beinin Fæst í Lyf og Heilsu, Apótekaranum og flestum stórmörkuðum. 40 ára 60 ára 70 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.