Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 Norræna listkaupstefnan CHART, sem haldin hefur verið í ágúst mörg undanfarin ár í sýningarsölum Charlottenborg í Kaupmannahöfn, með þátttöku allra helstu mynd- listar- og nú síðast einnig hönn- unargallería Norðurlanda, verður með breyttu sniði í ár. Einungis verða sýnd verk eftir konur í öllum galleríunum sem taka þátt, og þá verður listkaupstefnan vegna veiru- faraldursins ekki haldin í Kaup- mannahöfn einni heldur í höfuð- borgum Norðurlandaríkjanna fimm, sömu helgina, 28. til 30. ágúst, í gall- eríunum sjálfum sem taka þátt. Eins og undanfarin ár taka þrjú ís- lensk gallerí þátt í CHART: i8, BERG Contemporary og Hverfis- gallerí. Í yfirlýsingu frá Nönnu Hjorten- berg, listrænum stjórnanda CHART, er markmiðið með því að sýna einungis verk eftir konur sagt vera það að varpa ljósi á mikilvæga áskorun innan myndlistarmarkaðar- ins. Í galleríunum verða sýningar á verkum kvenkyns listamanna sem þau vinna með, auk sérstakra við- burða á netinu, en þetta er tilraun til að hjálpa norrænum galleríum aftur af stað í starfsemi sinni eftir stöðvunina og höggið sem Covid-19 faraldurinn hefur verið myndlistar- markaðinum, auk þess að tengja þau að nýju við alþjóðlega mynd- listarmarkaðinn. Hjortenberg segir tölur sem liggja fyrir sýna að á alþjóðlegum listkaupstefnum séu 76 prósent verkanna gerð af karlkyns lista- mönnum og sú ákvörðun að sýna nú bara verk eftir konur eigi að benda á það misræmi og vera um leið til- raun til að byrja að leiðrétta það. Það að engar sjáanlegar breyt- ingar hafi orðið á þessu misræmi á síðustu árum sýni að það muni ekki gerast af sjálfu sér. „Þessi tími nú er gott tækifæri til að endurhugsa myndlistarsenuna sem við viljum sjá í framtíðinni,“ segir hún. „Við höfðum þegar, fyrir faraldurinn, ákveðið að sýna ein- ungis verk kvenna á CHART 2020 í Charlottenborg og við munum halda okkur við það í þessari nýju fram- setningu.“ Hún segir það aðkallandi að leiðrétta þetta kynjamisrétti á listmarkaðinum, aðstandendur CHART geti ekki leyst það einir en í sameiningu sé hægt að koma á hugarfarsbreytingu. „Hér á Norður- löndum vinnum við gjarnan með öðrum hætti en gert en annars stað- ar og getum auðveldlega lært hvert af öðru,“ segir hún og bætir við að það sé áskorun fyrir norræna mynd- listarsamfélagið að skapa jafnari og fjölbreytilegri myndlistarsenu. Morgunblaðið/Einar Falur Á CHART Gestir fá kynningu á verkum Steingríms Eyfjörð á sýningu Hverfisgallerís á CHART í Charlottenborg í Kaupmannahöfn í fyrra. Sýna einungis verk kvenna á CHART Mennta- og menningarmálaráð- herra samþykkti nýverið tillögu leik- listarráðs um styrki til atvinnu- leikhópa í átaksverkefni í menningu og listum fyrir árið 2020. Alls bárust 190 umsóknir frá 170 atvinnu- leikhópum og sviðslistamönnum og sótt var um ríflega 930 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Rannís hefur verið ákveðið að veita 95 milljónum króna til 30 verkefna sem skiptast þannig: níu leikverk, fjögur sviðsverk fyrir börn, þrjú söngverk, fimm dansverk, tvær sirkussýningar, tvær hátíðir og fimm rannsóknar- og námskeiðs- verkefni. Tíu af verkefnunum hljóta viðbótarstyrki vegna seinkunar og tafa síðvetrar. Árangurshlutfall um- sækjenda er um 16%. Leikhópurinn Lotta fær hæsta styrkinn, eða 8.170 þúsund krónur til uppsetningar á fjölskyldusöng- leiknum Bakkabræður sem frum- sýndur verður á miðvikudag. Næst- hæsta styrkinn, eða 7.668 þúsund krónur, hlýtur hópurinn Filippus Kusk ehf. undir stjórn Einars Aðal- steinssonar til að setja upp söngleik- inn Halastjarna. Þar næst kemur hópurinn Sería 3: ég býð mig fram sem hlýtur 7.175 þúsund krónur til að setja upp dansverkið Milli stunda. Pálína frá Grund ehf. undir stjórn Pálínu Jónsdóttur hlýtur 6.605 þús- und krónur til að setja upp sviðs- verkið Ég kem alltaf aftur/ Ódauðleikinn og Galdra Loftur. Hælið undir stjórn Maríu Pálsdóttur fær 6.040 þúsund krónur til að setja upp leiksýninguna Meðan lífs ég er. Hópurinn Hin fræga önd undir stjórn Ingibjargar Ýrar Skarphéð- insdóttur hlýtur 5.330 þúsund krón- ur til að setja upp barnaóperuna Fuglabjargið. Reykjavík Dance Festival undir stjórn Árgerðar Guðrúnar Gunnars- dóttur hlýtur 4.860 þúsund krónur til að setja upp röð dansverka undir heitinu Stefnumót. Sirkus Íslands ehf. undir stjórn Öldu Brynju Birgisdóttur hlýtur 4.640 þúsund krónur fyrir sýningarferð Farand- sirkussins. Galdur Productions sf. undir stjórn Steinunnar Ketils- dóttur hlýtur 4.060 þúsund krónur fyrir dansverkið Verk nr. 2. Kóme- díuleikhúsið undir stjórn Elfars Loga Hannessonar hlýtur 3.940 þús- und krónur til að setja upp leiksýn- inguna Beðið eftir Beckett. Hand- bendi Brúðuleikhús ehf. undir stjórn Gretu Ann Clough hlýtur 3.470 þús- und krónur fyrir brúðulistahátíðina Hvammstangi International. Önnur verkefni sem hljóta styrk eru (í stafrófsröð umsækjenda): Afsakið fær 1.940 þús. fyrir upplif- unarsýninguna Afsakið mig; Dáið er allt án drauma fær 2.610 þús. fyrir samnefnda samtímaóperu; Frið- þjófur Þorsteinsson 1.250 þús. fyrir vefvanginn Showdeck; Hominal fær 2.710 þús. fyrir samnefnda barna- sýningu; Konserta fær 1.640 þús. fyrir leiksýninguna Sagan; Lalalab, Miðnætti og Smartílab 1.430 þús. fyrir barnasýninguna Hjálpum trénu; Listbrú 2.040 þús. fyrir rann- sókina Ferðanet sviðslistafólks innanlands; Lið fyrir lið 780 þús. fyr- ir leikferð Skarfs; Margrét Bjarna- dóttir 1.135 þús. fyrir dansverkið Síðasti dansinn; Menningarfélagið Tær 2.109 þús. fyrir dansverkið Tapað – fundið; Möguleikhúsið ehf. 1.190 þús. fyrir hljóðverkið Eldbarn- ið; PólÍs 1.640 þús. fyrir sviðsverkið Co za poroniony pomysl; Svartur jakki 1.120 þús. fyrir óperuna KOK; Tabúla rasa 1.230 þús. fyrir sviðs- verkið The last kvöldmáltíð; The Institute of Recycled Expectations 1.438 þús. fyrir dansverkið Svanna- vatnið; Tinna Ottesen 1.270 þús. fyr- ir rannsóknina Tæknileg og fagur- fræðileg rannsókn á latexi, silicone og plastefnum og Á meðan 1.230 þús. fyrir leikverkið Trámað í hárinu. Samkvæmt vef Stjórnarráðs Íslands skipa Leiklistarráð árin 2019-2021 Páll Baldvin Baldvinsson formaður skipaður án tilnefningar, Hjálmar Hjálmarsson tilnefndur af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa og Karen María Jónsdóttir tilnefnd af Sviðslistasambandi Íslands. 95 milljónir til 30 verkefna atvinnuhópa  Alls bárust 190 umsóknir frá 170 atvinnuleikhópum og sviðslistamönnum  Sótt var um ríflega 930 milljónir Bræður Leikhópurinn Lotta fær hæstan styrk fyrir Bakkabræður. Þýska leikkonan Irm Hermann er látin, 77 ára að aldri. Hermann var með þekktari leikkonum Þýska- lands og lék bæði á sviði, í sjón- varpi og útvarpi og var lengi vel ein helsta samstarfskona leikstjór- ans Rainer Werner Fassbinder. Hann kynntist henni þegar hún starfaði sem einkaritari og sann- færði hana um að segja starfi sínu lausu og leika fyrir hann í stutt- myndinni Der Stadtstreicher árið 1966. Vakti sú mynd athygli á þeim báðum í kvikmyndaheiminum þýska. Hermann lék í fjölda kvikmynda Fassbinders og hlaut mikið lof fyrir. Þau Fassbinder áttu í stuttu sambandi en hann lést aðeins 37 ára árið 1982. Greindi Hermann frá því síðar að hann hefði beitt hana ofbeldi. Hermann lék einnig í kvik- mynd Werner Herzog, Woyzeck, á móti Klaus Kinski, og í heildina lék hún í yfir 160 kvikmyndum og sjón- varpsþáttum á ferli sínum. Leikkonan Irm Hermann látin, 77 ára Látin Leikkonan Irm Hermann í hlutverki sínu í kvikmynd Rainer Werner Fassbinder, Händler der vier Jahreszeiten, frá 1972. Fyrirhuguð kvikmynd með Tom Cruise í aðalhlutverki og sú fyrsta sem tekin verður upp úti í geimnum er nú komin með leikstjóra, Doug Liman, að því er kvikmyndavefur- inn Deadline greinir frá. Cruise og Liman hafa unnið saman áður, við kvikmyndirnar Edge of Tomorrow og American Made, og segir í frétt- inni að Liman sé einnig handrits- höfundur geimmyndarinnar og einn framleiðenda. Engar upplýs- ingar hafa borist um umfjöllunar- efni myndarinnar eða söguþráð en þó hefur verið staðfest að tökur munu fara í alþjóðlegri geimstöð NASA. Þá er fyrirtæki Elon Musk, SpaceX, einnig tengt verkefninu ef marka má tíst milljarðamæringsins á Twitter nýverið, að því er fram kemur á vef Guardian. Doug Liman fer með Cruise út í geim Geimfari Tom Cruise ætlar út í geim. Hér sést hann leika í Edge of Tomorrow.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.