Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.05.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.05.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 31. MAÍ 2020 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is DUCA model 2959 L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,- L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 449.000,- L 202 cm Leður ct. 25 Verð 669.000,- LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- L 224 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. BOTANIC model 3185 L 162 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 192 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- Tækniskóli unga fólksins býður upp á skemmtileg sumarnám- skeið fyrir krakka og ungmenni. Í ár verður boðið upp á nám- skeið í fatasaumi, forritun, tæknihönnun, ljósmyndun og tækni- brellum og upptökum. „Tölvunámskeiðin og námskeiðið í upptökum og tæknibrell- um hafa notið mikilla vinsælda,“ segir Ragnhildur Guðjóns- dóttir, skólastjóri tækniakademíu Tækniskóla Íslands. Ragnhildur nefnir að tæknihönnunarnámskeiðið sé einnig spennandi. „Krakkar læra þar þrívíddarprentun og hanna sjálfir hluti og boli,“ segir hún. „Námskeiðin eru hugsuð fyrir 12-16 ára. Þau eldri hafa síður komið því þau eru oft komin í sumarvinnu en það gæti verið breyting á því í sumar því það er minna um vinnu,“ segir hún og nefnir að þá sé tilvalið að skella sér á spennandi námskeið. Allar upplýsingar má finna á https://tskoli.is/. Hjá Tækniskóla unga fólksins má m.a. læra forritun. Tölvunám- skeiðin eru vinsæl hjá ungmennum. Ljósmynd/Colourbox Fatasaumur og forritun Hægt er að fara á námskeið í fatasaumi. Ljósmynd/Colourbox Tækniskóli unga fólksins er með fjölbreytt námskeið í sumar. Fyrirspurnir á Alþingi eru ekki nýjar af nálinni og ekki heldur kvartanir um að þær kosti skild- inginn. Í maí 1980 spurðist Árni Gunnarsson, þá þingmaður Al- þýðuflokks, fyrir um áfengiskaup ráðuneyta. Þegar Ragnar Arn- alds, þáverandi fjármálaráð- herra og Alþýðubandalags- maður, svaraði hafði hann á orði að það hefði reynst gríðarlegt verk og fljótt orðið ljóst „að nokkuð yrði að fjölga starfs- mönnum hjá ÁTVR, ef takast ætti að svara fyrirspurninni“. Spurt var um tíu ár aftur í tím- ann, en svarið náði aðeins aftur um þrjú ár af þessum sökum. Kom fram að árið 1977 hefðu ráðuneytin keypt tæplega 13.000 flöskur, eða 365 flöskur á dag að jafnaði. Umræðan um áfengiskaupin fór út um víðan völl, einn vildi taka upp kúta- og ámukerfi í stað flaskanna og deilt var um hvort menn yrðu vitlausari af að drekka létt vín eða sterkt. Þá var rætt hvort betra væri að vín- ið væri drukkið í ráðuneytum eða heimahúsum. Sagði Sverrir Hermannsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, að hann hefði ekki áður heyrt að fyllirí á vinnustað væri eðlilegra en fyllirí í heima- húsi og bætti við að hann héldi að „það myndi kannski fara að ruglast í möppunum fyrir ýms- um ef mikið væri umleikis í brennivíni á vinnustað“. GAMLA FRÉTTIN 365 flöskur víns á dag Örtröð af fólki við afgreiðsluborðið í Ríkinu við Snorrabraut árið 1979. Morgunblaðið/Ól.K.M. ÞRIFARAR VIKUNNAR Theodór Júlíusson, leikari Áskell Þórisson, áhugaljósmyndari George R.R. Martin, rithöfundur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.