Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 08.01.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1.–2. tbl. 23. árg. 8. janúar 2020 - kr. 950 í lausasölu • 2 STÓ RAR P IZZUR AF M ATSEÐ LI • 2 ME ÐLÆT I AÐ E IGIN V ALI • 2 SÓS UR AÐ EIGIN VALI • 2 L G OS AÐEIN S 5.99 0 KR. Þrír bankar í Arion appinu arionbanki.is Við opnum Arion appið og bjóðum Landsbankann og Íslandsbanka velkomna. Nú getur þú skoðað alla reikninga og kort í íslenskum bönkum í appinu. Opin og þægileg bankaþjónusta fyrir alla. Val á Vestlendingi ársins stóð yfir í desember og var kynnt 3. janú- ar síðastliðinn. Þetta er í 21. skipti sem Skessuhorn - fréttaveita Vest- urlands, stendur fyrir valinu. Aug- lýst var eftir tilnefningum frá al- menningi sem ritstjórn vann úr. Niðurstaðan var afgerandi. Vest- lendingar ársins 2019 eru björg- unarsveitarfólk á Vesturlandi. Það hefur nú sem fyrr sýnt hversu mik- ilvægt starf þess er fyrir samfélagið allt, íbúa jafnt sem gesti. Hinn sanni björgunarsveitarmaður er ávallt reiðubúinn til aðstoðar og leitar, að nóttu sem degi, leggur á sig ómæld- an fjölda vinnustunda við æfingar, fjáraflanir, leit og björgun á sjó og landi. Síðastliðið föstudagskvöld var fulltrúum allra níu björgunar- sveitanna á Vesturlandi fært, við at- höfn í Landnámssetrinu í Borgar- nesi, viðurkenningarskjal og blóm frá Skessuhorni og íbúum með kæru þakklæti fyrir störf þeirra. Samkvæmt tölfræði sem Slysa- varnafélagið Landsbjörg heldur utan um eru á fimmta hundrað virk- ir björgunarsveitarmenn á Vestur- landi. 469 björgunarsveitarmenn, af svæði 4 og 5, mættu í samtals 5.709 útköll frá 1. janúar 2014 til loka árs 2019. Það gerir að meðal- tali 12,2 útköll á hvern einstakling. Fimm hafa mætt í yfir hundrað út- köll á þessu sex ára tímabili. Það eru þeir Einar Þór Strand í Stykk- ishólmi, 169 sinnum, Bragi Jóns- son, áður búsettur á Reykhólum, 121 sinni, Ægir Þór Þórsson í Snæ- fellsbæ, 111 sinnum, Arnar Grét- arsson í Borgarfirði, 110 sinnum og Björn Guðmundsson á Akranesi, 108 sinnum. Í Skessuhorni í dag tökum við hús hjá öllum björgunarsveitum á Vesturlandi, ræðum við formenn þeirra og heyrum um áherslur og hvað er efst á baugi í starfi sveit- anna. Í viðtali við formenn kem- ur fram að framan af árinu 2019 var fremur rólegt en það átti eftir að breytast. Undir lok árs fór stór hópur af Vesturlandi til dæmis til leitar- og björgunarstarfa á Norð- urlandi í kjölfar óveðursins sem þar gekk yfir. Milli jóla og nýjárs hófst svo leit að manni sem saknað er í Hnappadal. Þess má geta að fjór- ir af þeim níu sem tóku við verð- launum fyrir hönd sinna björgun- arsveita á föstudagskvöldið komu til athafnarinnar beint úr leit í fjal- lendi Hnappadals. Meðfylgjandi mynd sýnir full- trúa björgunarsveitanna á Vest- urlandi. Frá vinstri talið: Krist- ján Ingi Arnarsson frá Björgunar- sveitinni Ósk í Búðardal, Jóhanna María Ríkharðsdóttir frá Björgun- arsveitinni Berserkjum í Stykkis- hólmi, Davíð Ólafsson frá Björg- unarsveitinni Heiðari í Borgarfirði, Elín Matthildur Kristinsdóttir, en hún tók við verðlaunum f.h. Björg- unarsveitarinnar Klakks í Grundar- firði, Jóhannes Berg frá Björgunar- sveitinni Oki í Borgarfirði, Krist- ín H Kristjánsdóttir frá Björgun- arsveitinni Elliða á sunnanverðu Snæfellsnesi, Helgi Már Bjarnason frá Björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ, Þórður Guðnason frá Björgunarfélagi Akraness og Einar Örn Einarsson frá Björgunarsveit- inni Brák í Borgarnesi. Vestlendingum ársins er óskað til hamingju með viðurkenninguna. Sjá nánar bls. 16-20 um starf björgunarsveitanna. mm/ Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson. Björgunarsveitarfólk er Vestlendingar ársins 2019 Icelandic Hot Dog combo Pylsu tilboð 549 kr. Tilboðið gildir út janúar 2020 Pylsa og pepsi/pepsi max 1/2 l í plasti sími 437-1600 Nýtt á Sögulofti Landnámsseturs Öxin – Agnes og Friðrik sunnudaginn 12. janúar kl. 14:00 frumsýning Næstu sýningar laugardaginn 18. janúar kl. 20:00 sunnudaginn 26. janúar kl. 16:00 miðasala á landnam.is/vidburdir eða á landnam@landnam.is UPPSELT

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.