Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Page 6

Skessuhorn - 08.01.2020, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 20206 Kemur tvisvar í sumar AKRANES: Skemmtiferða- skipið Le Boreal er væntanlegt til Akraness á komandi sumri. Tvær komur skipsins hafa ver- ið bókaðar, annars vegar 30. júlí og hins vegar 13. ágúst. Skipið er gert út af franska fyrirtækinu Pontant, en það hefur alls fimm skemmtiferðaskip í sínum flota. Skipið var smíðað árið 2010, er 142 metrar á lengd, 18 metrar á breidd og tekur 264 farþega. Le Boreal kom fyrst til Akraness sumarið 2017 og var þá fyrsta skemmtiferðaskipið sem sótti bæinn heim. -kgk Engin flugeldaslys VESTURLAND: Áramót- in fóru að mestu friðsamlega fram í umdæmi Lögreglustjór- ans á Vesturlandi að þessu sinni. Mest um vert var að engin slys voru tilkynnt af völdum flug- elda í umdæminu þessi ára- mótin, að sögn lögreglu. Að- fararnótt gamlársdags sást til manna sem óku um Akranesbæ og köstuðu flugeldum út úr bíl. Hafðist uppi á mönnunum sem lofuðu að gera þetta aldrei aftur. Þá var eitthvað um að fólk hafi ekki alltaf sýnt nægilega nær- gætni þegar það var að skjóta upp flugeldum á áramótunum og reyk af þeim lagt yfir bíla og hús nágranna. Lögregla minnir á að efnin í flugeldum eru eitr- uð og þau geta, ef þau liggja til dæmis á lakki bifreiða, vald- ið skemmdum á því. Að öðrum kosti fóru áramótin almennt séð vel fram, að sögn lögreglu. -kgk Húsnæðis- og mannvirkjastofnun LANDIÐ: Alþingi samþykkti fyrir jólafrí frumvarp þess efn- is að sameina Íbúðalánasjóð og Mannvirkjastofnun í nýja stofn- un sem mun fá nafnið Hús- næðis- og mannvirkjastofnun (HMS). „Markmið stjórnvalda með því að sameina stofnan- irnar tvær er að stuðla að betri, öruggari og skilvirkari hús- næðismarkaði fyrir almenn- ing, byggingariðnaðinn og aðra haghafa. Í nýrri stofnun verður stjórnsýsla bygginga-, bruna- og húsnæðismála efld auk þess sem stofnunin mun sinna nán- ara samstarfi við sveitarfélög landsins á þessum sviðum og veita þeim aukinn stuðning. Allt starfsfólk heldur störfum sínum hjá sameinaðri stofnun,“ segir í frétt félags- og barnamálaráðu- neytisins. -mm Mjólk hækkar um 2,5% LANDIÐ: Verðlagsnefnd bú- vara tók skömmu fyrir jól ákvörðun um hækkun lág- marksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs á mjólk og mjólkurafurðum. Eftir verð- breytingar nú um áramótin hækkar lágmarksverð mjólkur til bænda um 2,5%, úr 90,48 kr. í 92,74 kr. lítrinn. Heildsölu- verð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur hækk- ar sömuleiðis um 2,5%. „Verð- hækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við fram- leiðslu og vinnslu mjólkur, en síðasta verðbreyting fór fram 1. september 2018. Frá síðustu verðlagningu hafa gjaldalið- ir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 5,9% og reiknuð hækkun vinnslu- og dreifingar- kostnaðar afurðastöðva hækkað um 5,2%,“ segir í tilkynningu. -mm Bólusett við hlaupabólu og kíghósta LANDIÐ: Öll börn sem fædd eru 1. janúar 2019 eða síð- ar eiga nú rétt á bólusetningu við hlaupabólu án endurgjalds. Reglugerð þessa efnis tók gildi 1. janúar síðastliðinn. Reglu- gerðin kveður einnig á um bólusetningu við kíghósta fyr- ir sérstaka áhættuhópa og mæl- ir sóttvarnalæknir með slíkum bólusetningum fyrir barnshaf- andi konur. -mm Búist við jákvæð- um rekstri EYJA- OG MIKL: Fjárhags- áætlun Eyja- og Miklaholts- hrepps gerir ráð fyrir rúm- lega 7,1 milljónar afgangi frá rekstri samstæðu A og B hluta árið 2020. Tekjur sveitarfélags- ins eru áætlaðar 171,5 milljónir en gjöld 167,8 milljónir. Áætlað er að fjármunatekjur nemi 3,4 milljónum á næsta ári og niður- staðan verði því jákvæð um 7,1 milljón, sem fyrr segir. Veltu- fé frá rekstri er áætlað að verði tæpar 10,3 milljónir í árslok 2020 og handbært fé verði tæp- ar 96,8 milljónir í árslok. Eig- ið fé sveitarfélagsins er áætlað að verði tæpar 237,2 milljónir í árslok. kgk „Brælur og eintómar brælur,“ segir Sigurður Reynir Gunnarsson hafn- arvörður í Rifi einkenna veiðarn- ar undanfarna daga og býst við að bræla verði út vikuna miðað við af- leita veðurspá. Litlu línubátarnir komust á mánudaginn í sinn fyrsta róður á nýju ári og var afli þeirra þokka- legur. Sama má segja um dragnót- arbátana, en Egill SH landaði 16 tonnum á mánudaginn, mest skar- kola, eða sjö tonnum. Verð á skar- kola hefur aldrei verið hærra en núna og fór kílóið á 406 krónur á fiskmörkuðum. Sigurður Reyn- ir hafnarvörður segir að það hafi verið mjög gott verð á öllum fiski á mánudaginn og var meðalverð á óslægðum þorski 545 krónur á kíló- ið, ýsan fór á 422 krónur og karf- inn á 390 krónur. „Vegna ótíðar er mikill skortur á fiski og í dag eru aðeins tveir bátar á sjó,“ sagði Sig- urður síðdegis á mánudaginn þegar fréttaritari Skessuhorns kom við á kajanum. af Áætlað er að hefja loðnuleit seinni part næstu viku. Stefnt er að því að Árni Friðriksson RE, rannsókn- arskip Hafrannsóknarstofnunar, haldi til loðnuleitar föstudaginn 13. janúar og að því fylgi veiðiskip til aðstoðar við leitina. RúV greinir frá. Ferðinni er heitið norður fyr- ir land og leitin hefst á landgrunns- brúninni fyrir norðan. „Við mun- um þar fara yfir og glöggva okkur á því hvernig hún liggur og hvert hún er komin í göngunni,“ er haft eftir Birki Bárðarsyni, fiskifræðingi hjá Hafró, á vef RúV. Afar lítið mældist af loðnu í stórum rannsóknarleiðangri í haust og kveðst Birkir ekki bjartsýnn á leitina nú, né á komandi vertíð. Þó hafi gerst að meira finnist í seinni mælingum, en aðeins sé hægt að bíða og sjá. Hann segir mikla pressu á fiskifræðinga að leyfa einhverja veiði eftir loðnubrestinn á síðustu vertíð og að þeir geri sér grein fyrir hvað sé í húfi. Hafa þurfti slíkt hug- fast en líka að tegundin sé mikilvæg vistkerfinu og mikilvæg fæða ann- arra nytjastofna. Því þurfi að vanda til verka við framkvæmdina. kgk Loðnuhrognum pakkað í Heimaskagahúsinu á Akranesi vorið 2017. Ljósm. úr safni/ kgk. Halda til loðnuleitar í næstu viku Kjartan Arnar Geirdal Einarsson skips- verji á Lilju var einnig brosmildur, en sagði róðurinn hafa verið erfiðan. Fiskverð hátt þegar brælur hamla sjósókn Emil Freyr Emilsson skipstjóri á Lilju SH var brosmildur við löndun í Rifi á mánudaginn eftir fyrsta róður ársins. Aflinn var fimm tonn.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.