Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Page 12

Skessuhorn - 08.01.2020, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202012 Knattspyrnufélagið Kári afhenti nýverið Kristni Jens Kristinssyni, Kidda Jens, afrakstur styrktarsöfn- unar sem félagið stóð fyrir. Kára- menn hafa á innan við ári afhent langt yfir eina milljón króna í styrki handa þeim sem kljást við krabba- mein og aðstandendur þeirra sem hafa kvatt vegna þess. „Við vilj- um þakka öllum sem lögðu hönd á plóg en verkefnið var unnið í sam- starfi við Vini Kidda Jens, en heið- ursmanneskjan Hulda Birna Bald- ursdóttir var forsprakkinn að verk- efninu sem við Káramenn tókum að sjálfsögðu þátt í, enda verkefnið fallegt og brýnt,“ segir í tilkynn- ingu frá klúbbnum. Kiddi Jens var að vonum innilega þakklátur enda söfnunin sú langstærsta hingað til. „Við óskum nýbakaða afanum hon- um Kidda Jens góðrar framtíðar og góðum bata,“ segir í tilkynningu frá Knattspyrnufélaginu Kára. mm Svala Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Frístundar í Borgarnesi. Svala er með BA próf í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur unnið sem yfirmaður Frístundar og einn- Vilhjálmur Einarsson, fyrrum skólameistari og frjálsíþrótta- kappi, lést á Landspítalanum í Reykjavík 28. desember síðatlið- inn, 85 ára að aldri. Vilhjálmur var einn fremsti þrístökkvari í heimi á árunum 1956-1962. Frægasta af- rek sitt vann Vilhjálmur á Ólymp- íuleikunum í Melbourne í Ástral- íu árið 1956 þar sem hann vann til silfurverðlauna í þrístökki. Varð hann um leið fyrstur Íslendinga til að komast á verðlaunapall á Ól- ympíuleikum. Enginn Íslending- ur hefur verið kjörinn íþróttamað- ur ársins oftar en hann. Vilhjálmi var árið 2005 veittur riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyr- ir framlag sitt til íþrótta- og upp- eldismála. Þá var hann tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ 2012. Vilhjálmur fæddist á Hafranesi við Reyðarfjörð 5. júní 1934 og var sonur hjónanna Einars Stef- ánssonar frá Mýrum í Skriðdal, fulltrúa á Egilsstöðum, og Sigríðar Vilhjálmsdóttur frá Hánefsstöð- um í Seyðisfirði. Að loknu lands- prófi lá leið Vilhjálms í Mennta- skólann á Akureyri og útskrifað- ist sem stúdent frá stærðfræðideild vorið 1954. Þá um haustið hlaut hann skólastyrk við Dartmouth- háskólann í Bandaríkjunum og útskrifaðist þaðan með BA-próf með áherslu á listasögu. Þá sótti Vilhjálmur framhaldsnám í upp- eldis- og kennslufræði við Gauta- borgarháskóla 1974-1975 og aftur á árunum 1990-1993. Vilhjálmur var fyrst kennari við Héraðsskól- ann á Laugarvatni 1957-1958 og var skólastjóri þar á vorönn 1959. Eftir það var hann eitt ár kennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar en eftir það lá leiðin í Borgarfjörð, varð fyrst kennari við Samvinnu- skólann á Bifröst árin 1959-1965. Eftir Bifrastarveru sína tók hann við sem skólastjóri Héraðsskólans í Reykholti og gegndi því starfi til 1979. Þau ár var mikið blómaskeið í sögu skólans í Reykholti og vann Vilhjálmur sér virðingar bæði í röðum nemenda og kennara við skólann. Til marks um tryggð nemenda við hann má geta þess að stór hópur nemenda Vilhjálms úr Reykholti fylgdi læriföður sínum austur á Egilsstaði og lauk þaðan stúdentsprófi. Á Reykholtstíman- um sínum var Vilhálmur um tíma formaður Ungmennasambands Borgarfjarðar og í hópi forgöngu- manna að Húsafellsmótunum. Eftir að starfstímanum í Reyk- holti lauk gegndi Vilhjálmur starfi skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum frá upphafi skólans 1979 til ársins 2001 og vann þar mikið brautryðjandastarf. Eftir það vann hann að stundakennslu við skólann, gaf út bækur og kom að ýmsum verkefnum á Héraði. Eftirlifandi eiginkona Vilhjálms er Gerður Unndórsdóttir, en synir þeirra hjóna eru sex talsins; Rún- ar, Einar, Unnar, Garðar, Hjálmar og Sigmar. Í tilkynningu frá fjöl- skyldu Vilhjálms kemur fram að útför Vilhjálms fari fram frá Hall- grímskirkju í Reykjavík föstudag- inn 10. janúar klukkan 15. mm And lát: Vilhjálmur Einarsson skólameistari Magnús Óskarsson, fyrrverandi kennari og tilraunastjóri á Hvann- eyri, er látinn. Hann lést 28. des- ember, á 93. aldursári. Hann var fæddur á Saurum í Hraunhreppi 9. júlí 1927, sonur hjónanna Ósk- ars Eggertssonar og Guðrún- ar Einarsdóttur, en ólst að mestu upp í Kópavogi þar sem faðir hans var bústjóri. Magnús lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1950 og búfræðikandidatsprófi frá sama skóla árið 1953. Á ár- unum 1953-55 var hann við nám og störf í Danmörku en réðist til starfa við Bændaskólann á Hvann- eyri árið 1955 og starfaði þar all- an sinn starfsferil sem kennari og tilraunastjóri. Magnús var virt- ur og dáður kennari og með sínu hógværa fasi og látlausa viðmóti ávann hann sér virðingu nemenda og traust. Á sviði rannsókna og tilrauna- starfs naut Magnús ekki síður virðingar samferðamanna. Ná- kvæmni í vinnubrögðum og skil- virkni voru hans aðalsmerki. Þá var hann frumkvöðull og óragur við að prófa nýjar og áður óþekkt- ar tegundir einkanlega á sviði matjurta. Hann samdi kennslu- bækur fyrir bændaskólana og rit- aði fjölda greina um jarðrækt og matjurtarækt auk þess að flytja er- indi og fyrirlestra á ráðstefnum landbúnaðarins. Auk starfa sinna við kennslu og rannsóknir var Magnús virk- ur á sviði félagsmála bæði fyrir samfélag sitt og á fagsviði sínu. Hann sat í hreppsnefnd Andakíls- hrepp um sextán ára skeið. Átti sæti í Tilraunaráði landbúnaðar- ins og Búfræðslunefnd um árabil auk fjölda nefnda um margvísleg málefni bæði félagsleg og fagleg. Þar eins og á sviði fræðanna naut hann virðingar og trausts. Með Magnúsi Óskarssyni er genginn einn af máttarstólpum í starfssögu Bændaskólans á Hvann- eyri og frumherji í íslenskri til- rauna- og ræktunarsögu. -Magnús B Jónsson. And lát: Magnús Óskarsson Svala ráðin forstöðumaður Frístundar í Borgarnesi ig sem tómstundafræðingur hjá Grunnskóla Borgarfjarðar frá árinu 2018 auk þess að kenna lífsleikni. Svala starfaði áður í Félagsmið- stöðinni Óðali í Borgarnesi en hún hefur einnig unnið við viðburða- stjórnun, með fötluðum og sinnt störfum sem tengjast stjórnun, starfsmannamálum, fjármálum og rekstri. Alls bárust fimm umsóknir um starfið, að því að greint er frá á vef Borgarbyggðar. mm Afhentu Kidda Jens afrakstur söfnunar Friðarganga var farin í Stykkishólmi að kvöldi Þorláksmessu, mánu- daginn 23. desember síðastliðinn. Gengið var sem leið lá frá Hólm- garði niður á Pláss og var gangan vel sótt. Níundi bekkur Grunnskól- ans í Stykkishólmi hafði kyndla til sölu við upphaf göngunnar og heitt súkkulaði að henni lokinni. Við sama tilefni var einnig veitt viður- kenning fyrir best skreytta húsið í Hólminum. Val á því var einnig í höndum nemenda níunda bekkjar grunnskólans. Niðurstaðan varð sú að best skreytta húsið í Hólminum þótti vera einbýlishús við Hjallatanga 4. Var Dagbjörtu Bæringsdóttur og Guðmundi Gunnlaugssyni og fjöl- skyldu þeirra afhent viðurkenning- arskjal því til staðfestingar. kgk/ Ljósm. sá. Dagbjörtu Bæringsdóttur og Guðmundi Gunnlaugssyni og fjölskyldu þeirra var afhent viðurkenning fyrir best skreytta húsið. Best skreytta húsið í Hólminum Best skreytta húsið í Stykkishólmi, að mati nemenda níunda bekkjar grunn- skólans.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.