Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Qupperneq 18

Skessuhorn - 08.01.2020, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 202018 Björgunarsveitir á Vesturlandi Björgunarsveitir á Vesturlandi Björgunarsveitin Heiðar var stofn- uð í kjölfar slyss í fjárleit haustið 1972 þegar maður að nafni Hreinn Heiðar Árnason lést. Björgunar- sveitin Heiðar er því í raun rek- in sem minningarsjóður um hann. Aðspurður segir Arnar Grétars- son, formaður Björgunarsveitar- innar Heiðars, áherslur sveitarinn- ar fyrst og fremst snúa að vetrar- mennsku. „Eins og hinar sveitirn- ar í kringum okkur erum við í raun í öllu en við vinnum annars mikið saman. Við reynum að vera tilbúin að stökkva til og aðstoða þar sem vantar aðstoð, hvort sem það er á okkar svæði eða ekki. En sjálf erum við þannig staðsett að við leggjum áherslu á að eiga búnað til að að- stoða á veturna, en stór hluti okk- ar verkefna er að aðstoða „sumar- dekkjaklúbbinn“ þegar hann hittist uppi á heiði,“ segir Arnar og bros- ir. Heiðar er með húsnæði í bílskúr undir sundlauginni á Varmalandi. „Þar höfum við með tetrisaðferð- um komið fyrir öllum okkar tækj- um,“ segir Arnar. En tækjakostur sveitarinnar telur stóran snjóbíl, 1991 árgerð af Ford Econoline, 1996 árgerð af Ford pallbíl og To- yota Hilux sem sveitin keypti fyrir þremur árum sem svona aðal jepp- ann. Þá á sveitin tvö ný sexhjól sem voru keypt síðasta sumar, tvo snjó- sleða og nýlega var keyptur dróni með hitamyndavél. Alltaf í gírnum Spurður hver voru stærstu verk- efni sveitarinnar á liðnu ári minn- ist Arnar fyrst á óveðursútkallið fyrir norðan. „Á okkar svæði var útkallið vegna flóðanna um miðj- an september frekar stórt útkall en þá var allt komið á flot. Gekk erf- iðlega að komast að fólki sem var innlyksa við Langavatn. Það hafa verið nokkur útköll á árinu þar sem þurft hefur að aðstoða við að koma slösuðum að sjúkrabíl. Fólk- ið er staðsett frá veg og við kom- um því niður. Svoleiðis útköll hafa til dæmis verið við Glym, Grábrók og á fleiri stöðum,“ segir Arn- ar og bætir því við að björgunar- sveitarmenn séu alltaf í gírnum til að hjálpa ef þörf er á. „Einn félagi okkar kom að rútuslysi í Öræfum síðasta vor og þá fór hann út til að aðstoða. Maður gerir það sem þarf og ef maður er á ferðinni og kem- ur að slysi þá hjálpar maður bara,“ segir Arnar. Ford pallbíll mun draga orkuna „Það hefur verið talsverð endur- nýjun á tækjum hjá okkur undan- farið ár en framundan er Ford pall- bíllinn okkar sem er eitthvað bilað- ur. Ég hugsa að hann muni draga orkuna næstu mánuði og við erum að safna fyrir því til dæmis með að selja flugeldana,“ segir Arnar. Eins og hjá öðrum björgunarsveitum eru fjáraflanir stór partur af starfinu. Hjá Heiðari er sala á neyðarkallin- um, jólatrjám og flugeldum auk þess sem meðlimir sveitarinnar keyra í hús og selja gjafapakka fyrir konu- daginn. „Við seljum nokkuð veg- lega pakka; blóm, sælgæti og gjafa- bréf í Hraunsnef. Þau á Hraunsnefi hafa verið svo elskuleg að gefur okk- ur gjafabréf til að hafa með í pakk- anum,“ segir Arnar. En hvað er að vera björgunar- sveitamaður í huga Arnars? „Þetta er fyrst og fremst skemmtilegt, nema reyndar þegar komið er að alvarleg- um slysum. En þetta er lífsstíll og ofan á það er þetta í raun líka ákveð- in skylda. Þegar maður býr langt frá fjölmennustu svæðunum þá áttar maður sig á að það verður einhver að gera þetta og maður finnur það bara hjá sér að maður verði að taka þátt og gefa af sér í þetta starf,“ segir Arnar. arg Björgunarsveitin Heiðar „Þetta er lífsstíll og ofan á það er þetta í raun líka ákveðin skylda“ Hvert er stofnár sveitarinnar? 1973 Hve margir félagar eru í sveitinni? Ekki alveg vitað Hve margir eru á útkallslista? 42 Hvert er starfssvæði sveitarinnar? Á milli Gljúfurár og Hvítár og upp á Holtavörðuheiði Toyota jeppi Heiðars er aðal bíllinn í flotanum. Ljósm. Heiðar. Arnar Grétarsson stóð vaktina ásamt fleirum í sameiginlegri flugeldasölu Heiðars og Brákar. Eitt stærsta verkefni ársins var björgunarleiðangur í Langadal í gríðarlegum flóðum í kjölfar vatnavaxta. Ljósm. Heiðar. Skessuhorn leit við hjá Björgun- arsveitinni Klakki í Grundarfirði mánudaginn 30. desember síðast- liðinn. Aron Ragnarsson og Guð- bjartur Brynjar Friðriksson stóðu vaktina í björgunarsveitarhúsinu en Ketilbjörn Benediktsson for- maður var ekki við. Blaðamað- ur sló því á þráðinn til Ketilbjarn- ar á þrettándanum, mánudaginn 6. janúar sl. Formaðurinn lýsir Klakki sem nokkuð hefðbundinni björg- unarsveit á landsbyggðinni. „Við reynum að gera sitt lítið af hverju og vera fyrsta viðbragð ef á þarf að halda bæði á sjó og í landi,“ seg- ir Ketilbjörn í samtali við Skessu- horn. Björgunarjeppar Klakks eru tveir, en auk þess á sveitin tvo vél- sleða og tvo báta, sem sagt öll helstu tæki til að bregðast við aðstæðum á láði og legi. Flest verkefni tengd veðri Spurður um helstu verkefni árs- ins 2019 segir Ketilbjörn það hafa verið leit að göngumanni á Hey- dal sem leit hófst að kvöldi mánu- dagsins 30. desember. „Tíu manna hópur frá okkur hefur tekið þátt í þeirri leit, en reyndar ekki allir í einu. Það var stærsta verkefni okkar á síðasta ári,“ segir hann. „En flest verkefni okkar, svona almennt séð, tengjast óveðri; draga bíla sem fest- ast og verðmætabjörgun í vondum veðrum. Slík verkefni eru algengust heilt yfir,“ segir formaðurinn. „Þó hefur mætt töluvert á okkur und- anfarin ár að vera fyrsta viðbragð á Kirkjufelli. Ekki voru mörg útköll þar á síðasta ári, en árin þar tvö á undan voru þau fjölmörg, marg- ir sem slösuðust á göngu og einn- ig urðu dauðsföll í fjallinu,“ segir hann. Spurður um helstu verkefnin sem framundan eru segir Ketilbjörn ekkert hafa verið ákveðið í þeim efnum. „Undanfarið hefur verið fjör í flugeldasölunni og svo er smá þrettándagleði í dag. Alla jafnan tekur síðan við frekar rólegur tími, það er að segja ef veðrið verður ekki þeim mun verra. Það má segja að okkar starfsemi tengist að miklu leyti veðrinu,“ segir hann. Alltaf klár Ketilbjörn hefur tekið þátt í björg- unarsveitarstarfi frá því um miðj- an níunda áratuginn og hefur ver- ið formaður Klakks með smávægi- legum hléum frá árinu 2001. Það er því ekki úr vegi að spyrja þennan reynslubolta hvað felist í því að vera björgunarsveitarmaður? „Björgun- arsveitarmaður þarf að hafa áhuga á þessu og vera reiðubúinn að fórna bæði frítíma sínum og vinnutíma í starfið. Að vera sjálfboðaliði, eins og björgunarsveitarmenn eru, snýst um að vera fórnfús á eigin tíma og alltaf klár að svara kallinu, alltaf til- búinn að fara af stað þegar á þarf að halda,“ segir Ketilbjörn Benedikts- son að endingu. kgk Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði „Snýst um að vera fórnfús á eigin tíma“ Guðni E. Hallgrímsson var léttur í bragði þar sem hann skoðaði úrvalið af flug- eldum hjá Klakki. Hvert er stofnár sveitarinnar? Líklega 1970 Hve margir félagar eru í sveitinni? Um það bil 45 Hve margir eru á útkallslista? 24 Hvert er starfssvæði sveitarinnar? Grundarfjarðarbær og Breiða- fjörður Ketilbjörn Benediktsson er for- maður Björgunarsveitarinnar Klakks í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/ tfk. Guðbjartur Brynjar Friðriksson (t.v.) og Aron Ragnarsson (t.h.) stóðu vaktina í flugeldasölunni þegar Skessuhorn bar að garði.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.