Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2020, Síða 31

Skessuhorn - 08.01.2020, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 8. JANúAR 2020 31 Borgnesingurinn Kristín Sif Björg- vinsdóttir er hnefaleikakona ársins 2019 að því er fram kemur í frétta á vef Hnefaleikasambands Íslands. Er þetta annað árið í röð sem Kristín Sif hreppir þennan titil en hún átti sex viðureignir árið 2019 og sigraði í fjórum þeirra. Kristín hefur mikið farið út til að keppa á stórum mót- um og til að sækja sér aukna kunn- áttu í íþróttinni. Hún vann til silf- urverðlauna á Norðurlandamótinu í hnefaleikum í ár, annað árið í röð og er fyrsta íslenska hnefaleikakon- an til að ná þeim árangri. „Krist- ín hreppti einnig silfurverðlaun á Legacy cup, gríðarlega sterku al- þjóðlegu móti sem haldið var í október síðastliðnum,“ segir í frétt- inni. Þá varð hún Íslandsmeist- ari í -75 kg flokki kvenna. Krist- ín keppir næst á Golden Girl Cup sem er eitt stærsta áhugamannamót heims í hnefaleikum sem fram fer um næstu mánaðamót í Svíþjóð. arg Sameiginlegt Vesturlands- og Vest- fjarðamót í sveitakeppni í bridds var spilað á Akranesi síðastliðinn föstu- dag og laugardag. Á þessu árlega tveggja daga móti er spilað um tit- ilinn Vesturlandsmeistarar í sveita- keppni, en jafnframt er á mótinu spilað um keppnisrétt á Íslands- meistaramóti. Þar eiga fimm sveitir af Vesturlandi keppnisrétt og tvær af Vestfjörðum. úrslit á mótinu urðu afgerandi. Vesturlandsmeist- arar með miklum yfirburðum varð sveit Guðmundar Ólafssonar með 121,72 stig. Með Guðmundi í sveit spiluðu þeir Hallgrím- ur Rögnvaldsson, Karl Alfreðsson og Tryggvi Bjarnason. Í öðru sæti varð Skákfélagið, sveit Guðna Jós- efs, Hlöðvers, Þórarins og Sigurðar Páls, en nokkrir þeirra eiga ættir að rekja á Vestfirðina. Stig þeirra voru 104,11. Í þriðja sæti varð gestasveit úr Reykjavík, sveit Unnars Atla með 101,49 stig. Fjórða varð sveit Einars Guðmundssonar á Akra- nesi með 98,15 stig og fimmta varð gestasveit Guðlaugs Bessasonar með 95,23 stig. Auk fyrrgreindra sigursveita af Vesturlandi öðluð- ust keppnisrétt á Íslandsmóti fyr- ir hönd Vesturlands sveit Ungliða- hreyfingarinnar og sveit KB-Vír- nets. mm Skallagrímskonur mættu Íslands- meisturum Vals í fyrsta leik liðsins eftir jólafrí. Leikið var í Reykjavík á sunnudagskvöld. Um hörkuleik var að ræða, en lokafjórðungnum náðu meistararnir yfirhöndinni og sigr- uðu með tólf stigum, 70-58. Leikurinn fór fremur rólega af stað og Valur leiddi með fjór- um stigum eftir sjö mínútna leik, 10-6. Þá áttu Skallagrímskonur góða rispu og höfðu fjögurra stiga forskot eftir upphafsfjórðunginn, 16-20. Borgnesingar héldu foryst- unni framan af öðrum leikhluta en Valskonur voru aldrei langt und- an. Undir lok fyrri hálfleiks kom- ust þær yfir og leiddu með tveimur stigum í hléinu, 35-33. Skallagrímskonur byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti, náðu forystunni og leiddu lengst framan af þriðja leikhluta. Undir lok leik- hlutans komst Valur hins vegar yfir að nýju og hafði fjögurra stiga for- skot fyrir lokafjórðunginn. Þar réðu Íslandsmeistararnir ferðinni. Valskonur létu forystuna aldrei af hendi, þvert á móti juku þær hægt en örugglega og sigruðu að lokum með tólf stigum, 70-58. Keira Robinson var atkvæðamest í liði Skallagríms með 18 stig, átta stoðsendingar og sjö fráköst. Maja Michalska skoraði 15 stig, Emilie Hesseldal var með ellefu stig og 14 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði níu stig og tók ellefu fráköst og Mathilde Colding-Poulsen skor- aði fimm stig. Kiana Johnson setti upp þrennu í liði Vals, skoraði 16 stig, gaf 14 stoðsendingar og tók 13 fráköst. Hallveing Jónsdóttir skoraði 15 stig einnig, Dagbjört Samúelsdóttir var með 13 stig og Sylvía Rún Hálfdán- ardóttir skoraði ellefu. Skallagrímskonur sitja í fimmta sæti deildarinnar með 16 stig, tveim- ur stigum á eftir Haukum í sæt- inu fyrir ofan. Þessi tvö lið mætast í næstu umferð. Leikur Skallagríms og Hauka fer fram í Borgarnesi í kvöld, miðvikudaginn 8. janúar. kgk/ Ljósm. úr safni/ Skallagrímur. úrslitakeppnin í Futsal fór fram um síðustu helgi. Keppt var í átta liða úrslitum á föstudagskvöldinu. Þar komust áfram lið Afturelding- ar/Hvíta riddarans, Ísbjarnarins, Víkings Ólafsvík og Íslandsmeist- ararnir 2019 Vængir Júpíters. Fjög- urra liða úrslitin voru spiluð á laug- ardeginum. Þar sló Ísbjörninn út íslandsmeistarana í Vængjum Júp- íters með tveim mörkum gegn einu og Víkingur Ólafsvík lagði Aftur- eldingu/Hvíta riddarann í hörku- leik sem endaði 5 - 3 en framlengja þurfti báðum leikjunum þennan dag. Á sunnudeginum fór svo úr- slitaleikurinn fram þar sem Ísbjörn- inn og Víkingur Ólafsvík mættust í hörkuleik og var staðan 1 - 1 eftir venjulegan leiktíma. Var mikill has- ar í framlengingunni þar sem loka- tölur urðu 3 - 5 Víkingi Ólafsvík í vil og þeir því Íslandsmeistarar í Futsal 2020. Víkingur hefur gert góða hluti í innanhússboltanum undanfarin ár og vann Íslandsmótið árin 2015 og 2016. Árið 2017 töpuðu Víkingar fyrir Selfossi í úrslitaleiknum og fyrir Vængjum Júpíters í undanúr- slitum bæði árið 2018 og 2019. þa Knattspyrnukonurnar Erla Karit- as Jóhannesdóttir, Sigrún Eva Sig- urðardóttir og María Björk Ómars- dóttir endurnýjuðu samninga sína við ÍA skömmu fyrir jól. Allar eru þær fæddar árið 2002 og skrifuðu undir samning sem gildir út keppn- istímabilið 2021. Erla Karitas hefur leikið 35 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim fimm mörk. Sigrún Eva á að baki 46 leiki fyrir meist- araflokk, en í þeim hefur hún skor- að tvö mörk og María Björk hefur leikið 27 meistaraflokksleiki með ÍA. „Þetta eru framtíðarleikmenn liðsins og mikil ánægja með að þær séu að framlengja sína samninga,“ segir í frétt á vef KFÍA. kgk Víkingur Ólafsvík er Íslands- meistari í innanhússfótbolta Sigursveitin. F.v. Karl, Guðmundur, Tryggvi og Hallgrímur. Sveit Guðmundar er Vesturlandsmeistari í bridds Kristín Sif Björgvinsdóttir með silfrið á Norðurlandamótinu á síðasta ári. Ljósm. mmafrettir.is/Steinar Thors Kristín Sif hnefaleikakona ársins Tólf stiga tap eftir hörkuleik Unnar Þór Garðarsson þjálfari, Sigrún Eva Sigurðardóttir, Erla Karitas Jó- hannesdóttir, María Björk Ómarsdóttir og Aron Ýmir Pétursson aðstoðarþjálfari. Ljósm. KFÍA. Þrjár framlengja við ÍA

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.