Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2020, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 05.02.2020, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRúAR 202022 Pennagrein Pennagrein Við, sem við Breiðafjörð búum, getum öll verið sammála um það að Breiðafjörður er einstakur. Við hljótum líka öll að vera sammála um það að við viljum passa upp á fjörðinn okkar svo áfram sé hægt að nýta það sem hann hefur upp á að bjóða um ókomna tíð. Við erum þó kannski ekki öll á einu máli um hvaða leiðir væri best að fara í þeirri vegferð. Það er líka alveg eðlilegt, enda er samtalið rétt að hefjast. Í verndaráætlun fyrir Breiðafjörð, sem var samþykkt af ráðherra árið 2015 eftir að hafa farið í umsögn sveitarfélaganna við fjörðinn, eru nefndar nokkrar leiðir til þess að styrkja vernd Breiðafjarðar. Þar á meðal að skrá svæðið á lista Rams- arsvæða yfir alþjóðlega mikilvæg votlendissvæði, tilnefna Breiðafjörð á heimsminjaskrá UNESCO eða að gera Breiðafjörð að þjóðgarði. Hvernig er staðan í dag? Breiðafjörður er verndaður með sérstökum lögum nr. 64/1995 um vernd Breiðafjarðar. Þó talað sé um vernd „Breiðafjarðar“ er í raun að- eins um að ræða eyjar, hólma, sker og strandlengju við innanverðan fjörðinn. Hafbolurinn og hafsbotn- inn liggja utan þessarar sérstöku verndar. Lög um vernd Breiðafjarðar gera ráð fyrir að Breiðafjarðarnefnd sé ráðherra til ráðgjafar um verndar- svæði Breiðafjarðar. Í henni sitja sjö fulltrúar, fjórir tilnefndir af sveitar- félögum, einn af Minjastofnun og einn sameiginlega af Náttúrufræði- stofnun Íslands og Náttúrustofum Vesturlands og Vestfjarða. Formað- ur er skipaður án tilnefningar. Allt frá upphafi hefur sátt ríkt um skip- an fulltrúa í Breiðafjarðarnefnd og hefur nefndin lagt áherslu á mikil- vægi þess að sveitarfélög á svæðinu eigi meirihluta fulltrúa í nefndinni. Breiðafjarðarnefnd hefur einsett sér að nýta árið 2020 í ítarlega sam- ráðsvinnu varðandi framtíð Breiða- fjarðar. Nefndin stóð fyrir málþingi í Tjarnarlundi í Dalabyggð í októ- ber þar sem mögulegar leiðir fyrir framtíð Breiðafjarðar voru kynnt- ar og hverjir væru mögulegir kost- ir þeirra og gallar. Í kjölfarið bauð nefndin til fræðslukvölda í sveitar- félögum á Snæfellsnesi og á næst- unni munu sambærilegir fundir verða haldnir í Dalabyggð, Reyk- hólasveit og Vesturbyggð. Nefndin sér fyrir sér að nýta þessa viðburði til þess að kalla eftir viðbrögðum íbúa, sveitarfélaga, atvinnulífs og annarra hagmunaaðila. Breiðafjarðarnefnd hefur enga ákvörðun tekið um hvaða valkostir henni þykja heppilegir fyrir fjörð- inn. Hún er þó einhuga um að í það minnsta þurfi að endurskoða lög um vernd Breiðafjarðar. Rétt er að árétta að nefndin sjálf tekur engar ákvarðanir um framhaldið en hún getur lagt fram sínar tillögur um málið til ráðherra. Nefndin leggur engar tillögur fram nema að vandlega ígrunduðu máli. Það því von hennar að íbú- ar og aðrir hagmunaaðilar nýti sér viðleitni nefndarinnar til að vinna þessa vinnu faglega og á málefna- legan hátt. Nefndin hvetur alla sem áhuga hafa á að fræðast meira eða koma skoðunum sínum á framfæri að vera í sambandi við Breiðafjarð- arnefnd. Með góðu og málefnalegu samtali eru mestar líkur á því að við getum fundið samhljóm sem tek- ur tillit til mismunandi sjónarmiða varðandi framtíð Breiðafjarðar. Á næstunni mun nefndin halda áfram að fjalla um hugmyndir varðandi framtíð Breiðafjarðar, en nefndin telur ekki seinna vænna en að velta fyrir sér möguleikum sem miða að varðveislu náttúru og menningu svæðisins og því að styrkja enn frekar samfélögin um- hverfis fjörðinn. Með von um gott samstarf, Breiðafjarðarnefnd * (www.breidafjordur.is) Meirihluti bæjarstjórnar Akranes- kaupstaðar hefur ákveðið að byggja nýjan 6-8 deilda leikskóla í Skóg- arhverfi. Líkt og áður hefur komið fram telur undirritaður að umrædd staðsetning sé röng. Ég er ennþá sömu skoðunar. Í dag höfum við tvö skólahverfi fyrir grunnskólana. Skipting barna- fjölda hefur verið um 60% í hverfi Grundaskóla og um 40% í hverfi Brekkubæjarskóla. Skipting búsetu barna á leikskólaaldri eftir hverf- um er í takti við þessa skiptingu en samkvæmt minnisblaði skóla- og frístundasviðs eru 42% leikskóla- barna búsett í hverfi Brekkubæjar- skóla og 58% í hverfi Grundaskóla. Þrátt fyrir þessa skiptingu eru pláss í leikskólunum á þann veg að ein- ungis um 17% þeirra eru í hverfi Brekkubæjarskóla en 83% í hverfi Grundaskóla. Það er einungis einn þriggja deilda leikskóli í hverfi Brekkubæjarskóla. Með ákvörðun um byggingu nýs leikskóla í Skóg- arhverfi versnar staðan enn frekar. Þess má geta að leikskólinn Akrasel er aðeins í nokkur hundruð metra fjarlægð frá fyrirhugaðri staðsetn- ingu hins nýja leikskóla. Í dag er akstursleið að tilvon- andi leikskóla eftir þröngum íbúa- götum. Gera má ráð fyrir miklum um- ferðarþunga á álagstímum um Asp- arskóga og næsta víst að mikið um- ferðaröngþveiti verður svo erfitt verður að komast um Skógarhverf- ið og jafnvel gæti umferð um Flata- hverfi þyngst. Í væntanlegu skipulagi fyr- ir Skógarhverfið er gert ráð fyrir að um síðir komi vegtenging út á Þjóðbraut. Þá fyrst mun umferð á álagstímum verða nokkurn veginn í lagi. Ein af höfuðröksemdum staðar- vals nýja leikskólans var að umrædd lóð væri tilbúin til byggingar. Það liggur auðvitað í augum uppi að lóð sem ekki er hægt að komast til og frá nema í gegnum umferðaröng- þveiti í íbúðagötum Skógarhverfis getur alls ekki talist tilbúin og því síður heppileg. Að vísa til úrbóta sem þurfa stuðning Vegagerðar- innar og vinnuhraða hennar er ekki boðlegt fjölskyldufólki á Akranesi og íbúum Skógar- og Flatahverfis. Það er því bjarg- föst skoðun mín að í uppsiglingu sé mikið skipulagsslys í Skógarhverfi sem á eftir að verða mjög íþyngj- andi fyrir stóran hluta íbúa Akra- ness. Slys gera að jafnaði ekki boð á undan sér en þetta slys er fyrir- sjáanlegt. Þessi ákvörðun meirihluta bæjar- stjórnar er því afar óheppileg, svo ekki sé meira sagt. Verra er þó að fleiri skipulagsslys virðast í uppsigl- ingu í Skógarhverfi. Meira um það síðar. Einar Brandsson Höf. er bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi. Framtíð Breiðafjarðar Eyjafé sótt í Sellón á Breiðafirði. Ljósm. úr safni: Sumarliði Ásgeirsson. Skipulagsslys í Skógarhverfi Asparskógar séð út á Ketilsflöt. Mynd frá google.com/maps.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.