Skessuhorn - 05.02.2020, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRúAR 2020 17
Agnes M. Sigurðardóttir biskup
Íslands hóf vísitasíu sína í Vestur-
landsprófastsdæmi með heimsókn
í Grunnskólann í Borgarnesi síð-
astliðinn fimmtudagsmorgun. Með
henni í för voru Þorbjörn Hlynur
Árnason prófastur Vesturlandspró-
fastsdæmis og Þorvaldur Víðisson
biskupsritari. Gestirnir skoðuðu
skólann í fylgd skólastjórnenda og
heilsuðu upp á nemendur og kenn-
ara. Eftir hádegið var guðsþjónusta
í Brákarhlíð í Borgarnesi og um
kvöldið predikaði biskup við messu
í Borgarneskirkju. Á föstudaginn
hófst svo dagskráin með heimsókn
í Akrakirkju, síðan í Álftártungu-
kirkju og loks í Álftaneskirkju.
Vísitasía biskups hélt svo áfram
á sunnudaginn með heimsókn í
hið nýja Garða- og Saurbæjar-
prestakall. Biskup kom við í öllum
kirkjum prestakallsins; Akranes-
kirkju, Leirárkirkju og Hallgríms-
kirkju í Saurbæ sunnudaginn 2.
febrúar en í Innra-Hólmskirkju á
mánudeginum. Sama dag heimsótti
biskup Dvalarheimilið Höfða og
Fjöliðjuna á Akranesi.
Vísitasía biskups heldur svo
áfram um prófastsdæmið síðar í
þessari viku. Næst verður ferðinni
heitið á Hvanneyri á föstudag og
farið í heimsóknir í skóla staðar-
ins, kirkjuna og síðdegiskaffi verð-
ur í Skemmunni. Klukkan 18 verð-
ur aftansöngur í Hvanneyrarkirkju.
Á laugardaginn vísiterar biskup
Lundarkirkju klukkan 10 og Bæjar-
kirkju klukkan 11. Reykholtspresta-
kall verður síðan heimsótt dagana
9.-10. febrúar. Meðal annars verð-
ur hátíðarmessa í Reykholtskirkju á
sunnudaginn klukkan 14.
mm
Biskup á ferð og flugi um prófastsdæmið
Séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur á Borg og Agnes M Sigurðardóttir biskup.
Ljósm. þv. Vísitasía biskups hófst á fimmtudaginn í Grunnskólanum í Borgarnesi þar sem þessi mynd var tekin. Ljósm. þv.
Björn Bjarki Þorsteinsson framkvæmdastjóri á Brákarhlíð bætti heldur betur
í reynslubankann þegar hann hjálpaði til við að skrýða prófast fyrir messu í
Brákarhlíð á fimmtudaginn. Ljósm. Vignir Sigurþórsson.
Gengið til hátíðarmessu í Akraneskirkju sl. sunnudag. F.v. Agnes Sigurðarsdóttir,
sr. Jón Ragnarsson, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir djákni og fyrir aftan hana sr. Þráinn Haraldsson sóknarprestur í
Garða- og Saurbæjarprestakalli. Ljósm. ki.
Að aflokinni hátíðarguðsþjónustu var myndataka á kirkju-
tröppunum. Ljósm. ki.
Á mánudagsmorgun var farið í heimsókn á Höfða, hjúkr-
unar- og dvalarheimili. Hér er rætt um Gústa guðsmann.
Ljósm. ki.
Spjallað saman í iðjunni á Höfða. Ljósm. ki.
Sigrún Clausen íbúi á Höfða tók á móti biskupi. Urðu
fagnaðarfundir en Sigrún hafði sem barn verið í sveit hjá afa
Agnesar. Ljósm. ki.
Í heimsókn í Fjöliðjunni á Akranesi var komið við í
dósamóttökunni. F.v. Guðmundur Páll Jónsson, Áslaug
Þorsteinsdóttir, Agnes M Sigurðardóttir og Jóhanna Nína
Karlsdóttir. Ljósm. mm.
Litið upp frá verkum. Þau voru að pakka Prins Pólói þegar
biskup heimsótti Fjöliðjuna. Ljósm. mm.
Spjallað saman í iðjunni á Höfða. Ljósm. ki.
Heilsað upp á starfsfólk Fjöliðjunnar. Ljósm. mm.