Skessuhorn - 18.03.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 13
Covid 19
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Óskað eftir tilboðum í verkið
„Límtrésburðarvirki, klæðningareiningar
og ytri frágangur“
Fasteignafélag Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í
Reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra á Akranesi. „Límtrés-
burðarvirki, klæðningareiningar og ytri frágangur“.
Verkið felst í hönnun og afhendingu á límtrésburðarvirki,
festingum og tilheyrandi aukabúnaði til samsetningar og
frágangi á burðarvirki og ytra byrði byggingarinnar.
Verklok 1. október 2020.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda
tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem
fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, og nafn, netfang og
símanúmer tengiliðs bjóðanda.
Tilboð verða opnuð í Stjórnsýsluhúsi Akraness, Stillholti 16-18,
300 Akranes, þriðjudaginn 7. apríl 2020 kl. 12.00.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Viðbrögð hjá Akraneskaupstað í
tengslum við samkomubann
Akraneskaupstaður heldur úti upplýsingasíðu um viðbrögð
stofnanna bæjarins hvað varðar COVID-19 og samkomubann.
Upplýsingar er að finna hér www.akranes.is/covid-19
Stjórnendur í Menntaskóla Borg-
arfjarðar í Borgarnesi brugðust
snöggt við á föstudaginn þegar
stjórnvöld voru búin að gefa það út
að samkomubann yrði sett frá og
með mánudegi og að framhalds-
skólum væri ekki leyft að starfa með
hefðbundnu sniði þannig að nem-
endur mættu í skóla sína. Nemend-
ur voru kallaðir á sal og útskýrt það
fyrirkomulag sem yrði á kennslu
við skólann næstu vikurnar. Því
hófst fjarkennsla strax síðastliðinn
mánudagsmorgun og ekkert rof
varð á starfseminni.
Í frétt á föstudaginn sagði á vef
skólans: „Við í MB ætlum og mun-
um halda ótrauð áfram okkar námi
og kennslu. Við ætlum ekki að
láta þessar breyttu aðstæður koll-
varpa okkar áætlunum um fram-
gang í námi. Kennsla mun halda
áfram á námsvef Moodle, í gegn-
um Teams, með samskiptaforrit-
um svo sem FB og fleiru. Kennar-
ar munu ekki allir nota alveg sömu
tækni en munu kynna ykkur nem-
endum þá leið sem hentar þeim og
þeirra námsefni.“ Þá segir að skól-
inn muni halda áfram að vinna eftir
kennsluáætlun sem fyrir liggur, en
mögulega verða gerðar breytingar
en kennari tilkynnir það þá. Kenn-
ari verður „online“ á þeim tíma
sem kennslustund á að vera sam-
kvæmt stundaskrá, mæting verð-
ur tekin á þeim tíma sem kennslu-
stundir eiga að vera og verkefnaskil
verða óbreytt eins og verið hefur.
Hins vegar verður skólinn lokaður
nemendum. Starfsfólk má mæta til
vinnu og vera í skólanum og starfa.
mm
Íslenskir ferðamenn á Spáni fá ekki
að njóta náttúrunnar og útiveru
eins og til stóð eftir að þarlend yf-
irvöld settu á útgöngubann um
helgina. Nú bíða því flestir ferða-
langar eftir að komast í fyrsta flug
heim. „Þetta eru ótrúlega öðruvísi
dagar sem við erum að upplifa núna
og í raun bara beðið eftir að skoða
heimferð á allra næstu dögum, en
samkvæmt bókun þá hefðum við
átt að vera hér úti til 24. mars. Nú
hefur í raun öllu verið lokað nema
auðvitað herbergjum, matsal og
nokkrum öðrum svæðum. Þetta er
sannarlega eitthvað sem maður er
að upplifa í fyrsta skiptið,“ sagði
Gunnar Svanlaugsson skemmt-
anastjóri hjá Heimsferðum í ferð-
um sextíu ára og eldri. Rætt var við
hann á mánudaginn, þar sem hann
dvelur á spænsku eyjunni Tenerife
með hóp fólks. Hann hefur auk
þess verið skemmtanastjóri í ferð-
um Heimsferða til Benidorm og
Gran Canaria.
„Ég hef verið að fara svona 5-6
sinnum á ári, þ.e. frá september og
fram í maí. Ótrúlega gefandi og
um leið skemmtilegt starf sem mér
bauðst fljótlega eftir að ég hætti í
grunnskólastarfinu eftir fjóra ára-
tugi, þ.e. átta ár í Reykholti og 32
ár í Stykkishólmi,“ segir Gunnar
fyrrum skólastjóri Grunnskólans í
Stykkishólmi í samtali við Skessu-
horn.
mm
Vilhjálmur Egilsson rektor Háskól-
ans á Bifröst segir að skólastarf-
ið á Bifröst truflist lítið sem ekkert
þrátt fyrir „lokun“ háskóla. „Fjar-
námið er stóra skýringin og ástand-
ið sannar gildi fjarnámsins. Vinnu-
helgi sem átti að vera um síðustu
helgi var öll færð á Teams fundi
sem gafst vel að því er ég best veit.
Skrifstofa skólans starfar í fjarvinnu
eins og þarf og Háskólinn á Bifröst
er nánast að verða „virtual institu-
tion“ þessar vikurnar,“ skrifaði Vil-
hjálmur á laugardag í tíðindafrétt af
ástandinu í Norðurárdal. mm
Bjarni Traustason kennari sat einn við tölvuna í skólastofnunni á mánudags-
morgni og kenndi nemendum sem voru heima.
Ljósm. Veronika Guðrún Sigurvinsdóttir.
Bjuggu nemendur strax á föstu-
daginn undir breytt fyrirkomulag
Skólastarfið á Bifröst
truflast nánast ekkert
Gunnar Svanlaugsson í heimabæ
sínum. Ljósm. úr safni/sá.
Ótrúlega öðruvísi dagar
FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF
Til leigu strax
Frábær staðsetning á Akratorgi. Skrifstofuhúsnæði.
Tæplega 90 fm skrifstofu/verslunarrými á besta stað við Akratorg í miðbænum við helstu
verslunargötu bæjarins. Rýmið er opið og bjart, flísalögð snyrting í húsnæðinu.
Húsnæði með stórum gluggum og góðu aðgengi. Langtímaleiga í boði fyrir réttan aðila.
Tilvalið tækifæri fyrir samhenta aðila að samnýta rýmið sem skrifstofur.
Húsnæðið er ekki skráð með frjálsri skráningu.
Trygging er andvirði þriggja mánaða húsaleigu í formi bankaábyrgðar. Húsnæðið er laust
strax. Óskað er eftir skilvísum og traustum leigjanda.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á skrifstofu Valfells.
Hákon Svavarsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi
Sími 570-4824, fax 570-4820, gsm 898-9396