Skessuhorn - 18.03.2020, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202014
Sveitarstjórn Reykhólahrepps sam-
þykkti á fundi sínum þann 25.
febrúar sl. umsókn Vegagerðarinn-
ar um framkvæmdaleyfi fyrir gerð
Vestfjarðavegar milli Bjarkarlund-
ar og Skálaness. Fyrirhuguð fram-
kvæmd felst í lagningu Vestfjarða-
vegar frá Bjarkalundi að Skálanesi,
byggingu nýs Djúpadalsvegar með
austanverðum Djúpafirði og end-
urbyggingar Gufudalsvegar í vest-
anverðum Gufufirði, ásamt efnis-
töku fyrir framkvæmdum og frá-
gangi að framkvæmdum loknum,
eins og segir í auglýsingu sveitar-
félagsins. Framkvæmdaleyfið og
öll gögn málsins eru aðgengileg á
heimasíðu Reykhólahrepps undir
flipanum „Vesfjarðavegur (60)“.
Þá vekur sveitarstjóri athygli á
því að ákvörðun sveitarstjórnar
um veitingu framkvæmdaleyfis er
kæranleg til úrskurðarnefndar um-
hverfis- og auðlindamála. Kæru-
frestur er einn mánuður frá birt-
ingu auglýsingar um leyfið.
Á fréttavefnum bb.is kom fram í
síðustu viku að Magnús Valur Jó-
hannsson, framkvæmdstjóri hjá
Vegagerðinni, sæi ekki nein vand-
kvæði á því að hægt yrði að upp-
fylla þau skilyrði sem sveitarstjórn
setur við útgáfu starfsleyfis. Haft
var eftir honum að varðandi samn-
inga við landeigendur hafi ekki enn
náðst samband við eigendur að
Hallsteinsnesi og Gröf og stefnir í
að beita verði eignarnámsheimild
til þess að geta hafið framkvæmdir.
Er stefnt að því sem fyrst. „Magn-
ús telur ekki verði vandamál að ná
samningum við aðra landeigendur,
þar snúist viðræður um fjárhæðir
og hafi gengið ágætlega og er bú-
ist við því að þeim ljúki farsællega
fljótlega,“ segir í frétt bb.is um mál-
ið.
mm
Lögreglan á Vesturlandi hefur
gripið til ýmissa ráðstafana vegna
COVID-19 faraldursins. Eng-
inn samgangur er á milli lög-
reglustöðvanna sex í umdæm-
inu. Þar að auki hefur stöðinni
á Akranesi verið skipt upp í tvö
hólf og ekki er samngangur þar
á milli. Yfirlögregluþjónn og að-
stoðaryfirlögregluþjónn munu
skiptast á að vinna heima, viku í
senn, næstu vikurnar. Ásmundur
Kr. Ásmundsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn var einmitt heima að
vinna þegar Skessuhorn ræddi við
hann í gær. „Við erum að reyna
að tryggja að við getum alltaf ver-
ið með órofinn rekstur, komi til
þess að lögreglumenn smitist, því
við þurfum alltaf að gera út lög-
reglu,“ segir Ásmundur. „Það er
gott að geta leyst til dæmis mitt
starf og yfirlögregluþjóns þann-
ig að við vinnum heiman frá okk-
ur til skiptis, viku og viku. En
svo fer ég út á vakt á lögreglubíl
ef þannig ástand skapast og við
missum menn í sóttkví eða veik-
indi. Þá fara yfirmennirnir út. Við
erum þannig hálfgert varalið, því
grunnlöggæslan getur ekki hætt,
það verða alltaf einhverjir að vera
úti á bílunum,“ segir hann.
Hann segir að eitt og annað í
daglegu starfi lögreglu hafi tekið
á sig breytta mynd. Við umferð-
areftirlit, þegar höfð eru afskipti
af fólki, er talað við það á með-
an það situr í eigin bíl og reynt
að halda ákveðinni fjarlægð sam-
kvæmt tilmælum á meðan sam-
talinu stendur. „En haldið er uppi
allri frumkvæðislöggæslu engu að
síður. Við erum að fygljast með
umferðarhraða og öðru eins og
vanalega,“ segir Ásmundur.
Geta sótthreinsað
bílana
Auk þess segir Ásmundur að búið sé
að koma upp sótthreinsiaðstöðu fyr-
ir lögreglu- og sjúkrabíla að Þjóð-
braut 13 á Akranesi, í hluta þess rým-
is þar sem Vínbúðin var áður til húsa.
Lögreglan hefur fengið það rými og
framundan er stækkun lögreglustöðv-
arinnar. „Þar bætast 280 fermetrar
við og stefnan er að stækka stöðina á
Akranesi. Það verður kærkomið, því í
dag er ekki fullnægjandi búnings- eða
sturtuaðstaða á stöðinni og ýmislegt
sem vantar upp á,“ segir hann.
Lögregla hefur ekki fengið hús-
næðið afhent, en Ásmundur seg-
ir að stjórnendur Vínbúðarinnar
hafi tekið vel í að lána lögreglunni
húsið þegar í stað til að koma upp
sótthreinsiaðstöðu til bráðabrigða.
„Búið er að útbúa rými þannig að
hægt er að keyra sjúkra- eða lög-
reglubíla inn, loka á eftir og hefja
sótthreinsun bíla og eftir atvikum
biðtíma viðkomandi lögreglu- eða
sjúkraflutningamanna,“ segir hann.
„Við erum þannig með húsnæðið í
láni en fáum það svo afhent seinna,“
segir Ásmundur að endingu.
kgk
Enn ein brælan skall á hjá sjó-
mönnum við Breiðafjörð í byrjun
vikunnar. Notaði áhöfnin á drag-
nótarbátnum Gunnari Bjarnasyni
SH því tímann í gær til að bæta og
yfirfara dragnótina eftir veiðiferð
mánudagsins. Margir bátar voru á
sjó á mánudag, þegar leiðindaveð-
ur skall á eftir hádegið; talsverð-
ur vindur, hríð og mikil ölduhæð
á firðinum. Þurftu nokkrir minni
línubátar að hætta veiðum vegna
veðurs og skilja línuna eftir í sjó.
Þrátt fyrir veðrið var afli bátanna
mjög góður. Netabáturinn Bárður
SH var með 56 tonn og dragnót-
arbáturinn Magnús SH 38 tonn.
Mjög fáir bátar voru á sjó í gær
vegna brælu.
af
Enginn samgangur milli lögreglustöðva
Komið hefur verið upp sótthreinsiaðstöðu fyrir lögreglu- og sjúkrabíla að Þjóðbraut 13 á Akranesi í rýminu við hlið lögreglustöðvarinnar, þar sem Vínbúðin var áður til
húsa.
Covid 19
Teigsskógur. Ljósm. úr safni.
Auglýsa framkvæmdaleyfi
vegna Vestfjarðavegar
Hún var óárennileg innsiglingin í Ólafsvíkurhöfn í gærmorgun í norðaustan
stormi.
Notuðu bræluna til
að yfirfara nótina
Áhöfnin á Gunnari Bjarnasyni SH bætti og yfirfór dragnótina í Ólafsvík.