Skessuhorn - 18.03.2020, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202016
Margrét Jónsdóttir Njarðvík var
ráðin í starf rektors Háskólans á
Bifröst í ársbyrjun. Hún tekur við
starfinu 1. ágúst næstkomandi en
hefur verið iðin þetta misserið við
að hitta starfsfólk og stjórnendur
skólans og hagsmunaaðila og setja
sig inn í starf rektorsins. Skessu-
horn hitti Margréti að máli síð-
astliðinn fimmtudag og ræddi við
hana um hana sjálfa og nýja starfið
sem hún tekur við í haust.
Tengir við ræturnar
Margrét rekur ættir sínar í Borgar-
fjörðinn og segist meðal annars þess
vegna spennt fyrir að taka við rekt-
orsstöðu á Bifröst. „Það gefur mér
tækifæri til að tengja við ræturnar
mínar,“ segir hún. „Pabbi fæddist í
Fljótstungu og ég var alltaf í sveit á
Húsafelli þegar ég var lítil. Við vor-
um eiginlega alin upp í einni hrúgu,
Húsafellskrakkarnir og við systkin-
in. Við erum sex og þau eru fimm,
við fimm stelpur og einn strákur
en þau fjórir strákar og ein stelpa.
Þetta var ótrúlega skemmtileg súpa
af krökkum,“ segir Margrét og
brosir. „Taugar mínar liggja hingað
í héraðið,“ segir hún. „Undanfarin
þrjú ár hef ég búið á Siglufirði, ég
giftist manni þar í töku tvö,“ segir
hún og brosir. „Hann heitir Hálf-
dán Sveinsson og er fæddur í Borg-
arnesi. Núna erum við bæði að
koma í héraðið sem okkur þykir af-
skaplega vænt um,“ segir Margrét,
en framundan eru búferlaflutning-
ar að Bifröst. „Bifröst er yndisleg-
ur staður og ég hlakka til að flytja
þangað.“
Víðtæk reynsla
Margrét býr yfir mikilli reynslu
af háskólastarfi og menntamál-
um. „Ég hef unnið í menntakerf-
inu í 25 ár, er með doktorspróf í
spænsku frá Princeton og er höf-
undur spænsk/íslensk - íslensk/
spænsku orðabókarinnar,“ segir
hún. „Ég var yfir spænskunáminu
í Háskóla Íslands eftir að ég kom
heim úr námi frá Bandaríkjun-
um. Árið 2003 fór ég yfir í Háskól-
ann í Reykjavík, þegar ég uppgötv-
aði að ég er frumkvöðull og þrífst
ekkert rosalega vel í ríkisumhverf-
inu,“ segir Margrét. Í HR lauk hún
MBA námi en færðist smám sam-
an meira yfir í stjórnun og var falið
að stofna alþjóðasvið HR árið 2007
og veitti hún því forstöðu fram til
2011. „Árið 2011, í kringum þessi
erfiðustu ár eftir hrunið, vorum við
margir forstöðumennirnir í HR
kurteisislega látnir fara. Þá stofnaði
ég ferðaskrifstofuna Mundo og það
hefur verið ævintýri,“ segir Mar-
grét. „Þar bjó ég til fyrirtæki utan
um sjálfa mig, gerði bara það sem
mér þykir skemmtilegt, er góð í og
hef menntun til,“ bætir hún við.
Mundo sérhæfir sig meðal annars í
þjálfunarferðum íslenskra kennara
erlendis, skiptinámi fyrir bæði ung-
menni og fullorðna, sumarbúðum
unglinga erlendis, ferðum á Jakobs-
veg, auk þess að annast ráðgjöf í al-
þjóðamálum.
„Látið mig bara hafa
þennan skóla“
„Það er gaman að segja frá því núna
að árið 2010 eyddi ég sumarfríinu
mínu í mögulega sameiningu HR
og Háskólans á Bifröst. Og ég man
að ég hugsaði eiginlega allan tím-
ann; „við skulum ekkert vera að
þessu, látið mig bara hafa þennan
skóla“,“ rifjar hún upp og hlær við.
„Svo líða tíu ár. Staða rektors á Bif-
röst var auglýst. Ég var hvött til að
sækja um og hér er ég,“ segir hún
en bætir því við að það hafi ekki
verið auðveld ákvörðun að skipta
um vettvang. „Ég var ekki að leita
að vinnu. Ég er í rosalega góðum
málum, lífið er mjög skemmtilegt
hjá Mundo og ævintýri á hverjum
degi,“ segir Margrét. „En ég ákvað
að slá til og halda uppi þeim merkj-
um mínum að ég vil alltaf lifa í
vexti. Mig hefur alltaf langað þetta,
ég vil áskoranir og ákvað að láta
slag standa,“ segir hún og kveðst
full eftirvæntingar fyrir nýju starfi.
„Skólinn er núna kominn rétt-
um megin við núllið og ég tek við
mjög góðu búi af Vilhjálmi Egils-
syni sem kemur mér af miklu örlæti
inn í starfið. Það er mikið sóknar-
færi fyrir hugmyndaríka manneskju
að koma inn og gera skemmtilega
hluti. Ég ætla að gera það og það
er frábær áskorun núna að laða að
skólanum besta starfsfólkið og for-
vitnustu nemendurna. Það er þann-
ig sem allir græða.“
Hugmyndarík
manneskja
Margrét lýsir sjálfri sér einmitt sem
mjög hugmyndaríkri manneskju.
„Ég er ein af þeim sem fær svona
200 nýjar hugmyndir á dag,“ seg-
ir hún. „En ég er ólíkindatól sem
frumkvöðull því ég klára það sem
ég byrja á,“ segir hún og hlær við.
„En það er kostur að fá margar hug-
myndir því ég vel úr þeim og fram-
kvæmi þær sem virka,“ bætir hún
við. Hún segist sjá ýmsa spennandi
möguleika og finnst vanta ýmsar
námsleiðir í menntakerfið. Margrét
kveðst vera komin með langan lista
yfir spennandi námsleiðir sem hana
langar að koma á fót á Bifröst. „Ég
hef mikinn áhuga á öllum litlum
fjölskyldufyrirtækjum sem eru hér
um allt, hvort sem er í landbún-
aði eða ferðaþjónustu og sé mikla
samstarfsmöguleika við Háskólann
á Hólum og Landbúnaðarháskól-
ann. Það er eitthvað sem ég mun
strax líta mjög sterkt til við mótun
nýrra námsleiða. Til dæmis þykir
mér vanta stjórnunarnám með sér-
stakri áherslu á ferðaþjónustu. Nú
horfum við fram á að greinin er á
leið inn í kreppu og kannski ein-
mitt tíminn til að bjóða upp á slíkt
nám. Það sýndi sig heldur bet-
Mörg spennandi tækifæri fyrir Háskólann á Bifröst
- rætt við Margréti Jónsdóttur Njarðvík, sem tekur við rektorsstöðunni í haust
Margrét Jónsdóttir Njarðvík tekur við starfi rektors Háskólans á Bifröst 1. ágúst næstkomandi. Ljósm. kgk.
„Bifröst er yndislegur staður og ég hlakka til að flytja þangað,“ segir Margrét. Ljósm. úr safni/ Árni Sæberg.