Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Síða 17

Skessuhorn - 18.03.2020, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 17 Borgfirskir verktakar hafa með hlé- um frá því síðasta haust unnið við að grafa nýjan íshelli í Langjökul sem ætluð er til geymslu fyrir tæki og tól sem fylgja útgerð jöklaskoð- unarfyrirtækisins Into the Glacier. Verkið var unnið þannig að nýtt op var grafið inn í jökulinn skammt frá opinu sem ferðamenn fara um. Eft- ir að búið var að fullgera geymsl- una var endað á að gera innangengt í vélageymsluna frá ísgöngunum. Nýja vinnsluopið mun svo lokast næst þegar snjóar en það er fóðr- að að innan með röri eins og notuð eru í stærri vegræsi. Samhliða þess- ari framkvæmd hefur í vetur verið unnið við það á nóttinni að víkka sjálf ísgöngin. Gunnar Konráðsson tók að sér þessi verkefni en auk hans kemur að vinnunni Einar Steinþór Trausta- son og fleiri verktakar úr héraði. Vinnan við að grafa út geymslu- na byrjaði síðastliðið haust en eft- ir mikla snókomu og skafrenning á jöklinum í vetur varð að gera hlé á mokstrinum. Nýverið var svo hafist handa af krafti við mokstur og bo- run inn í íshelluna og lauk verkef- ninu um liðna helgi. mm/ Ljósm. est Til hægri er opið í vélageymsluna og til vinstri leiðin inn í ísgöngin. Grafa vélageymslu í jökulinn Nýr munni í vélageymsluna verður til. Grafið innan úr jökulstálinu með gröfu en sérstakur ísbor er framan á bómunni. Með síðustu verkunum var að gera innangengt milli ísganganna og nýju geymslunnar. ur í hruninu að það borgaði sig að beina fólki í nám, hvetja það til að nota tímann á meðan þjóðfélagið gekk í gegnum erfitt tímabil,“ segir hún. „Svo hef ég gífurlegan áhuga á að bjóða upp á gott hagnýtt fjar- nám á háskólastigi í íslensku fyr- ir útlendinga. Þeir eru orðnir 15% landsmanna en sú íslenska sem er í boði fyrir útlendinga á háskóla- stigi í dag er mjög fílólígísk, bygg- ist á bókmenntum og málvísindum. Mig langar að bjóða þessum hópi upp á hagnýtara nám,“ segir Mar- grét. „Ég er líka mjög upptekin af þjónustu við landsbyggðina. Það skiptir gífurlega miklu máli fyrir þá sem búa úti á landi að hafa góðan aðgang að námi. En ég ætlaði nú ekki að fara að telja allt upp sem mér hefur dottið í hug, látum verk- in tala,“ segir hún létt í bragði. Ekkert breytist á einni nóttu Nýjum námsleiðum verður ekki komið á fót á einni nóttu, langt því frá. Þó Margrét hafi fengið margar hugmyndir og sjái mörg spennandi tækifæri ætlar hún ekki að marsera inn á Bifröst með langan lista af nýj- um áherslum fyrsta daginn. „Núna er ég á þeim stað að ég er að læra, lesa í hópinn og kynnast fólkinu. Það er mjög gott starfsfólk á Bifröst og ég er að reyna að sjá hvað hóp- urinn býður upp á og hvert starfs- fólkið vill fara með námið. Það er nú bara þannig að leiðtogi verður að lesa vel í hópinn og passa að all- ir séu í réttum blómapotti,“ segir Margrét. „Þannig að þangað til ég tek við 1. ágúst þá mun ég hlusta og horfa og læra. Þegar dagurinn renn- ur upp mun ég stíga inn í nýtt starf af allri minni auðmýkt og vanda mig eins og ég mögulega get,“ seg- ir hún og sér fyrir sér að byggja á því sem vel er gert fyrir. „Í dag er Bifröst besti fjarnámsskóli landsins. Það er ofboðslega vel staðið að fjar- náminu. Það hentar nútímalífinu vel. Mastersnámið hefur vaxið gíf- urlega mikið og ekki síst í fjarnámi, enda hentar það fólki vel,“ seg- ir hún en bætir því við að stöðugt þurfi að hafa samfélagsbreytingar í huga. „Það er töluverður kynsló- ðamunur milli mín og þeirra sem eru að byrja í háskóla í dag og meira að segja er smá munur á þeim sem eru að byrja í dag og þeim sem hófu sína háskólagöngu fyrir tíu árum, svona heilt yfir. Hverju eru þess- ir krakkar í dag að leita að í náms- framboði?,“ spyr Margrét. „Það er í ótrúlega mörg horn að líta. Að sama skapi langar mig að útbúa námskeið fyrir eldra fólk, sem hef- ur lítið verið í háskólanámi í gegn- um tíðina svona almennt séð. Við stöndum frammi fyrir því að í dag er allt öðruvísi fólk að fara á eftir- laun en áður. Þetta fólk er ekki að fara beint í föndur, það er að fara í aðra hluti. Við höldum áfram að eldast og verðum hressari lengur en áður. Hvað ætlar fólk sem má búast við því að lifa í minnst 20 ár eftir að það fer á eftirlaun að gera þeg- ar starfsævinni lýkur? Ég held að háskólanám sé eitthvað sem koma skal í þeim efnum. Þó ekki nema að opna betur á þann möguleika,“ veltir Margrét upp. Hver veit nema hvatningin ein myndi skila tölu- verðum fjölda eldra fólks í háskóla- nám. Aðeins ein leið er til að kom- ast að því. Valdeflandi aðstæður Bakgrunnur Margrétar í mennt- málum kemur úr tungumálanámi. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvers vegna hún ákvað að leggja spænskunám fyrir sig á sínum tíma. Hún segir að það megi rekja til þess þegar hún fór sem skiptinemi til Spánar á unglingsárunum. „Ég var þar hjá yndislegri fjölskyldu. Ég fór fyrir 36 árum og mamma mín spænska er besta vinkona mín í dag,“ segir hún og brosir. „Ég var hjá henni um daginn og hún hefur oft komið til mín og var til dæmis svaramaður í brúðkaupinu mínu,“ bætir hún við. „Þessi reynsla mín sem skiptinemi hafði gífurlega mik- il áhrif á það hvernig ég hugsaði og hvað ég gerði og breytti mörgu í lífi mínu til hins betra,“ segir Margrét. En hvað er það við skiptinámið sem gerir það að verkum? „Með skipti- námi fá krakkar tækifæri til að vaxa mjög mikið á skömmum tíma. Að ná valdi á öðru tungumáli, jafnvel tala það reiprennandi, hefur jákvæð áhrif á sjálfsmyndina. Skiptinám er svolítið ferðalag hetjunnar, því ef okkur tekst að sigrast á einhverju og vaxa svona þá er hægt að yfirfæra þá reynslu á svo margt annað í líf- inu,“ segir hún. „Það er mikilvægt fyrir ungt fólk að fá tækifæri til að vaxa á eigin forsendum og skera sig svolítið úr fjöldanum,“ segir Mar- grét og bætir því við að það heilli hana jafnframt við nýja starfið á Bifröst. „Þarna hef ég tækifæri til að skapa valdeflandi aðstæður fyrir ungt fólk, aðstæður sem stækka fólk og fá það til að vinna með styrkleik- ana sína í stað þess að rýna í veik- leikana. Það er það sem færir okk- ur áfram,“ segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík að endingu. kgk Nemendur við háskólann. Margrét segir miklu skipta fyrir íbúa landsbyggðarinnar að hafa greiðan aðgang að námi. Ljósm. úr safni/ Háskólinn á Bifröst. Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Ljósm. úr safni/ Rolando Diaz.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.