Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Síða 18

Skessuhorn - 18.03.2020, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202018 Systurnar Ólöf Helga og Margrét Þóra (kölluð Gréta) Jónsdætur hafa alla tíð verið mjög nánar, enda bara eitt skólaár milli þeirra. Þær eiga sömu áhugamál, sömu vinkonur og fóru báðar í sama nám. Eftir að þær luku grunnnámi í líffræði við Háskóla Íslands fóru þær í fram- haldsnám í næringarfræði, Gréta í mastersnám og Ólöf í doktors- nám. Í dag hafa þær stofnað fyrir- tæki saman sem heitir 100g ehf. og taka þær m.a. að sér að fræða fólk um næringu og góðar matarvenj- ur. En af hverju nafnið 100g? „Á öllum pakkningum um matvæli er næringargildi innihaldsins alltaf til- greint í 100 grömmum svo okkur fannst þetta grípandi og alls ekki klisjukennt heiti fyrir svona alhliða mataræðisþjónustu,“ útskýra þær. Hjálpa fólki að breyta mataræðinu Systurnar bjóða m.a. upp á fyrir- lestra, einstaklings- og hóparáð- gjöf og ætla þær að halda nám- skeið á Akranesi þegar samkomu- banni verður aflétt. Á námskeiðinu hjálpa þær fólki að breyta mataræði sínu skref fyrir skref, nú eða með því að taka allt í gegn í einu fyrir þá sem það hentar. „Við vinnum með hverjum og einum í að finna hvernig sé best að breyta mataræð- inu á þann hátt sem endist,“ útskýra þær og bæta við að þær leggi líka áherslu á að hjálpa fólki að breyta viðhorfi sínu til matar. „Matur er til að nærast en ekki hafa á heilanum og verða að þráhyggju. Við erum ekki hrifnar af boðum og bönnum. Við viljum frekar að fólk hugsi um hvað sé gott fyrir okkur að borða en ekki um allt sem er bannað eins og er svo algengt, þá fáum við óhollustuna frekar á heilann,“ seg- ir Gréta og bætir við að hollt mat- aræði þurfi ekki að vera flókið. „Ef allir færu nokkurn veginn eftir ráð- leggingum landlæknis værum við í góðum málum en það er því mið- ur aðeins lítill hluti sem gerir það. Einfalda leiðin er að borða fyrst og fremst hreina fjölbreytta fæðu og meira úr jurtaríkinu. Fækka til- búnum matvælum og drekka mest- megnis vatn, þótt þetta hljómi ekki mjög spennandi og er ekki þessi töfralausn sem svo margir eru að leitast eftir,“ segir Gréta. Samtaka í flestu Það var alltaf ætlunin hjá þeim systrum að vinna saman enda eru þær svo nánar að þær gera nánast allt saman. Þær voru meira að segja samtaka í barneignum. „Ég átti eitt barn árið 2008 en eftir það eign- uðumst við báðar þrjú börn, alltaf á sama árinu,“ segir Ólöf og hlær. Þær byggðu sér líka báðar hús á Akranesi á sama tíma. „Við bjugg- um meira að segja saman á meðan kallarnir voru að byggja, með sjö börn frá eins árs upp í átta ára. Það var mikið fjör en við lifðum það af svo ég held að það verði ekkert mál fyrir okkur að reka fyrirtæki sam- an,“ segir Ólöf og hlær. Systurnar ólust báðar upp á Akranesi og hafa búið þar alla tíð, að undanskildum tímanum sem þær voru í háskóla- námi. Ólöf hefur starfað við rann- sóknir, næringarráðgjöf hjá Heil- brigðisstofnun Vesturland (HVE) og við gæðamál í matvælafyrir- tæki og vinnur nú hálfan daginn á hrossaræktarbúi foreldra þeirra, Skipaskaga. „Þar er ég fram að há- degi alla daga að moka skít og ríða út og fæ þar útrás fyrir hreyfingu líka og er að elska það,“ segir Ólöf og brosir. Gréta kennir næring- arfræði í Fjölbrautaskóla Vestur- lands, er næringarráðgjafi á HVE auk þess sem hún hefur verið gæða- stjóri í matvælafyrirtæki. „Það er gaman að fá að kenna unglingum en mér finnst að næringarfræði eigi að vera skyldufag fyrir alla. Ég er kannski ekki hlutlaus en mér finnst svo margir eiga erindi í þessa áfanga og myndi helst vilja að næringar- fræði yrði kennd neðar í skólastig- inu. Næringarfræði er eitthvað sem við ættum að kenna krökkum bara eins snemma og hægt er, það er svo nauðsynlegt að efla forvarnir“ seg- ir Gréta. Ekkert ríkismataræði Mikil umræða er í samfélaginu um ýmislegt mataræði sem lofar okk- ur að aukakílóin renni af okkur og vöðvarnir stækki, en er þetta svona einfalt? „Nei, alls ekki. Það er búið að flækja þetta svo mikið með alls- konar ólíkum kúrum sem lofa fólki árangri strax. Þessir kúrar geta kannski hjálpað fólki að missa kíló í einhvern tíma en það er bara ekki það eina sem skiptir máli. Við þurf- um að hugsa um heilsuna okkar og mataræðið skiptir miklu máli hvað varðar lífsstílstengda sjúkdóma og geðheilbrigði,“ segir Gréta og Ólöf bætir þá við að mikilvægt sé að átta sig á að það sama hentar ekki endi- lega öllum þegar kemur að mat- aræði. „Það er ekki hægt að setja alla á eitthvað ríkismataræði og leysa þannig allan vanda. Við erum ólík, lifum mismunandi lífi, erum með mismunandi matarsmekk og mismunandi líkamsstarfsemi. Þess vegna er svo mikilvægt að næring- arráðgjöf sé einstaklingsmiðuð,“ segir hún. Matur á að næra Fagaðilar eru að sögn systranna al- mennt ekki hrifnir af matarkúrum því þeir eru oft aðeins tímabundnir. Þær segja kúra sem slíka ekki vera alslæma en að þá sé bara oft erf- itt og leiðinlegt að halda út. „Það skipti mestu máli að fólk tileinki sér mataræði sem það getur hald- ið út, eitthvað sem hægt er að sam- sama lífstíl hvers og eins,“ seg- ir Gréta. Kúrar snúast að mestu um hvað megi ekki borða en þær systur segja það ekki vænlega að- ferð til að finna mataræði sem end- ist auk þess sem það hafi slæm sál- ræn áhrif á fólk ef það tapar barátt- unni og fær sér það sem er bannað, það búi til samviskubit og fólk ann- að hvort gefst upp eða refsi sér með fleiri boðum og bönnum. „Við vilj- um að fólk upplifi sig ekki í megrun eða á kúr. Við eigum að borða til að næra líkamann okkar. Við þurfum að hafa það sem markmið að koma í veg fyrir lífstílstengda sjúkdóma og huga að góðri andlegri og lík- amlegri heilsu en ekki vera of upp- tekin af því sem við sjáum í spegl- inum. Margir hafa skapað mjög óheilbrigt samband við mat og vilj- um við hjálpa fólki að vinda ofan af því og gera hugarfarsbreytingu hjá fólki varðandi mataræði, þannig að fólk eigi í heilbrigðu sambandi við mat,“ segir Ólöf. Bæta við frekar en að taka út Ef þær mættu ráðleggja öllum einn vana til að taka upp strax, hvaða vani væri það? „Að bæta eitthverju hollu inn í mataræðið á hverjum degi. Byrja á að bæta til dæmis við einum ávexti eða grænmeti á dag og drekka meira vatn. Við viljum frek- ar að fólk horfi á hvað megi bæta við frekar en að taka út því með að bæta við góðum og næringarrík- um mat minnkar hitt oft sjálfkrafa með tímanum,“ svara þær og bæta við að mataræði er bara einn þátt- ur af heilbrigði. „Svefn, hreyfing og geðheilsan skipta einnig sköpum. Þetta helst allt í hendur, ef við sof- um illa er fæðuval okkar ekki eins gott og ef við hreyfum okkur ekki erum við gjörn á að borða óholl- ara. Eins erum við líklegri til að sofa betur og hreyfa okkur meira ef við borðum hollt. En ekkert okkar er með 100% mataræði alltaf, ekki einu sinni við, mataræði okkar er alls ekki fullkomið og það þarf ekki að vera það,“ segir Ólöf. „Við fáum „Matur er til að nærast en ekki hafa á heilanum“ - segja næringarfræðingarnir og systurnar Ólöf Helga og Margrét Þóra Jónsdætur Systurnar Gréta og Ólöf stofnuðu fyrirtækið 100g ehf. saman þar sem þær fræða fólk um allt tengt mataræði og næringu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.