Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Síða 26

Skessuhorn - 18.03.2020, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202026 Tvö ný hús í gömlum stíl eru nú í byggingu í gamla bænum á Akra- nesi, nánar til tekið við Vestur- götu 49 og 51. „Við bræður erum að byggja þarna hlið við hlið,“ segir Björn Ólafur Guðmundsson í sam- tali við Skessuhorn. Hann ætlar að flytja inn í húsið að Vesturgötu 51 ásamt Guðnýju Rós Þorsteinsdótt- ur og syni þeirra, Adam Kára. Við hliðina byggja bróðir Björns, Lár- us Beck Björgvinsson og Kathleen Ang eiginkona hans, sem jafn- framt er innanhússarkitekt beggja húsanna. Björn segir að fjölskyldunum hafi þótt þetta lagleg fyrsta eign, nýtt hús í gömlum stíl í gamla bænum á Akranesi. „Þetta eru lítil og krútt- leg hús, þannig lagað, tvær hæðir og ris, um 160 fermetrar þegar allt er talið. Svefnherbergin verða þrjú á efri hæðinni og eitt í kjallaranum. Okkur fannst þetta sniðugt sem fyrsta eign og ef til þess kemur held ég að það verði lítið mál fyrir okkur að selja. Mér finnst þetta mjög fall- eg hús,“ segir Björn, en húsin sem þeir bræður eru að byggja sér verða alveg eins útlítandi að utan. Framkvæmdir hófust með jarðvinnu síðasta sumar. Síð- an var steyptur sökkull og hef- ur vinnan að sögn Björns gengið hægt en örugglega síðan. „Þetta kemur jafnt og þétt og við erum bara róleg í þessu,“ segir hann. Við ákváðum að flytja húsin inn í gegnum fyrirtæki sem heitir Emerald, en þau koma frá fyrir- tæki í Lettladi sem heitir Tivo. Við flytjum líka inn parket, flís- ar, pall og allt sem tilheyrir. Tivo sér um flutninginn og það komu menn frá þeim og setja húsin upp,“ segir Björn. Búið er að reisa húsið við Vest- urgötu 49 og við nr. 51 er reising hálfnuð. Björn vonast til að báð- ar fjölskyldurnar geti flutt inn áður en haustar. „Vonandi verð- um við öll flutt inn seint í sum- ar. Ég hugsa að við flytjum inn á svipuðum tíma þó húsið þeirra sé komið lengra en okkar núna. Við reynum að samnýta allt, þannig að hægt sé að vinna sem mest í báðum húsum í einu. Lokafrá- gangur verður því á svipuðum tíma fyrir bæði húsin. Þess vegna fórum við náttúrulega í að reyna að byggja bæði húsin í einu, til að reyna að samnýta allt sem hægt er til að spara bæði tíma og pen- inga,“ segir Björn að endingu. kgk Ungmennasamband Borgarfjarð- ar hélt sambandsþing sitt, það 98. í röðinni, í félagsheimilinu Loga- landi 12. mars síðastliðinn. Gest- gjafarnir í Ungmennafélagi Reyk- dæla sáu um framkvæmd þingsins. Í upphafi þings voru veittir styrkir úr afreksmannasjóði UMSB. Þær sem hlutu styrki upp á 180 þúsund krón- ur voru þær Birgitta Dröfn Björns- dóttir dansari og kraftlyftingakon- urnar Alexandrea Guðnýjardóttir og Kristín Þórhallsdóttir. Hallbera Eiríksdóttir frá UMFÍ og Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ voru viðstödd þinghaldið. Hall- bera heiðraði nokkra sjálfboðaliða UMSB. Starfsmerki UMFÍ fengu að þessu sinni Brynjólfur Guð- mundsson og Ingvi Árnason. Gull- merki UMFÍ fékk Íris Grönfeldt fyrir ómetanlegt starf við frjáls- ar íþróttir í áranna rás. Þá veitti Viðar Sigurjónsson þeim Sigurði Guðmundssyni og Jóni G. Guð- bjartssyni gullmerki ÍSÍ fyrir frá- bært starf í þágu ungmennafélags- hreyfingarinnar. Einnig veitti hann UMSB viðurkenningu fyrir fyrir- myndar héraðssamband ÍSÍ. Er það áfangi sem UMSB hefur stefnt að í nokkur ár. Þingstörf gengu vel. Fram kom að rekstur UMSB er sterkur. „Mik- ilvægt er að viðhalda áfram góðum rekstri sambandsins. Samstaða var um þær tillögur sem afgreiddar voru á þinginu og fundarmenn voru sátt- ir með gott þing. Sveitarfélögum innan UMSB var sérstaklega þakk- að fyrir dýrmætan stuðning og gott samstarf á liðnu ári. Stuðningur sem þessi gerir UMSB kleyft að halda úti öflugu starfi, samfélaginu öllu til heilla. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í sumar í Borgarnesi og verð- ur mikil þörf á öflugum sjálfboðalið- um til tengslum við þann viðburð,“ segir Sigurður Guðmundsson fram- kvæmdastjóri UMSB. Að endingu var kosið í nýja stjórn UMSB. Bragi Þór Svavarsson verð- ur áfram sambandsstjóri UMSB. Sigríður Bjarnadóttir er gjaldkeri, Guðrún Þórðardóttir varasam- bandsstjóri, Borgar Páll Bragason er vara-varasambandsstjóri, Bjarni Traustason er ritari, Rakel Guð- jónsdóttir er meðstjórnandi, Ástríð- ur Guðmundsdóttir er vararitari og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson er varagjaldkeri. mm/ Ljósm. umsb. Húsin eru í gömlum stíl og passa vel inn í þá götumynd sem fyrir er. Bræður byggja hlið við hlið Hús í gömlum stíl í gamla bænum á Akranesi Húsin sem eru að rísa í gamla bænum á Akranesi, við Vesturgötu 49 og 51. Jóni G Guðbjartssyni og Sigurði Guðmundssyni var veitt gullmerki ÍSÍ. Ungmennasamband Borgarfjarðar komið í hóp fyrirmyndar héraðssambanda Stjórn UMSB. F.v. Sigríður, Bragi Þór, Rakel, Guðrún og Bjarni. Viðar Sigurjónsson afhenti Braga Þór viðurkenningu UMSB fyrir fyrirmyndar héraðssamband ÍSÍ.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.