Skessuhorn - 15.07.2020, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 15. júlÍ 202010
Menningar- og markaðsnefnd
Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi
við Hrafn Art unnið að gerð kynn-
ingarmyndbanda fyrir sveitarfé-
lagið. Annars vegar myndband fyr-
ir þá sem eru á ferðalagi um Hval-
fjarðarsveit og hins vegar kynning-
armyndband um hvernig sé að búa
í sveitarfélaginu. Kynningarmynd-
bandið fyrir þá sem eru að ferðast í
sumar hefur verið birt og sett upp
á heimasíðu sveitarfélagsins og víð-
ar.
arg
Nágrannar við sorpurðunina að
Fíflholtum á Mýrum hafa sent
stjórn fyrirtækisins athugasemdir
vegna frummatsskýrslu sem gerð
hefur verið vegna áhrifa fyrirhug-
aðrar aukningar á magni sorps sem
urða má í Fíflholtum. „Við ná-
grannar við urðunarstaðinn erum
mjög óánægðir með þá ásókn
stjórnar Sorpurðunar Vesturlands
að vilja auka það magn sorps sem
heimilt er að urða,“ segir í ályktun
sem ábúendur á Furumel, Kálfalæk,
Skiphyl, Einholtum, Mel og Birki-
mel rita undir.
Gegn stefnu stjórnvalda
Í athugasemdum nágranna urðun-
arstaðarins segir m.a. að mótmælt
sé að gefið verði leyfi til aukinnar
urðunar í landi Fíflholta. „Eftir lest-
ur þessarar frummatsskýrslu undr-
umst við mjög þá ásókn stjórnar
Sorpurðunar Vesturlands hf. í að
mega auka það magn sem leyfi sé
fyrir að urða úr 15 þúsund tonn-
um árlega í 25 þúsund tonn. Fram
kemur í skýrslunni að með aukinni
flokkun á sorpi rúmist áætlað magn
sorps af svæði Sorpurðunar Vest-
urlands auðveldlega innan þeirr-
ar heimildar sem núna er í gildi til
ársins 2028. Má þar benda á áætlun
34 sveitarfélaga á suðvesturhorni
landsins um að á árinu 2020 verði
hætt að urða lífrænan og brennan-
legan úrgang. Einnig gengur þessi
aukning þvert gegn stefnu um-
hverfisráðherra og ríkisstjórnar,
sem miðar að því að draga verulega
úr því magni sorps sem til urðun-
ar kemur.“
Veifa grænum fána á
sunnudögum
Þá segir í bréfinu að ekki verði bet-
ur séð en stjórn Sorpurðunar Vest-
urlands hafi uppi stór áform um
að taka við miklu magni af sorpi
af öðrum svæðum og sé farin að
renna hýru auga til höfuðborgar-
svæðisins, auk Suðurlands og Vest-
fjarða. „Sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar hefur nýverið hafið söfnun á líf-
rænum úrgangi, og er það vel. En
furðulegt má telja að fjölmennasta
sveitarfélagið á svæðinu, Akranes,
telji sig ekki tilbúið í það að flokka
og safna lífrænum úrgangi. Einnig
eru mismunandi reglur um flokk-
un milli sveitarfélaga. Til dæmis er
allt plast sett í almennt heimilissorp
í Vesturbyggð. Enn fremur vekur
furðu þegar sveitarstjórnarmenn
á Snæfellsnesi veifa grænum fána
umhverfisverndar og hreinleika á
sunnudögum og senda svo allt sitt
sorp óflokkað til urðunar í Fílfholt-
um, þar sem það fýkur svo út um
alla flóa.“
Óframkvæmanlegt að
hindra fok
Í athugasemdum nágranna Fíflholta
segir að sýnt þyki að þær mótvæg-
isaðgerðir sem gerðar voru til að
hindra fok frá urðunarstaðnum séu
ófullnægjandi eins og komið hafi í
ljós síðastliðinn vetur þegar mikið
fauk af rusli bæði til austurs og vest-
urs. Segja þeir mest áberandi blátt
plast sem rekja má til fiskvinnslu.
„Ef til vill er nýja girðingin staðsett
of langt frá urðunarreininni þann-
ig að plast og pappi, sem alls ekki
á að koma til urðunar í Fíflholtum,
fýkur auðveldlega yfir. Einnig má
nefna að það svæði sem urðað er í
hverju sinni er stórt, vegna breidd-
ar urðunarreinarinnar og hæðar
á stálinu, þannig að óframkvæm-
anlegt er fyrir starfsmenn að hylja
svæðið í lok hvers dags eins og krafa
er um og nefnt er í skýrslunni.“
Lyktin slæm
í vestlægri átt
Bréfritarar benda á að í skýrslu
Sorpurðunar Vesturlands komi
fram að urðunarstaðurinn sé í skjóli
milli klapparholta og sjáist hvergi.
Einnig að sú urðunarrein sem um
ræðir í skýrslunni taki við mun
meira magni en upphaflega var gert
ráð fyrir þriggja metra urðunar-
hæð. Sagt er að vegna þess að dýpra
er á berggrunn er urðað í allt að
10 m hæð. En yfirborðshæð sé það
sama. „Nú er það þannig þegar lit-
ið er til Fíflholta, héðan frá Furu-
mel, á urðunarstaðinn, „sem hvergi
sést og er á milli klapparholta”, þá
bera við himinn haugar af timb-
urkurli, ruslabílar sem eru að losa
ásamt þeim vélum sem eru að vinna
við urðunina. Þetta stenst illa skoð-
un. Annað hvort hafa klapparholtin
lækkað, eða urðunarstálið er hærra.
Það er líka þannig ef vindátt er vest-
læg, þá erum við mynnt á nágranna
okkar á óþægilegan hátt, með þeirri
lykt sem þessari starfsemi fylgir.“
Hætti ásókn
í sorp annarra
Að lokum eru sveitarfélög á Vestur-
landi hvött til að ásælast ekki sorp
annarra landshluta: „Því skorum
við á stjórn Sorpurðunar Vestur-
lands að þeir hætti þessari ásókn í
sorp frá öðrum svæðum og komi
Á miðvikudaginn síðasta birtist
á vef Skessuhorns frétt um bréf
sem nágrannar við sorpurðunina í
Fíflholtum á Mýrum sendu stjórn
Sorpurðunar Vesturlands (sjá frétt
hér að ofan). Þar lýsa þeir óánægju
sinni með að stjórnin vilji auka það
magn sorps sem heimilt verður að
urða í Fíflholtum. Vegna þessar-
ar ályktunar nágranna við Fífl-
holt sendu eftirtaldir aðilar frá
sér sameiginlega yfirlýsingu. Það
voru þau Björg Ágústsdóttir bæj-
arstjóri í Grundarfjarðarbæ, jak-
ob Björgvin jakobsson bæjarstjóri
í Stykkishólmsbæ, Kristinn jónas-
son bæjarstjóri í Snæfellsbæ, Egg-
ert Kjartansson oddviti Eyja- og
Miklaholtshrepps, Guðrún Reyn-
isdóttir oddviti Helgafellssveitar
og Guðrún Magnea Magnúsdótt-
ir verkefnastjóri umhverfisvottun-
ar Snæfellsness:
„Í nýlegri ályktun ábúenda í ná-
grenni við urðunarstaðinn í Fífl-
holtum má segja að frjálslega sé
farið með staðreyndir um sorp-
mál, og umhverfismál, á Snæfells-
nesi. Finnum við okkur því knúin
til þess að draga fram nokkur mik-
ilvæg atriði, í framhaldi af þeirri
umfjöllun.
Eftir nokkurra ára undirbún-
ing og verklagsbreytingar hlutu
sveitarfélögin á Snæfellsnesi um-
hverfisvottun EarthCheck árið
2008. Vottunin er veitt fyrir stöð-
ugar úrbætur í umhverfis- og sam-
félagsmálum. Sama ár hóf Stykkis-
hólmsbær, fyrst allra sveitarfélaga
á Íslandi, þriggja tunnu flokkun
við heimili og fylgdu hin sveitar-
félögin fljótt á eftir, með tveggja
og þriggja tunnu flokkun. Í tólf ár
hafa því íbúar á Snæfellsnesi sam-
viskusamlega flokkað sorp, en að
auki er flokkun á gámasvæðum
og hjá fyrirtækjum. Árangurinn
er áþreifanlegur og standa heim-
ilin sig hvað best, þar sem tæplega
helmingur úrgangs fer í endur-
vinnslu. Í haust má búast við því
að sú tala aukist töluvert þegar
Snæfellsbær, fjölmennasta sveit-
arfélagið, hefur flokkun lífræns
úrgangs, sem almennt telur um
þriðjung alls úrgangs. Sorpmálin
eru einungis eitt af mörgum svið-
um sem umhverfisstarf Snæfell-
inga tekur til.
Íbúar Snæfellsness gera sitt
besta og hafa lagt á sig ýmiss kon-
ar vinnu við þróun og þátttöku í
framsæknu umhverfisstarfi. Það er
miður að framlag þeirra sé dreg-
ið inn í ágreining um framkvæmd
starfseminnar í Fíflholtum. Það er
jafnframt leitt að finna að fram-
ganga sveitarfélaganna á Snæfells-
nesi í umhverfismálum sé ekki
metin meira en þessi skrif bera
með sér.“ arg
Segja íbúa á Snæfellsnesi hafa
lagt sig fram við flokkun á sorpi
Kynningar-
myndband fyrir
Hvalfjarðarsveit
Mótmæla því að Sorpurðun ásælist að urða
í Fíflholtum sorp úr öðrum landshlutum
þeim skilaboðum til sinna sveitar-
stjórnarmanna, að þeir fari að koma
meðhöndlun og flokkun úrgangs í
viðunandi horf, og hætti að senda
til Fíflholta rusl sem ekki á þangað
að fara.“ mm
Svipmynd frá núverandi urðunarrein í Fíflholtum.