Skessuhorn - 15.07.2020, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. júlÍ 2020 13
Fyrir 40 árum voru Íslendingar
fyrstir allra þjóða að kjósa konu sem
forseta í lýðræðislegum kosning-
um, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Af
því tilefni var efnt til hvatningará-
taksins Takk fyrir að vera til fyrir-
myndar, en Karitas Diðrikdóttir,
Marín Magnúsdóttir og Sigþrúður
Ármann stóðu bakvið átakið. Hug-
myndin var að fólk skrifaði kveðju á
sérútbúið þakkarbréf til þeirra sem
þeir telja vera til fyrirmyndar á einn
eða annan hátt en hægt er að setja
bréfin ófrímerkt í póst innanlands.
Eintök af bréfinu er hægt að nálg-
ast um allt land í útibúum Pósts-
ins og landsbankans og í verslun-
um Nettó, Bónuss eða Krónunnar.
Einnig er hægt að senda rafræn bréf
á fjölmörgum tungumálum í gegn-
um síðuna www.tilfyrirmyndar.is.
Þá hafa svokallaðir Takk veggir
verið málaðir víða um land og alltaf
bætast við fleiri veggir. Hugmynd-
in er að fólk taki mynd af sér við
vegginn og deili á samfélagsmiðl-
um með merkinu #tilfyrirmyndar.
Takk veggur hefur verið málað-
ur við Norðurtanga í Ólafsvík og
við Samkomuhúsið á Sólvöllum 3
í Grundarfirði. Íbúar og gestir eru
hvattir til að koma þar við og taka
af sér myndir við veggina og deila
á samfélagsmiðlum og þannig taka
þátt í hvatningarátakinu.
arg
Við leitum að kraftmiklum og þjónustuliprum vaktstjóra til framtíðarstarfa
á þjónustustöð N1 í Borgarnesi. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu.
Helstu verkefni:
• Almenn afgreiðsla
• Stjórnun starfsmanna á vakt
• Vaktauppgjör
• Pantanir
• Önnur tilfallandi verkefni
á stöðinni
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga auðvelt með að vinna í hóp.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is – merkt Borgarnes - vaktstjóri.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Fjeldsted stöðvarstjóri
í síma 440 1333 eða magnusf@n1.is.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um auglýst störf hjá fyrirtækinu.
Vilt þú vinna
á líflegum
vinnustað?
440 1000 n1.is
ALLA LEIÐ
Hæfniskröfur:
• Almenn þekking á verslun og þjónustu
• Samskiptafærni og þjónustulund
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
• Aðeins 25 ára og eldri koma til greina
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Kynningafundur
Kynningafundur vegna breytinga á deiliskipulagi
Akratorgsreits Kirkjubraut 39 og nýtt deiliskipulag
á Garðabraut 1 verður haldinn í bæjarþingsalnum,
3. hæð að Stillholti 16-18.
Fimmtudaginn 16. júlí 2020 kl. 17:00
Breyting á deiliskipulagi Akratorgsreits – Kirkjubraut 39
Breyting deiliskipulagsins felst í að reisa fjölbýlishús í stað
hótels með verslun og þjónustu á 1. hæð hússins.
Nýtt deiliskipulag fyrir Garðabraut 1.
(K.F.U.M. og K.F.U.K. húsið)
Deiliskipulagið felst í niðurrifi núverandi byggingar.
Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu þéttrar íbúða-
byggðar með vandaðar íbúðir góðu aðgengi, bílageymslu og
lyftu.
Eftir kynningu á ofangreindum skipulögum (skipulagsgögnum)
verða þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn
til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreind-
ar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir við
þær vera að minnsta kosti 6 vikur.
Sviðsstjóri skipulags og umhverfissviðs
Takk veggir á Snæfellsnesi
Takk veggur við Norðurtanga í Ólafsvík. Ljósm. snb.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is