Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2020, Page 2

Skessuhorn - 26.08.2020, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 26. áGúSt 20202 Skólarnir eru hafnir að nýju og því börn á ferð í umferðinni, sem ekki eru vön því. Því viljum við minna ökumenn á að fara afar gætilega allsstaðar í nágrenni skóla. Á morgun er spáð vestlægri átt 5-10 m/s og skýjuðu vestantil á land- inu. Hæg breytileg átt og víða bjart í öðrum landshlutum, en sumsstað- ar þokuloft við norður- og aust- urströndina. Hiti 10-17 stig, hlýj- ast suðaustanlands. Á föstudag og laugardag er útlit fyrir vestlæga átt 3-10 m/s og skýjað að mestu og lítilsháttar væta, en yfirleitt þurrt austantil á landinu. Hiti 10-15 stig. Á sunnudag og mánudag er spáð suðaustlægri átt með vætu, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 11-16 stig, hlýjast á Norðurlandi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns hvort lesendur sakni þess að komast ekki til útlanda. 30% svar- enda svöruðu því neitandi og sögð- ust láta sig hafa það. 25% sakna þess mjög mikið, önnur 25% sakna þess dálítið. 20% svarenda sakna þess ekki, enda fari þeir hvort sem er aldrei þangað. Í næstu viku er spurt: Hvað finnst þér um tvöfalda skimun þeirra sem koma til landsins? Á laugardaginn hlupu um áttatíu manns í áheitahlaupi í Stykkishólmi til styrktar körfuboltakonunni Berg- lindi Gunnarsdóttur. Þessir hlaupar- ar eru Vestlendingar vikunnar sem og þeir fjölmörgu sem lagt hafa söfnuninni lið. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Fá leyfi til að byggja við Gríms- húsið BORGARNES: Leyfi hefur verið veitt til að reisa viðbygg- ingu við Grímshúsið í Brákarey í Borgarnesi. Eins og greint var frá í Skessuhorni í fyrra tók enski ginframleiðandinn Martin Mill- er‘s Gin húsið á leigu til næstu 25 ára, með það fyrir augum að opna gestastofu fyrir gináhugafólk um allan heim. Sótt var um bygging- arleyfi vegna viðbyggingarinn- ar fyrir hönd enska fyrirtækisins og var það samþykkt á afgreiðslu- fundi byggingarfulltrúa Borgar- byggðar á fimmtudaginn. Í við- byggingunni verða geymslur fyrir ámur sem hafðar verða sem sýn- ishorn fyrir gesti, sem og aðstaða fyrir starfsfólk. Jafnframt var sótt um leyfi fyrir innanhússbreyting- um á Grímshúsinu sjálfu. Um- sóknin var samþykkt og bygging- arfulltrúa falið að gefa út bygg- ingarleyfi að uppfylltum skilyrð- um. -kgk Lífleg fasteigna- viðskipti í júlí VESTURLAND: á Vesturlandi var 62 samningum um fasteignir þinglýst í júlímánuði. Er það um- talsvert meiri fjöldi en mánuðina á undan. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sérbýli og 21 samn- ingur um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.883 milljónir króna og meðalupphæð á samn- ing 30,4 milljónir króna. Af þess- um 62 viðskiptum var 31 samn- ingur um eignir á Akranesi. Þar af voru 25 samningar um eign- ir í fjölbýli og sex samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 1.253 milljónir króna og meðal- upphæð á samning 40,4 milljónir króna. -mm Minnismerki um Jón Vídalín UXAHRYGGIR: Sunnudag- inn 30. ágúst verða 300 ár liðin frá andláti Jóns Þorkelssonar Ví- dalín, Skálholtsbiskups. á þess- ari 300. ártíð Jóns biskups verð- ur tímamótanna minnst með ýmsum hætti að tilstuðlan Bisk- upsstofu og fleiri. Meðal ann- ars verður vígður nýr kross og afhjúpað minnismerki í Bisk- upsbrekku á Uxahryggjum sem Páll Guðmundsson listamaður á Húsafelli hefur gert að tilstuðlan Skálholtsfélagsins hins nýja. At- höfnin í Biskupsbrekku er öllum opin og hefst kl. 17.00. -mm Reglubundið sótt- varnareftirlit VESTURLAND: Lögreglan á Vesturlandi heldur uppi reglu- bundnu eftirliti með stærri versl- unum og veitingastöðum í um- dæminu. Þar fylgist lögregla með því hvort farið er að sóttvarna- reglum. Að sögn lögreglu hefur enginn í umdæminu verið kærður fyrir brot á sóttvarnarlögum. Þó hefur það gerst að mönnum hef- ur verið veitt tiltal og þeim leið- beint frekar, en það er þó aðeins í undantekningartilvikum, að sögn lögreglu. -kgk á afgreiðslufundi byggingarfulltrú- ans í Borgarbyggð síðastliðinn fimmtudag var tekin fyrir umsókn Páls Guðmundssonar um niður- rif nýlegs legsteinahúss í Bæjargili í Húsafelli, landnr. 221570. Erind- ið var samþykkt. Byggingarfulltrúa var falið að gefa út byggingar - nið- Undanfarnar vikur hafa staðið yfir framkvæmdir við fráveituna í Búð- ardal. Verið er að sameina útrásirn- ar tvær sem hafa verið í sitt hvorum hluta bæjarins í eina, sem verð- ur úti fyrir miðri Búðarbraut. Um er að ræða fyrsta áfanga af þremur við fráveituna og það er verktaka- fyrirtækið Stafnafell ehf. sem ann- ast hann. Þónokkuð rask hefur fylgt þessari vinnu, einkum í síðustu viku þegar farið var í gegnum planið fyrir neð- an Leifsbúð, enda um nokkuð stóra framkvæmd að ræða að sögn Krist- jáns Inga Arnarssonar, umsjónar- manns framkvæmda hjá Dalabyggð. „Þetta er stærsta staka verkefnið hjá okkur á árinu, það held ég að ég geti fullyrt,“ segir Kristján í samtali við Skessuhorn. Hann segir verk- ið hafa gengið vel frá því hafist var handa í síðasta mánuði. „Það hefur gengið fínt og alveg eins betur en ég átti von á,“ segir hann. „Fyrsti áfangi á að klárast í lok september, en það gæti alveg gerst fyrr,“ bætir hann við. Þegar þessum fyrsta áfanga verð- ur lokið verður hugað að næstu áföngum verksins. Þeir felast ann- ars vegar í lengingu útrásar fráveit- unnar og hins vegar hreinsistöð. Búið er að hanna lengingu útrás- arinnar en Kristján segir að verk- inu hafi verið hagað þannig að ekki skipti máli hvorn áfangann verður ráðist í næst. Þannig megi allt eins reisa hreinsistöðina áður en út- rásin verður lögð, þyki það henta betur. „Það mun endanlega ráð- ast við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs hvorn áfangann verður farið í á undan,“ segir Kristján Ingi að end- ingu. kgk Verkalýðsfélag Akraness er byrj- að atkvæðageiðslu um boðun verk- falls, fyrir hönd starfsmanna Norð- uráls á Grundartanga, sem ef sam- þykkt verður tekur gildi 1. desemb- er nk. hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Kjaraviðræður hafi staðið í níu mánuði án árangurs. Í júlí samþykktu félagsmenn VLFA í atkvæðagreiðslu með 97% atkvæða að boða yfirvinnubann frá 1. sept- ember. VLFA barst skrifleg áskor- un Samtaka atvinnulífsins, fyr- ir hönd Norðuráls, þess efnis að boðuðu yfirvinnubanni yrði aflýst. Að sögn Vilhjálms Birgissonar for- manns VLFA tekur félagið þessa ákvörðun nú í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins, fyrir hönd Norður- áls, meti sem svo að fyrirtækið telji starfsmenn ekki hafa heimild til að fara í yfirvinnubann frá og með 1. september nk. Litið sé svo á að yfir- vinnubann sé í eðli sínu verkfall og því hafi ekki verið löglega til þess boðað með þriggja mánaða fyrir- vara. Að sögn Vilhjálms eru kröfur Norðuráls þær að laun verði hækk- uð samkvæmt launavísitölu en ekki krónutölu á grunntaxta eins og lífs- kjarasamningurinn kveður á um. „Þegar krafa frá lögmanni Norðuráls barst var ljóst að Verka- lýðsfélag Akraness hefur ekki í hyggju að taka þátt í lagaklækjum fyrirtækisins sem hefur það mark- mið að tefja og torvelda þær tak- mörkuðu verkfallsheimildir sem starfsmenn Norðuráls hafa. Í ljósi þess ákvað félagið að aflýsa þeim vinnustöðvununum sem kosið var um í júlí til að forðast þessa lagak- læki. Hins vegar hefur félagið ákveðið að endurtaka kosningu- na og er hún með rafrænum hæt- ti. Kosið er um verkfall sem hefst á miðnætti 1. desember ef ekki semst fyrir þann tíma,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA á síðu félagsins. Kosningin hófst á há- degi í gær, þriðjudaginn 25. ágúst, og mun standa til klukkan 12 má- nudaginn 31. ágúst. Bjartsýn um lausn í tæka tíð Í samtali við Skessuhorn á mánu- dagsmorgun, sagði Sólveig Berg- mann, yfirmaður samskipta hjá Norðuráli, að fyrirtækið sé meðvit- að um að kjaraviðræður hafi tekið langan tíman. „Viðræður eru hins vegar enn í gangi og við erum full- viss um að við náum farsælli lend- ingu í þessa kjaradeilu,“ sagði Sól- veig. mm/ Ljósm. kgk. Unnið fyrir framan Leifsbúð í síðustu viku. Ljósm. kia. Fráveituframkvæmdir í Búðardal ganga vel Byggingarfulltrúi samþykkti niðurrif legsteinahúss Legsteinahúsið er lengst til hægri á myndinni. urrifsleyfi að uppfylltum skilyrð- um sbr. gr. 2.3 og 2.3.1. í bygging- arreglugerð 112/2012. Gerð var sú athugasemd að niðurrif skuli gera í samráði við reglur heilbrigðiseftir- lits. mm Atkvæðagreiðsla hafin um verkfallsboðun 1. desember

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.