Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2020, Qupperneq 18

Skessuhorn - 26.08.2020, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 26. áGúSt 202018 Rakel Jóhannsdóttir og Jónbjörn Bogason hafa hvergi setið auðum höndum síðan þau festu kaup á Kveldúlfsgötu 1 í Borgarnesi árið 2017. Rakel segir verkefnið, eins og hún lýsir eigninni þeirra hjóna, vera stöðugt. Hún leggur íslensk ræktuð kirsuber frá Svanshóli í Bjarnafirði á Ströndum á borðið fyrir blaða- mann Skessuhorns sem forvitnast um framkvæmdir hússins síðustu árin. „Við kaupum húsið í júlí 2017 og flytjum inn 16. júní tæpu ári síð- ar,“ segir Rakel og leggur kaffibolla á borðið fyrir blaðamann. Betrekk á veggjum „Við ætluðum okkur bara að mála og flytja svo inn. Sonur okkar er málari og fengum við hann til að skoða þetta hjá okkur og fara yfir stöðuna. Honum leist ekkert á blik- una, það var nefnilega betrekk á veggjum hérna og ekki sniðugt að mála yfir það,“ bætir Jónbjörn kím- inn við. Húsið er 113 fermetra timburhús frá árinu 1969 og þegar þau hjón- in keyptu fasteignina fyrir þrem- ur árum síðan, var lítið sem ekkert búið að gera fyrir það en húsið sjálft í góðu standi. „Það var allt soldið mikið upp- runalegt þegar við keyptum. Við ákváðum því að hefja strax fram- kvæmdir. Við fluttum inn til Ingi- leifar í september 2017 og feng- um að búa þar á meðan við vorum í framkvæmdum,“ útskýrir Rakel. Ingileif er góðvinkona þeirra hjóna og er flestum kunnug í Borgarnesi og héraði sem hársnyrtifræðingur og rekur hún sína eigin stofu, Hár- greiðslustofu Heiðu, í þarnæsta húsi við Rakel og Jónbjörn. Það var því stutt að rölta yfir í fram- kvæmdirnar á meðan þeim stóð yfir í þessa 10 mánuði sem þau bjuggu hjá Ingileif. Þess má geta að það var móðir Ingileifar sem bjó í húsinu áður en Rakel og Jónbjörn keyptu það. „Ef maður klárar ekki allt áður en maður flytur inn þá á maður til að hætta, enda gerðum við það. Forstofan var bara tóm í heilt ár og erum við nýbúin að græja hana,“ segir Jónbjörn og hlær. Unnið af fingrum fram Allt var tekið í gegn í húsinu og spyr blaðamaður hvar best sé að byrja þegar ráðist er í svona um- svifamiklar framkvæmdir? „Við vissum ekkert hvar væri best að byrja. Við byrjuðum bara að rífa niður veggi,“ segir hún og hlær. „Við fórum í þetta stóra og byrjuð- um eiginlega á eldhúsinu fyrst. Svo unnum við okkur smátt og smátt inn eftir húsinu. Þetta var allt unn- ið af fingrum fram og ákvarðanir teknar frá einum degi til annars,“ bætir hún við. „Við erum svo hrifin af opnu rými, að hafa eldhúsið og stofuna allt saman opið, en ekki hólfað nið- ur eins og hús voru uppsett í gamla daga,“ segir Jónbjörn. „Í timbur- húsi hefur maður mun meira frelsi til að gera í rauninni allt sem manni dettur í hug. Það sem þarf að passa er burðurinn og ekki hreyfa mikið við honum. Við til dæmis skeytt- um saman tveimur litlum átta fer- metra svefnherbergjum í eitt stórt, stækkuðum baðið inn í forstofuna og brutum aðeins af vegg til að hafa opið inn í sjónvarpsherbergi innst inni í húsinu. Eina sem við hreyfð- um ekki við er í rauninni hjónaher- bergið.“ Allt rafmagn í húsinu var endur- nýjað. Jónbjörn lagði og fékk raf- virkja til að draga í. Pípari var feng- inn til að endurnýja hitaveitugrind- ina og allar lagnir lagðar upp á nýtt. Þá var skipt um alla glugga í húsinu og plastgluggar settir í stað þeirra gömlu. Gluggarnir í stofunni voru einnig stækkaðir frá gólfi til lofts og hurð bætt við. „Við vildum geta gengið út,“ segir Rakel og horfir út um gluggana sem snúa í átt að sjónum. Heillandi útisvæði Heljarinnar pallur er í bígerð á bak- við húsið en lóðin er einstaklega heppilega staðsett með Borgarvog- inn og kvöldsólina í bakgarðinum. Þar sem flestar framkvæmdir inni í húsinu er lokið hafa þau hjónin snúið sér að því að láta verkin tala undir berum himni. Hafa þau stór plön fyrir garðinn sinn. „Við erum með ýmsar hugmyndir fyrir garð- inn. Hérna verður heitur og kald- ur pottur ásamt bílskúr. Þegar pall- urinn er klár þá ætlum við að hafa útisvæði á grasinu og útbúa eld- stæði sem hægt er að sitja í kring- um og eiga notalega stund,“ seg- ir Rakel. „Við eigum eftir að taka ofan af einu grenitré í garðinum. úr stofninum ætlum við að útbúa leik, setja upp belg sem barnabörn- in geta klifrað og leikið sér í,“ bæt- ir Jónbjörn við. Gert er ráð fyrir að bílskúrinn verði 48 fermetrar í heildina. Skúrinn sjálfur mun taka 40 fermetra en átta fermetrar verða teknir frá fyrir hálfgert þjónustu- hús en þar hyggjast þau hjónin setja sturtu og klósett fyrir pottana. Óhrædd að prófa sig áfram Aðspurður segist Jónbjörn aldrei hafa lært að smíða heldur hef- ur hann prófað sig hægt og rólega áfram í áhugamálinu. „Maður lær- ir af mistökunum. Sagar skakkt og byrjar upp á nýtt,“ segir hann hógvær en Jónbjörn hefur smíð- að nokkra palla yfir árin ásamt því sem þau hjónin gerðu upp hús- ið sitt að hluta til á Akranesi þegar þau bjuggu þar. „Ég hef samt aldrei gert neitt í líkingu við þetta,“ bætir hann við og horfir í kringum sig á vel unnin störf. „Við höfum alltaf unnið allar framkvæmdir sjálf og erum allt- af að verða betri og betri í þessu. Við höfum líka fengið hjálp frá strákunum okkar, Jóa og Gunn- ari. Verkfærin eru til staðar til að framkvæma hugmyndirnar okkar. Það hefur alveg komið fyrir að mér detti eitthvað í hug og séð fljótt að það gangi ekki upp. Þá stoppum við og finnum aðra lausn. Við erum al- veg ofsalega ánægð með allt sem við höfum gert hérna,“ segir Rakel stolt og Jónbjörn tekur undir það. Sjóari frá Hólmavík Jónbjörn starfar hjá Ríkislögreglu- stjóra í Reykjavík og ekur á milli til og frá vinnu. Þegar hann er ekki í vinnunni eða með hamarinn á lofti þá kýs hann að vera með tærnar upp í lofti. „Það er gott að búa í Borg- arnesi, þess vegna fluttum við aft- ur hingað.“ Fjölskyldan bjó í Borgarnesi frá 1993 til 2004 áður en þau fluttu á Akranes. Þar bjuggu þau til árs- ins 2014 áður en búferlar voru til Reykjavíkur, þaðan sem Jónbjörn er. „Það þurfti nú ekki mikið að sannfæra hann til að flytja aftur út á land. Við erum með rafmagnsbíl til að keyra á milli og þetta er ekk- ert mál,“ segir Rakel sem er fædd og uppalin á Hólmavík. Sjálf vinnur Rakel í Reykja- vík sem bókari hjá endurkoðanda. Rakel stundar einnig strandveiðar og gerir út sinn eigin bát, Boggu St-055, frá Norðurfirði á Strönd- um. „Þetta er bara dugga. Bátur- inn er 3,9 tonn sem er mjög lítið en meira en nóg fyrir mig. Hann siglir hægt enda fer ég ekki eins langt út og karlarnir og veiði ekki eins mik- ið og „hinir“ karlarnir. Stundum er ég mjög heppin ef ég lendi í moki,“ segir Rakel um sjómennskuna. „Ég lenti í þessu af fíflagangi. Þetta eru reyndar allt sjómenn í fjölskyldunni minni og ég keypti bátinn af fjöl- skyldunni. Jónbjörn kemur stund- um með mér, en mér þykir best að vera ein í þögninni,“ bætir hún við að lokum. glh. Ljósm/ aðsendar. Stefnt er að því að gera garðinn að miklum sælureit en hér sést Jónbjörn leggja sig í hengirúmi sem þau komu fyrir í garðinum. „Við ætluðum okkur bara að mála og flytja svo inn“ Hjónin Rakel og Jónbjörn umturnuðu heimili sínu í Borgarnesi áður en þau fluttu inn Rakel og Jónbjörn við eldhúsborð sitt í nýja eldhúsinu. glh. Eldhúsinnréttinging áður en hún var rifin niður. Nýja eldhúsið þeirra hjóna. Ljósm. glh. Flestir veggir voru fjarlægðir fyrir utan svefnherbergisveggi til vinstri. Hér sést þar sem baðherbergið, forstofan og eldhúsið var án veggja. Nýja stofan þar sem hægt er að ganga beint út í garð. Ljósm. glh. Stofan fyrir breytingarnar. Gluggarnir voru meðal annars stækkaðir frá gólfi til lofts og hurð bætt við.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.