Skessuhorn - 09.12.2020, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 20206
Smit kom upp
í skóla
AKRANES: Síðastliðinn
föstudag var greint frá því
á heimasíðu Grundaskóla á
Akranesi að Covid-19 smit
hafi verið greint í starfsmanna-
og nemendahópi skólans á
unglingastigi. Í tilkynningu
þá um morguninn sagði m.a.:
„Nokkrir starfsmenn og nem-
endur skólans þurfa að fara í
sóttkví fram á mánudag. Þetta
varðar hluta nemenda í sótt-
varnarhólfi 9. bekkjar og hluti
skólahóps sem sótti æfingu á
bókasafni skólans síðastliðinn
mánudag. Þessi aðgerð er ör-
yggisráðstöfun ef frekara smit
kemur upp.“ Samkvæmt frétt
á heimasíðu Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands fyrir helgi átti
skimun hópsins að fara fram
á mánudag og þriðjudag í
þessari viku. Niðurstaða um
hvort smit hafi náðst að breið-
ast frekar út lá ekki fyrir þeg-
ar blaðið fór í prentun í gær.
-mm
Skemmdir á bíl
AKRANES: Þriðjudaginn 1.
desember barst lögreglu til-
kynning um að unnar hefðu
verið skemmdir á bifreið við
Vesturgötu 1 á Akranesi. Ekki
er vitað hver var að verki. Mál-
ið er til rannsóknar og biður
lögregla þá sem kunna að hafa
orðið varir við eitthvað grun-
samlegt að hafa samband við
lögreglu. -frg
Fag á flugi
AKRANES: Um miðjan dag
á þriðjudag, 1. des, tók opn-
anlegt fag sig til og hóf sig til
flugs frá húsi við Garðabraut á
Akranesi, sennilega vegna mik-
ils vinds. Fagið hafði hreinlega
fokið af lömunum. Fagið flaug
þó ekki langt og fannst í garð-
inum við sama hús. Eigandi
fagsins tilkynnti málið til lög-
reglu og fékk í staðinn síma-
númer hjá smiðum sem gætu
aðstoðað við lausn málsins .
-frg
Slagsmál
AKRANES: Síðdegis síðast-
liðinn miðvikudag barst lög-
reglu tilkynning um unglinga-
slagsmál á svæði milli versl-
unar Bónuss og Asparskóga
á Akranesi. Lögregla brást
skjótt við en þegar hún kom á
vettvang reyndust „slagsmála-
hundarnir“ vera börn sem
voru bara að leik. Ekki var að-
hafst frekar í málinu. -frg
Fastur á Bröttu-
brekku
VESTURLAND: Að kvöldi
miðvikudags fékk Neyðarlína
tilkynningu um bíl sem var
fastur í snjó í Bröttubrekku.
Bíllinn hafði farið út af veg-
inum vegna veðurs en var þó
við kantlínu vegar. Vegagerð-
inni var tilkynnt um málið og
björgunarsveit kom ökumanni
til aðstoðar. Vegna veðurs var
ekki hægt að fjarlægja bifreið-
ina fyrr en daginn eftir. -frg
Ríkissjóður í
stórum tap-
rekstri
LANDIÐ: Uppgjör ríkissjóðs
fyrir fyrstu níu mánuði þessa
árs liggur fyrir. Rekstrarafkom-
an án afkomu hlutdeildarfélaga
var neikvæð um 168 millj-
arða króna sem er í samræmi
við væntingar að teknu tilliti
til áhrifa heimsfaraldurs Co-
vid-19. Faraldurinn hefur haft
mikil áhrif á útgjöld og tekjur
ríkisins og afkomu ríkissjóðs á
árinu. Brugðist hefur verið við
áhrifunum með ýmsum aðgerð-
um og leitað eftir heimildum
vegna þess með afgreiðslu Al-
þingis á fernum fjáraukalögum
og er frumvarp að þeim fimmtu
til meðferðar. Viðbótarkostnað-
ur vegna Covid-19 er að miklu
leyti kominn fram og áætlan-
ir ríkisstofnana hafa verið upp-
færðar. Tekjur voru 536 millj-
arðar og lækkuðu um 53 millj-
arða, eða 9% á milli ára. Þar af
skýrist 11 milljarða króna lækk-
un af frestuðum skatttekjum
vegna heimsfaraldurs. Tekju-
skattur einstaklinga lækkaði um
10 milljarða, virðisaukaskattur
um 35 milljarða og trygginga-
gjald um 8 milljarða milli ára.
-mm
Vel lýst hús og
sum úr pipar
SNÆFELLSBÆR: Leitað
er að jólahúsi Snæfellsbæjar
2020. Hægt er að senda inn
tillögur á heimasíðu Snæfells-
bæjar fyrir 16. desember nk.
Þá verða nú í fyrsta sinn einn-
ig veittar viðurkenningar fyr-
ir fallegasta jólagluggann og
best skreytta garðinn. Þá hef-
ur einnig verið efnt til pipar-
húsakeppni í Snæfellsbæ. Hús-
in verða til sýnis í kassanum í
Ólafsvík og hægt er að skila
þeim þangað til 16. desemb-
er. Eftir það verður sett upp
rafræn kosning þar sem íbúar
geta kosið flottasta piparköku-
húsið 2020. -arg
Björgunarfélag Akraness er nú
komið með nýjan og einkar glæsi-
legan Ford F350 björgunarsveita-
bíl í bílaflota sinn. Bíllinn er mik-
ið breyttur, er m.a. á 54“ dekkjum
með 6,7L V8 diesel powerstroke
mótor og 6 gíra sjálfskiptingu. Búið
er að fara í nokkra prufutúra á bíln-
um og að sögn Sigurðar Inga Grét-
arssonar er bíllinn svo gott sem klár
í útkall hjá sveitinni.
arg
Vegna 20 ára afmæli Hyrnutorgs
26. nóvember síðastliðinn voru
kaupmenn í Hyrnutorgi með af-
mælisleik þar sem í boði voru glæsi-
legir vinningar. Fólk sem heimsótti
verslanirnar, ritaði nafn og síma-
númer á blað og setti í kassa. „Þátt-
takan var vonum framar, enda eiga
íbúar í Borgarbyggð heiður skil-
inn fyrir dugnað að versla í heima-
byggð. Án ykkar væri lítið um versl-
un eða þjónustu í héraðinu,“ skrif-
aði Ómar Örn Ragnarsson kaup-
maður í Tækniborg þegar hann
kynnti úrslitin. Nú er sumsé búið
að draga og hafa samband við vinn-
ingshafa. Þessir viðskiptavinir voru
dregnir út:
Kristý:
Erna Einarsdóttir
Fanney Ólafsdóttir
Signý Birna Rafnsdóttir
Lyfja:
Sigríður Ása Guðmundsdóttir
Borgarsport:
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Sigrún Ögn Sigurðardóttir
Jóhanna Þ Björnsdóttir
Nettó:
Laufey Valsteinsdóttir
Ása Helga Halldórsdóttir
Ólafur Axelsson
Tækniborg ehf:
Áslaug Þorvaldsdóttir
Kristjana Jónsdóttir
Fok:
Marta Alexandra
Hulda Þorsteinsdóttir
Sigurrós Sigurðardóttir
Glæsilegur jeppi til
Björgunarfélags Akraness
Vinningshafar í afmælisleik
verslana Hyrnutorgs
Glæsilegur bíll í eigu Björg-
unarfélags Akraness.
Ljósm. HP Tuner Iceland