Skessuhorn - 09.12.2020, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 202014
Vestast á Vesturgötu á Akranesi
er hús sem lætur lítið yfir sér en á
skilti utan á húsinu stendur „Kistan
– Flokkunarstöð“. Kistan var form-
lega opnuð í mars 2017 en í stöð-
inni er allt sorp sem fellur til við
rekstur Brims flokkað, bæði sorp
í landi og af skipum félagsins. Þá
tekur flokkunarstöðin jafnframt við
efni frá Norðanfiski. Það er Guð-
jón Finnbogason sem þarna ræður
ríkjum en Guðjón hefur starfað hjá
Brimi og þar áður HB Granda og
HB og Co síðan 1984, eða í 36 ár.
Í ávarpi sem þáverandi forstjóri
HB Granda, Vilhjálmur Vilhjálms-
son, flutti við vígslu sorpflokkun-
arstöðvarinnar sagði hann með-
al annars: „Af fenginni reynslu á
Vopnafirði og í Reykjavík var okkur
ljóst að við gátum með flokkunar-
stöð sem þessari komist hjá því að
urða tugi tonna af alls kyns endur-
nýtanlegu efni. Við viljum einfald-
lega sýna viljann í verki og því er
þessi starfsemi hér komin.“ Hann
bætti því við í samtali við Skessu-
horn að peningalega myndi starf-
semi sem þessi seint standa undir
sér, en virðing við sorpflokkun og
aukin umhverfisvitund væri sam-
félagsverkefni sem allir ættu að hafa
í hávegum.
Að sögn Guðjóns kemur frauð-
plast til stöðvarinnar í miklu magni.
Meðal annars er lax víða að af land-
inu og frá Færeyjum fluttur til verk-
unar á Akranesi í frauðplastkössum
sem enda síðan hjá Guðjóni. Áður
var frauðplastinu fargað með til-
heyrandi kostnaði. Brim fjárfesti í
vél til þess að tæta, hita og pressa
frauðplastið þannig að allt loft er
pressað úr plastinu. Út úr vélinni
kemur plastið í eins konar stöng-
um sem síðan eru sendar til frekari
endurvinnslu. Meðal annars sagði
Guðjón að myndarammar hjá Ikea
verði til úr plastinu frá stöðinni.
Guðjón tekur einnig á móti slétt-
um pappa sem hann pressar og
bindur fyrir flutning. Þá tekur hann
við kopar en koparinn kemur aðal-
lega úr rafmótorum sem verið er
að endurnýja. Allt efni sem er unn-
ið og flokkað í móttökustöðinni er
síðan skráð mjög nákvæmlega í um-
hverfisbókhald Brims.
Að lokum tók Guðjón fram að
honum berist mikið af pappaköss-
um sem af mörgum eru taldir vera
langbestu kassarnir til búslóða-
flutninga. Kassana hefur fólk feng-
ið endurgjaldslaust, það kostar að
farga þeim og því allra hagur ef fólk
getur nýtt kassana.
frg
Trésmiðja Akraness var stofnuð í
desember 2000 af húsgagnasmíða-
meistaranum Kristjáni Einarssyni,
Didda. Hann hafði þá búið í Kan-
ada um árabil en flutti til Íslands
árið 1999. Hann fór að vinna hjá
Trésmiðjunni Birki en þegar hún
hætti starfsemi ákvað Diddi að
kaupa Trésmiðjuna Birki og stofna
sitt eigið fyrirtæki. Það gekk hálf
erfiðlega í upphafi að finna nafn á
fyrirtækið. Ýmsar hugmyndir voru
á borðinu. Trésmiðja Íslands og
Innréttingar Kristjáns Einarsson-
ar Akranesi, skammstafað I.K.E.A.
en það hefði sennilega kostað mála-
ferli. Að endingu var ákveðið að
fyrirtækið skyldi heita Trésmiðja
Akraness ehf.
Í september 2013 varð fyrirtæk-
ið fyrir miklu áfalli þegar húsnæði
þess að Smiðjuvöllum 3 eyðilagðist
í eldsvoða. Einnig eyðilagðist allur
tækjabúnaður. Mörg verkefni voru
í gangi sem þurfti að klára og end-
ursmíða og hljóp Trésmiðjan Akur
undir bagga og útvegaði þeim að-
stöðu í sínu húsnæði að Smiðju-
völlum 9. Um tíma leit út fyrir að
fyrirtækið flytti starfsemi sína til
Keflavíkur en af því varð ekki. Í dag
er rekstur fyrirtækisins á tveimur
stöðum við Smiðjuvelli á Akranesi.
Framleiðslan er staðsett að Smiðju-
völlum 3 og samsetningarverk-
stæði og skrifstofa að Smiðjuvöll-
um 17. Starfsmenn eru tveir auk
Didda, Eiríkur Karlsson og og Ja-
rek Bielski. Eiríkur og Diddi hafa
starfað saman frá 1975 og stofnuðu
Tréhúsið árið 1978 ásamt öðrum.
Eiríkur hefur verið hjá Trésmiðju
Akraness frá byrjun og Jarek Bielski
frá 2007.
Fyrirtækið sérhæfir sig í sérsmíði
og innréttingum, sem sagt allt inn
í húsin að sólbekkjum, fara ekki
lengra. Það hefur tekið að sér ýmis
stór verkefni í smíði innréttinga auk
breytingaverkefna. Þá hefur fyrir-
tækið séð um breytingar á húsnæði
einkaaðila þar sem miklar kröf-
ur eru gerðar til vandaðra vinnu-
bragða. Á meðfylgjandi myndum
má sjá annars vegar bogadregnar
ofnagrindur og hins vegar loftbita
yfir stórum stigauppgangi í gömlu
einbýlishúsi að Hofsvallagötu 1 en
húsið var gert upp frá A til Ö. Að
sögn Didda voru mörg handtökin í
því húsi þar sem nostra þurfti við
smíði.
Þegar Skessuhorn bar að garði
var Diddi á fullu við að setja sam-
an skápa og tregur til þess að setj-
ast að spjalli enda er hann hlaðinn
verkefnum og mikið að gera. Diddi
verður 67 ára í janúar 2021 þó ekki
megi merkja aldurinn á úthaldinu
né útliti. Diddi segjast vera farinn
að huga að því að minnka við sig
vinnu en ekki hætta henni alveg
enda stórvarasamt að hætta alveg
að vinna, þá verði maður gamall
alltof fljótt.
frg
Föstudaginn 4.
desember síðast-
liðinn, á afmæl-
isdegi Hannesar
Hafstein voru úr-
slit í Lagakeppni
Hannesarholts,
Leynist lag í þér?
kunngjörð. Þar
kom sá og sigraði
Valgerður Jóns-
dóttir á Akranesi
með lagið sitt við
ljóðið „Áraskiptin
1901-1902.“
F y r i r k o m u -
lag keppninnar
var að keppend-
ur sömdu lög við
ljóð Hannesar
Hafstein. Þátttaka
í keppninni fór
fram úr björtustu
vonum en 205 lög frá 175 tónlist-
armönnum skiluðu sér í keppnina.
Dómnefnd valdi lög til sigurs í þrjú
efstu sætin en dómnefndin var skip-
uð Kristjönu Stefánsdóttur, Þórði
Magnússyni og Tryggva Kolbeins-
syni. Alls voru send inn lög við 48
ljóða Hannesar, sem eru afar ólík að
efni. Tónlistin spannaði fjölbreytt
svið, þar á meðal ballöður, kórverk,
rapp og einsöngslög. Lagahöfundar
höfðu frjálst val um ljóð og nokkrir
sendu inn fleiri en eitt.
Fyrstu verðlaun hlaut eins og
áður sagði Valgerður Jónsdóttir fyr-
ir lag við ljóðið Áraskiptin 1901-2,
önnur verðlaun hlaut ЯÚN Guð-
rún Ólafsdóttir með lag við ljóðið
Vísur á sjó og þriðju verðlaun hlaut
Fransisco Javier Jáuregui með lag
við ljóðið Blessuð sólin elskar allt.
Loks hlutu sérstök húsverðlaun
Silkikettirnir, þær Guðrún Hulda
og Bergþóra Einarsdóttir með lag
sem þær nefna Andans dóttir við
ljóðið Strikum yfir stóru orðin.
Í samtali við Valgerði sagðist
hún verað ótrúlega glöð og stolt
og finnst þetta mikill heiður. „Ég
valdi þetta ljóð því mér fannst það
eiga ótrúlega vel við í dag, þó það
sé samið um áramótin 1901-1902.
Það er hvetjandi og fyllir mann
bjartsýni sem mikil þörf er á núna.
Valgerður setti saman myndband
fyrir afhendingu verðlaunanna,
sem var rafræn. Í því getur að líta
fallegar landslagsmyndir sem hún
fékk að láni hjá nokkrum góðum
ljósmyndurum. frg
Kistan – flokkunarstöð.
Frauðplast verður að Ikea
myndarömmum
Guðjón Finnbogason við pressað frauðplast.
Frauðplastkassar, þar á meðal frá
Færeyjum.
Valgerður er sigur-
vegari í Lagakeppni
Hannesarholts
Sex metra langur loftbiti að Hofsvallagötu í Reykjavík. Ljósm. ke.
Trésmiðja Akraness tuttugu ára
Starfsmenn Trésmiðju Akraness; Jarek Bielski, Eiríkur Karlsson og Kristján Einars-
son. Ljósm. frg. Bogadregnar ofnagrindur að Hofsvallagötu í Reykjavík. Ljósm. ke.