Ægir

Volume

Ægir - 2020, Page 16

Ægir - 2020, Page 16
16 Fiskistofa hefur látið smíða, í sam- starfi við Hafrannsóknastofnun og hugbúnaðarfyrirtækið Stokk, smáfor- ritið Afladagbókina. Innleiðing á notk- un smáforritsins fyrir snjalltæki í stað afladagbóka á pappír hefst á næstunni. Stærri skip skila rafrænum afladag- bókum til Fiskistofu en flestallir smábátar hafa skilað afladagbókum á pappír. Hægt er að sækja forritið í App Store og Play Store í snjalltækjum en beðið er eftir reglugerð frá atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytinu um notkun smáfor- ritsins áður en hún getur hafist. Afladagbókin virkar þannig að ein- göngu þarf að vera í síma- eða netsam- bandi við upphaf og lok veiðiferðar. Afla- dagbókin skráir sjálfkrafa staðsetningu bátsins við veiðar og skipstjórnarmenn skrá afla, ástand hans og meðafla með einföldum hætti í forritinu. Fáum blandast hugur um að með til- komu appsins er stigið stórt framfara- skref sem felur í sér bætta yfirsýn og vinnusparnað fyrir útgerðir, skipstjórn- armenn sem og stjórnsýslu. Ný tækni kynnt Afladagbókin í snjallsímann ■ Einfalt er að slá inn aflaupplýsingar í nýja snjallforritið og senda afladagbókina til Fiskistofu. Nú um mánaðamótin flytur fyrirtækið Markus Lifenet, sem sérhæfir sig í framleiðslu á svokölluðum „maður fyrir borð“ björgunarvörum, alla starfsemi sína í nýtt húsnæði í Hafn- arfirði. Fyrirtækið hefur verið til húsa að Gjáhellu 13 en flytur nú að Hval- eyrarbraut 27. „Við tvöfölduðum húsnæðið þegar við fluttum í Gjáhelluna á sínum tíma og gerum það aftur við þennan flutn- ing. Öll okkar starfsemi verður hér á einum vinnustað þar sem eingöngu vinna nú konur. Þetta er því sannkall- aður kvennavinnustaður,“ segir Rakel Ýr Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Markus Lifenet. Markus Lifenet í nýtt húsnæði Fréttir

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.