Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 8

Ægir - 2019, Blaðsíða 8
„Flestir hljóta að vera sammála því að nú á dögum hnattrænnar hlýnunar og súrnunar sjávar er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa vel að hafrannsóknum. Miklar breytingar eru að verða í vistkerfi hafsins og við þurfum að nota alla okkar þekkingu og reynslu til að kortleggja þróunina og bregðast við ef hægt er. Við höfum sérstaklega áhyggjur af loðnunni en hún er ein helsta fæða þorsksins sem stór hluti lífsafkomu Íslendinga byggir á. Hafrannsóknastofnun er reiðubúin að leggja sitt af mörkum enda mikið í húfi,“ segir Sigurður Guðjónsson, for- stjóri Hafrannsóknarstofnunar í sam- tali við Ægi. Nýr heimur mun opnast Hafrannsóknastofnun, rannsókna­ og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, varð til með sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar og tók hún til starfa 1. júlí árið 2016. Strax um haustið völdu starfsmenn gildi fyrir stofnunina en þau eru: þekking, samvinna og þor. „Við vorum sammála um að þessi hugtök lýsi vel því sem stofnunin og starfsmenn vilja standa fyrir. Með sameiningu tveggja stofnana varð auðvitað að stokka spilin upp og breyta verklagi á ýmsum sviðum og get ég fullyrt að starf­ semin hafi gengið vel. Nú í haust tókum við aftur til við aðlögun rekstrarins að þeim fjárhagsstakki sem okkur er snið­ inn auk þess sem við unnum að skipu­ lagi stofnunarinnar á nýjum stað. Því miður þurftum við að segja upp góðu starfsfólki en stundum verður ekki hjá slíku komist ef við viljum sýna ábyrgð í verki,“ segir Sigurður. Sigurður segir að fljótlega eftir að ný stofnun komst á fót hafi verið auglýst eftir húsnæði til leigu þar sem starfsem­ in hefði fyrsta flokks aðstöðu til að þró­ ast inn í framtíðina. „Niðurstaðan varð sú að við tókum á leigu húsnæði til næsta aldarfjórðungs við Fornubúðir 5 í Hafnarfirði og munum ljúka flutningum þangað undir næsta vor. Þarna verður öll aðstaða á einum stað, bæði rann­ sóknaaðstaða og útgerð skipanna sem munu liggja í Hafnarfjarðarhöfn, rétt ut­ an við nýja húsið. Þetta er stórglæsileg bygging þar sem hugsað er fyrir öllum þörfum stofnunarinnar og verður mikil framför fyrir starfsemina. Þá sjáum við líka fram á mikla breytingu hvað varðar Það er mikið í húfi Rætt við Sigurð Guðjónsson, forstjóra Hafrannsóknarstofnunar 8 ■ Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofn- unar. „Aflabrestur í loðnuveiðum er alvarlegt mál en við höfum þó meiri áhyggjur af afleiðingum þeirrar þróunar á þorskstofninn.“

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.