Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 36

Ægir - 2019, Blaðsíða 36
36 og sagði að auðvitað væri engin spurn­ ing að ég tæki þessu boði. Ég fór svo síð­ asta túrinn með Hjalteyrinni í byrjun september, við lönduðum þann 6. sept­ ember og daginn eftir flaug ég til Nor­ egs. Og um miðjan nóvember komum við heim með skipið. Þetta hefur því verið nokkuð viðburðaríkt ár. Stefnan var sú hjá mér að fara í sveinsprófið í rafvirkj­ uninni núna í febrúar en ég læt það bíða um sinn. Núna gengur Harðbakur fyrir,“ segir Friðrik og brosir. Fjölbreytileiki starfsins heillar Harðbakur er búinn tveimur aðalvélum, ljósavél, rafölum og öðrum þeim vélbún­ aði og stjórnbúnaði sem best gerist í fiskiskipum í dag. En hvað er það við starf vélstjóra á skipi sem heillar Friðrik öðru fremur? „Fyrst og fremst sú fjölbreytni sem fylgir starfinu í skipum. Ég er í eðli mínu mjög fróðleiksfús en mér finnst heillandi að þurfa að takast á við allan vélbúnað um borð, sama hvort það snýr að því sem er hér í vélarrúminu, tækjunum á millidekkinu eða öðrum búnaði. Vélstjóri á skipi getur líka þurft að leysa mál sem snúa að lögnum eða þá einhverju sem tengist rafeindatækjunum í brúnni. Þess vegna tel ég að það sé mjög gott að hafa líka menntun og reynslu í rafvirkjun samhliða. Rafmagnsframleiðsla er til dæmis einn af lykilþáttum í skipum en hér framleiðum við rafmagn, spennum það niður, dreifum því og notum það. Svo er viðamikið netkerfi um borð í skip­ inu, lagnir sem skipta tugum eða hundr­ uðum kílómetra og þar fram eftir götun­ um. Fyrir svo utan alla pappírsvinnuna, vottunarmál og margt annað sem að starfinu snýr. Þannig að í stuttu máli má segja að starfssvið vélstjóra á skipi nái langt út fyrir vélarrúmið sjálft. Sem er að mínu mati líka það sem gerir starfið ennþá skemmtilegra fyrir vikið,“ segir Friðrik og nefnir að það hafi verið mjög lærdómsríkt að hafa fylgt smíðinni og lokafrágangi í skipinu eftir síðustu mán­ uðina og vita þannig hvernig öllum hlut­ um er fyrir komið um borð. Viðamikil skjámyndakerfi eru í skipinu sem skip­ stjórnendur og vélstjórar nota í sinni daglegu vinnu og því er ekki úr vegi að spyrja Friðrik hvort það komi honum ekki til góða að vera af þeirri kynslóð sem þekkir ekki annað en tölvur séu snar þáttur í bæði leik og starfi. „Sjálfur hef ég reyndar aldrei verið mikið í tölvum, eins og sagt er. Hef lítið sem ekkert gert af því að spila tölvuleiki eða slíkt en er samt vanur tölvuum­ hverfinu og slíkri vinnu. Þetta er snar þáttur í umhverfinu í dag og tengist vél­ stjórnarstarfinu mjög náið. Tölvukerfið í skipinu er eitt af því sem ég kem til með að leggjast enn betur yfir þar til við för­ um að róa en stóri kosturinn er sá að það kerfi er hannað innan Samherja og besta þekkingin á því er þar af leiðandi innahúss, ef svo má segja,“ segir Friðrik um leið og hann sýnir hluta af þeim stjórnbúnaði sem hann hefur á skjánum í stjórnherbergi vélstjórans. Það sýnist harla einfalt að kalla fram nánasta hvaða upplýsingar sem er um skipið og búnað þess. Best að halda ró sinni Friðrik viðurkennir að hann hafi fengið þá spurningu hvers vegna hann velji að nýta sína menntun og þekkingu til að fara á sjó. „Já, sú spurning hefur komið. Svarið er að mér þykir þetta einfaldlega spenn­ andi starf, víðtækt og gefur mikla reynslu. Ég geri mér grein fyrir því að það geta komið upp alls kyns verkefni sem vélstjórinn þarf að leysa úr og þá er bara að lykilatriði að halda ró sinni þó allt virðist vera að fara í bál og brand! Vélstjórinn er maðurinn um borð sem verður bara að redda málunum en mér hefur lærst á þeim tíma sem ég hef verið á sjónum að þá er besta leiðin að taka sér tíma í rólegheitunum og nálgast mál­ in af yfirvegun. En þetta mun vafalítið bara lærast eins og annað,“ segir Friðrik sem mun á næstu vikum vinna um borð í alls kyns verkefnum sem snúa að starf­ inu, jafnframt því að fylgjast með upp­ setningu vinnslubúnaðarins. „Vonandi verður ekki langt liðið á veturinn þegar við getum komist í fyrsta túr. Ég hlakka mikið til,“ segir hann. ■ Friðrik á togdekkinu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.