Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Blaðsíða 20

Ægir - 2019, Blaðsíða 20
20 Willard Fiske Ólason fæddist í Grímsey árið 1936 þegar allt byggðist á sjálfsþurft- arbúskap. Allir voru með búskap, kindur og kýr, og lifðu svo auk þess á fiski og fugli. „Það voru held ég 30 kýr í eynni þá og svo voru menn með 20 upp í 60-70 kindur á fóðrum. Það var í alltaf nægur matur til. Það sem vantar á eyjuna núna eru skepnur því hún er mjög grösug og það er auðvitað fuglinn sem sér svolítið um það. Nú er helmingi meira af fugli í eynni en þegar ég var að alast upp. Þá var hann mikið nytjaður, miklu meira en nú. Áður var sigið í öll björg og eggin hreinsuð upp en fuglinn verpir alltaf aftur. Þeir fullyrða í dag að ekki sé pláss fyrir fleiri fugla í bjarginu. Þeir bíði bara í röð til að komast á syllu til að verpa,“ segir Willard Fiske fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður. Við höldum okkur í Grímsey og við uppvaxtarár Willards. „Ég byrjaði á ára­ báti með Matthíasi Jakobssyni þegar við vorum sjö ára, báðir ósyntir en enginn var hræddur um mann. Við vorum nærri eyjunni svo alltaf sást til okkar. Þá var rekið frystihús í eyjunni og við reyndum að leggja upp hjá því. Fiskurinn var þá frystur með roðinu en þar sem við vor­ um svo nálægt eyjunni vorum við mest með rauðlitaðan þarafisk sem þeir vildu ekki svo hann fór bara til heimilisbrúks. En við reyndum samt að smygla einum og einum inn á milli. Við fengum svo borgað út í peningum, sem reyndar sáust varla í eyjunni fyrst þegar ég var að alast upp. Þá var nýlega komið útibú frá Kaupfélagi Eyfirðinga en áður sóttu menn mest til Húsavíkur í verslunar­ ferðir. Með kaupfélaginu var verslun op­ in á hverjum degi og þar var bara skrif­ að hjá hverjum og einum. Svo fór kaup­ félagsstjórinn yfir reikninga þegar gert var upp og ef einhverjir áttu inni, færði hann frá þeim til þeirra sem voru skuld­ ugir það sem þurfti til að jafna reikning­ inn fyrir bókhaldið í einn dag. Svo var það fært til baka daginn eftir.“ Frí frameftir páskadegi Fyrstu sjómennskuárin réri Willard á trillu við eyjuna og byrjaði svo 19 ára Keyptum ekkert nema eiga nokkurn veginn fyrir því Willard Fiske Ólason segir frá fiskveiðum á fyrri tíð og rekstri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Fiskaness ■ Fyrsti bátur þeirra félaga í Fiskanesi hét Geirfugl. Hann var keyptur frá Húsavík og hét áður Héðinn.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.