Ægir - 2019, Blaðsíða 24
24
ingarnir og Finnar komu líka. Þeir voru
með „fullt“ skip af brennivíni, þegar þeir
komu. Þegar þeir lágu í vari var straum
urinn um borð því þetta var eins og vín
búð. Það var mikið fjör í þessu og mann
fjöldinn á Siglufirði margfaldaðist þegar
það voru brælur. Svo fór að draga úr
síldveiðinni sem færðist stöðugt austar
og þá vorum við að veiða innanum
Rússana á Rauða Torginu austur af
Glettingi. Þeir voru þá með reknet sem
skapaði ákveðin vandræði fyrir okkur á
nótaskipunum.“
Kvótakerfið það besta
Willard segir kvótakerfið það besta sem
komið hafi fyrir íslensku þjóðina.
„Við vorum að þurrka þorskstofninn
upp þegar það var sett á árið 1984. Þá
komst betri stjórn á veiðarnar og um
gengnin um fiskinn varð miklu betri. Þá
fóru menn að hugsa meira um verðmæti
en magn og fá meira út úr auðlindinni.
Þetta skapaði því mikla hagræðingu.
Skipunum fækkaði og þau sem eftir voru
fengu meiri aflaheimildir og betri rekstr
argrundvöll. Þeir fengu að veiða sem
höfðu verið að því áður og fengu úthlut
að í samræmi við reynslu. Svo má deila
um útfærsluna eftir það, sölu veiðiheim
ilda, veiðigjald og fleira. En það verður
aldrei sátt um fiskveiðistjórnunina, því
miður. Kannski ætti það að vera þannig
að þegar menn hætti útgerð ættu menn
að skila því í einhvern sameiginlegan
pott.
Þróunin síðustu árin er orðin þannig
að það er allt unnið. Roðið er meira að
segja orðið verðmætt. Þegar maður var
fyrst á vertíðum var fiskurinn ísaður í
stíur og við löndun hrúgað upp á vöru
bílspalla og sturtað inn í vinnsluna. Svo
komu körin og kassarnir og meðferðin á
fiskinum eins og svart og hvítt.
Maður er búinn að lifa tímana tvenna
frá árabátum yfir í nýtísku skip. Og bara
síðan ég hætti er nánast orðin bylting í
öllu, bæði í veiðum og vinnslu. Komnar
græjur sem maður hefði ekki einu sinni
látið sig dreyma um. Ég efast um að
nokkur kynslóð eigi eftir að upplifa eins
gríðarlegar breytingar og mín kynslóð,“
segir Willard Fiske Ólason.
■ Willard við málverk af Grindvíkingi. Á þessum bát frysti hann loðnuhrogn um borð fyrstur manna.
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík