Ægir

Volume

Ægir - 2019, Page 22

Ægir - 2019, Page 22
22 byrjun því við þurftum allir að veðsetja húsin okkar fyrir láninu á bátnum. Þetta varð að ganga því annars hefðum við misst húsin.“ Stækkuðu smátt og smátt Willard segir að Geirfugl hafi reynst mikið happaskip en „við fengum lán hjá fyrirtækinu Arnarvík til að kaupa hann með því skilyrði að við lönduðum hjá þeim í fjögur ár. Við sáum að það var mikið upp úr verkuninni að hafa og drif­ um okkur því að byggja stórt fiskverk­ unarhús. Við keyptum svo síldarskip frá Sandgerði sem við skírðum Grindvíking. Björgvin fór yfir á hann, ég tók við Geir­ fuglinum en Dagbjartur sá um vinnsluna í landi. Við stækkuðum svona smátt og smátt, verkuðum saltfisk og söltuðum síld. Loks fór það þannig að við keyptum Arnarvíkina. Við vorum þá komnir með frystihús og stærstu saltfiskverkunar­ hús á landinu, held ég. Við keyptum þá fisk af öðrum bátum og bættum svo við okkur einu og einu skipi þegar við höfð­ um efni á því. Ég held að við höfum mest verið með sjö skip. Við keyptum á þess­ um tíma ekki neitt nema við ættum nokkurn veginn fyrir því.“ Frystu loðnuhrogn um borð Síðasta stóra verkefni fyrirtækisins var smíði á nýjum Grindvíkingi en það var smíðað í Svíþjóð og innréttað í Dan­ mörku. „Þetta varð flaggskipið okkar, mjög gott skip. Við Björgvin vorum með hann til skiptis en síðustu 5­6 árin var ég einn með hann. Við vorum á honum á nót og svo var loðnan komin til sögunnar. Þetta var skip sem bar hátt í 1.200 tonn. Við fengum mest upp úr honum um 1.190 tonn. Upp úr 1980 frystum við loðnu­ hrogn um borð á vertíðinni sem var eig­ inlega mesta ævintýrið af þessu öllu. Frystigetan var kannski ekki alveg næg en við gátum fryst um 20 tonn á sólar­ Willard Fiske, er ekki algengt nafn. En þeir voru þó fjórir þegar Willard Fiske Ólason var skírður. Daniel Willard Fiske var auðkýfingur sem hafði mikinn áhuga á íslenskri bókaút­ gáfu og ferðaðist um landið til að safna bókum en kom þó aldrei út í Grímsey. Eyjuna tók hann engu að síður upp á arma sína í kringum aldamótin 1900. Honum þótti mikið til koma að fólk gæti haldið til í eynni og þegar hann hafði af því fregnir að þar væru góðir skákmenn, jókst áhugi hans enn frekar. Hann sendi töfl inn á hvert heimili í eynni, gaf mikið bókasafn og háa fjárhæð til að byggja þar skóla eftir að hann komst í samband við prestinn í eynni, Matthías Egg­ ertsson sem var bróðursonur Matthíasar Jochumssonar. Hann sendi Fiske meðal annars skákir eftir einn af íbúum Grímseyjar, en hann hafði farið til meginlandsins að tefla og náði þar góðum árangri. „Mönnum þótti mikil til koma en gjöfin, sem var um 13.000 ríkisdalir, var gífurlegt fé í þá daga. Það voru margir for­ eldrar sem létu heita í höfuðið á þessum mesta velgjörðar­ manni Grímseyjar, þar á meðal presturinn, Matthías Eggerts­ son. Sonur hans fórst í bjarginu rétt áður en ég fæddist og var ég skírður í höfuðið á honum og Fiske,“ segir Willard. ■ Willard og Valgerður Gísladóttir hafa verið gift í 60 ár. Hún er Grindvíkingur en hann kom suður á vertíð frá Grímsey. Óalgengt nafn ■ Grindvíkingur siglir inn Eskifjörð með fullfermi.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.