Ægir - 2019, Qupperneq 35
35
menntaskólanum á Akureyri,“ segir Frið
rik.
Árið 2016 fengu þeir tveir félagarnir
úr vélstjórninni, Friðrik og Benedikt Orri
Pétursson, að fara hvor sína tvo makríl
túra á uppsjávarskipi Samherja hf., Vil
helm Þorsteinssyni EA, þar sem þeir
fengu að fylgjast með daglegum störfum
vélstjórnarmanna sem aukamenn í vél.
Þeir túrar voru hreint ekki til draga úr
vélstjórnaráhuga Friðriks. „Þetta var
mikil upplifun fyrir okkur, nokkurs kon
ar starfskynning fyrir verðandi vél
stjóra,“ segir Friðrik.
Tók sér 45 mínútna
umhugsunartíma
Á meðan á vélstjórnarnáminu stóð starf
aði Friðrik á vélaverkstæðum á Akureyri
og fór einnig túra á sjó, bæði sem háseti
á skipum Samherja og síðar í afleysing
um í vélstjórn á togaranum Frosta ÞH á
Grenivík. Eftir að náminu lauk varð Frið
rik vélstjóri á togarnum Hjalteyrinni EA
og var þar til síðustu áramóta þegar
hann og Benedikt Orri fóru saman suður
yfir heiðar til að sækja sér bóklegt við
bótarnám í rafvirkjun ofan á vélstjórn
arnámið. Því luku þeir síðastliðið vor og
þá fór Friðrik aftur á Hjalteyrina EA en í
júlí fékk hann símtalið frá Kristjáni Vil
helmssyni, útgerðarstjóra Samherja hf.
með boðinu um yfirvélstjórastöðuna á
nýja Harðbak EA sem þá var langt kom
inn í smíðum hjá Vard skipasmíðastöð
inni í Noregi. „Ég tók mér 45 mínútur í að
hugsa málið og hringdi til baka í Kristján
Harðbakur EA kom til heimahafnar á Akureyri nú í nóvember í fyrsta sinn. Nú
er að hefjast vinna við að setja upp vinnslu- og aflakælibúnað á millidekki hjá
Slippnum Akureyri. Friðrik segist vonast til að skipið komist á veiðar áður en
langt verður liðið á veturinn. „Ég hlakka mikið til,” segir hann.
Sjómennskan