Ægir - 2019, Blaðsíða 42
42
Útflutningsverðmæti eldisafurða
námu um 3,1 milljarði króna í október
og hafa ekki verið meiri í einum mán-
uði. Það er vel yfir þreföldun í verð-
mætum miðað við sama mánuð í
fyrra, bæði í krónum talið og í er-
lendri mynt. Gengi krónunnar var að
jafnaði um 3% veikara í október síð-
astliðnum en í sama mánuði í fyrra
miðað við gengisvísitölu. Var því
minni munur á genginu á milli ára en
verið hefur á öðrum mánuðum ársins
enda veiktist gengið nokkuð hressi-
lega á haustmánuðum 2018. Þetta má
sjá í tölum sem Hagstofa Íslands hefur
birt.
Tveir milljarðar á mánuði
Í umfjöllun um stígandann í eldisafurða
framleiðslunni á heimasíðu Samtaka fyr
irtækja í sjávarútvegi er segir að á
fyrstu 10 mánuðum ársins sé útflutn
ingsverðmæti eldisafurða komið upp í
rúma 19,9 milljarða króna.
„Það er um 90% aukning í krónum tal
ið á milli ára en rúm 70% að teknu tilliti
til gengisáhrifa. Gengi krónunnar var að
jafnaði 10% veikara á fyrstu 10 mánuð
um ársins en á sama tímabili í fyrra. Er
það stóraukin framleiðsla sem skýrir
þessa aukningu, sér í lagi á eldislaxi. Þar
af nam verðmæti lifandi eldislax, þar
með talið seiði, rúmlega 1,9 milljarði
króna á tímabilinu samanborið við tæpa
1,5 milljarð á sama tímabili í fyrra. Er
aukning þar hátt í 30% á milli ára. Rímar
þessi þróun afar vel við spá okkar um að
verðmæti eldisafurða verði í kringum 24
milljarða króna í ár.“
Kærkomin viðbót við útflutning
SFS segir að öflugur og fjölbreyttur út
flutningur sé grundvallarforsenda þess
að Íslendingar geti búið við þau lífsgæði
sem við þeir kjósi.
„Er því óhætt að segja að ofangreind
þróun sé kærkomin búbót við útflutn
ingstölur þjóðarbúsins, sem í heild eru
ekki upp á marga fiska í ár. Þannig hafa
verið fluttar út vörur fyrir rúma 543
milljarða króna í ár, 51 milljarði króna
meira en á sama tímabili í fyrra. Þar af
skýrir útflutningur skipa og flugvéla
rúma 24 milljarða, en nettó áhrifin af
slíkum útflutningi eru engin á þjóðar
hag, þar sem á móti auknum útflutningi
kemur það sem samdráttur í fjárfestingu
í þjóðhagsreikningum. Þannig að án
skipa og flugvéla og að teknu tilliti til
gengislækkunar krónunnar, dregst
vöruútflutningur saman um tæp 5% milli
ára. Þar að auki hefur verið talsverður
vöxtur í útflutningi hátæknibúnaðar
fyrir sjávarútveg og matvælaframleiðslu
undanfarið, en erfitt er að festa hönd á
nákvæma fjárhæð í þeim efnum þar sem
hún kemur fyrir í allmörgum liðum í út
flutningstölunum. Seðlabankinn gefur
þessum lið einmitt gaum í síðustu spá
sinni, auk eldisafurðanna, og reiknar
með talsverðum vexti sem mun vega
eitthvað upp á móti þeim samdrætti sem
á sér stað í flestum öðrum liðum útflutn
ings.“
Fiskeldi
Útflutningsverðmæti
eldisafurða nær nýjum hæðum
■ Eins og sjá var slegið nýtt með í verðmætum eldisafurða í október.
■ Fiskeldiskvíar á fögrum vetrardegi í Arnarfirði. Segja má að Vestfirðir séu í fararbroddi í fiskeldi og afurðavinnslu í
greininni.