Morgunblaðið - 16.06.2020, Side 4
SKIMANIR HAFNAR Á LANDAMÆRUNUM4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020
Alexander Kristjánsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Átta farþegaflugvélar lentu á Kefla-
víkurflugvelli í gær með um 900 far-
þega. Skimun fyrir kórónuveirunni
meðal ferðamanna hófst á vellinum í
gær en nýjar reglur um komur ferða-
manna til landsins hafa tekið gildi og
þurfa þeir nú ekki að fara í tveggja
vikna sóttkví við komuna til landsins
ef þeir undirgangast skimun á vell-
inum. Skimunin er frí til 1. júlí en eftir
það kostar hún 15.000 krónur. Sýnum
úr hverri vél er safnað saman og þau
send til Reykjavíkur í greiningu.
Jórlaug Heimisdóttir, verkefna-
stjóri skimunar á Keflavíkurflugvelli,
segir að skimunin hafi gengið vel fyrir
sig fyrstu tímana. „Farþegarnir voru
ótrúlega skilningsríkir og flottir og
bjuggust greinilega við þessu,“ segir
hún.
Almenn ánægja var með fyrir-
komulagið meðal ferðamanna, sem
mbl.is ræddi við á vellinum.
„Þetta var smá súrrealískt en ann-
ars bara venjulegt,“ segir Kristján
Oddsson, sem búsettur er í London.
Hann kom til landsins með fyrstu vél
gærdagsins með flugfélaginu Wizz
Air og var meðal fyrstu farþega til að
fara í skimun. „Skimunin var mjög
auðveld. Þetta var bara eitthvert prik
sem fór í hálsinn á manni og inn í nefið
og tók tvær sekúndur.“
Orla Hendrickson frá Skotlandi var
einnig í vélinni, en hún á kærasta hér
á landi. Hún segir ferlið hafa gengið
vel fyrir sig.
Einum meinuð innganga
Sigurgeir Sigmundsson, yfirlög-
regluþjónn flugstöðvardeildar lög-
reglunnar á Suðurnesjum, segir
skimunina hafa farið vel fram. Einum
Bandaríkjamanni var þó meinuð inn-
ganga í landið og vísað aftur til Bret-
lands, en hann kom þaðan. Íbúar frá
ríkjum utan Evrópusambandsins,
Schengen-svæðisins og Bretlands
mega enn ekki koma hingað til lands
nema þeir hafi hér dvalarleyfi eða séu
á undanþágu. Vonast er til að það
breytist 1. júlí. „Þetta var ekkert út af
sýnatöku eða sóttvarnaráðstöfunum
heldur mátti hann bara ekki koma til
landsins,“ segir Sigurgeir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Beðið Leigubílstjórar biðu eftir komufarþegum í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærmorgun, þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins gerðu sér ferð þangað. Loks var líf yfir Leifsstöð.
Skimuðu fyrir veiru í Leifsstöð
Um 900 farþegar komu með átta flugvélum til landsins í gær Skimun fyrir veiru við komu til lands-
ins verður frí til 1. júlí Einum erlendum ferðamanni vísað frá landi Almenn ánægja meðal farþega
Fagnaðarfundir Sumir farþegar höfðu verið lengi fjarri fjölskyldu sinni.
Áform um að senda sýnatökuteymi
með aðstoð Landhelgisgæslu frá
Reykjavík og Egilsstöðum til móts
við Norrænu í gærmorgun gengu
ekki eftir sökum slæmra skilyrða til
lendingar í Færeyjum.
Fyrirhugað var að sýni yrðu tekin
úr farþegum um borð í ferjunni á leið
hennar til Seyðisfjarðar til að athuga
hvort nokkur bæri með sér kórónu-
veirusmit,og að sýnatökunni yrði lok-
ið við komuna hingað til lands.
Í stað þess fyrirkomulags er nú
gert ráð fyrir að sýni verði tekin úr
farþegum við komu ferjunnar til
Seyðisfjarðar í dag en sýnatakan fari
samt sem áður fram þar um borð.
Bókanir í ferðir Norrænu til Ís-
lands hafa verið að taka við sér eftir
heldur daprar vikur og mánuði vegna
kórónuveirufaraldursins. Von er á
150 farþegum í þessari ferð og í byrj-
un júlí, þegar sumaráætlun ferjunnar
tekur gildi, eru bókaðir 550 farþegar.
Fleiri áttu bókað far en hluti þeirra
afbókaði sig í kjölfar tilkynningar
stjórnvalda um að greiða þyrfti 15
þúsund króna gjald fyrir skimunina
eftir 1. júlí.
Sýnin fara með flugi til greiningar
hjá Íslenskri erfðagreiningu en á
meðan beðið er niðurstöðu geta far-
þegarnir farið í náttstað, þar sem þeir
eiga pantað.
Linda Gunnlaugsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi,
kvaðst í samtali við Morgunblaðið
fyrir helgi ánægð með að ferðaþjón-
ustan væri að taka við sér og vonaðist
til að hún héldi áfram að glæðast.
Náðu ekki að
skima á leiðinni
Sýni tekin í Norrænu á Seyðisfirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Norræna Taka átti sýnin um borð í ferjunni á leiðinni til landsins.
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 9:00-16:30 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
Breskir fréttamenn frá banda-
rísku sjónvarpsstöðinni CNN
voru meðal fyrstu farþega
sem komu hingað til lands í
morgun, eftir að slakað var á
ferðatakmörkunum til lands-
ins.
Fréttamaður og myndatöku-
maður stöðvarinnar komu með
fyrstu vél frá Lundúnum. Þeir
hyggjast verja um viku í land-
inu og segja frá viðbrögðum
íslenskra heilbrigðisyfirvalda
og stjórnvalda við faraldrinum,
opnun landsins og hlutverki
Íslenskrar erfðagreiningar.
Fréttamenn
CNN á landinu
VEKUR ATHYGLI ERLENDIS