Morgunblaðið - 16.06.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 16.06.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Margir hafahorft á það undarandi, hversu ístöðusmáir, vinstri- sinnaðir stjórn- málamenn misstu fljótt fótanna og sneru baki við lög- gæslumönnunum sem sýna fórnfýsi og gæta fáliðaðir öryggis borg- aranna. Páll Vilhjálmsson skrifar:    Það sem hét vestræn menningfyrir fáeinum dögum heitir núna „kerfið“. Og kerfið er rasískt hvort heldur í Bretlandi, Banda- ríkjunum, Kanada, Frakklandi eða á öðru byggðu bóli vestrænnar menningar.    Leiðari Telegraph í Bretlandisegir yfirvöld án myndugleika og lögreglu ekki tryggja almanna- frið. Frjálslyndir vinstrimenn í Bandaríkjunum vilja ganga lengra og afnema lögregludeildir stór- borga – enda eru þær vörn kerf- isins.    Kerfið, sem til skamms tíma hétvestræn menning, þarf að hrynja. Í hruni endurnýjast menn- ing. Óhjákvæmilega fylgir ofbeldi og eignatjón. Hruni kerfismenn- ingar fylgja öfgar sem aðeins skammtur af ofbeldi læknar. Evr- ópa þurfti stóran skammt ofbeldis 1914-1918 en Bandaríkin öllu smærri í Víetnamstríðinu.    Enginn mannlegur máttur finn-ur réttan skammt ofbeldis. Síkvikar aðstæður skrifa lyfseð- ilinn. Þegar óöldin er um garð gengin og dauðir komnir í frostfría jörð klóra menn sér í kollinum og spyrja: til hvers vor- um við að þessu?    Hmm, jú, til að skapa okkurbetri menningu.“ Páll Vilhjálmsson Kikna í hnjáliðum STAKSTEINAR Toyrun-rúnturinn 2020 fer af stað á morgun, 17. júní, frá N1 við Ártúns- höfða. Toyrun Iceland eru góðgerð- arsamtök sem ferðast um á mótor- hjólum og styrkja í leiðinni góð málefni. Að þessu sinni verður hjólað um landið til styrktar Píeta samtök- unum sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Til sam- takanna geta leitað einstaklingar og aðstandendur sem vilja fá hjálp og viðtalsmeðferð hjá fagfólki sér að kostnaðarlausu. Samtökin opnuðu fyrir þjónustu sína vorið 2018 og eru með starf- semina á Baldursgötu 7 í Reykja- vík. Starfsemin er rekin að fyr- irmynd og eftir hugmyndafræði Pieta House á Írlandi. Þetta er fimmta árið sem ToyRun Iceland er starfrækt. Í upphafi var það svo að einn úr upphafshópnum ætlaði sér að hjóla hringinn um landið og fékk hann nokkra félaga með sér í að skipuleggja ferðina. Snemma kom það upp að vilji var til að ferðin hefði tilgang. Úr því varð það að hjóla til styrktar ein- hverju góðgerðarfélagi sem myndi njóta góðs af hringferð þeirra og varð verkefnið Blátt áfram sam- starfsaðili þeirra til að byrja með. Það samstarf varði í tvö ár en núna síðustu ár hefur ToyRun Iceland styrkt starfsemi Píeta-samtakanna. Toyrun-rúnturinn af stað um landið  Hjóla um landið til styrktar Píeta- samtökunum og starfsemi þeirra Ljósmynd/Toyrun Rúntur Frá fyrri hringferð Toyrun til styrktar Píeta-samtökunum. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Snorri Másson snorri@mbl.is Konur voru í miklum meirihluta í hópi þeirra sem þreyttu inntökupróf við læknadeild Háskóla Íslands þetta vorið. Samtals voru 314 sem greiddu prófgjaldið en 225 þeirra voru konur. Það gerir hlutfall kvenna um 71%, en karlar sem sóttu um voru 89 tals- ins. Ekki er öruggt að nákvæmlega þessi fjöldi fólks hafi síðan tekið prófið þótt líklegt sé að á milli þeirra sem greiddu gjaldið og tóku endanlega prófið sé nokkurt sam- ræmi. Nokkuð hefur kvarnast úr hópn- um sem var upphaflega skráður til leiks en hann taldi um 344. Það er þó metfjöldi í skráningu. Kynjahlutföll voru öllu jafnari í inntökuprófum í sjúkraþjálfun, sem 52 karlar og 47 konur tóku þátt í. Þessar upplýsingar fengust úr svari háskólans við fyrirspurn mbl.is. Þessi próf fóru fram fyrir helgi og niðurstaðna er að vænta eftir nokkr- ar vikur. 60 verða teknir inn í lækn- isfræði og 35 í sjúkraþjálfunarfræði. Miklu fleiri konur þreyttu prófið  225 konur vildu inn í læknadeild HÍ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Háskóli Íslands Kynjahlutföll voru öllu jafnari í prófum í sjúkraþjálfun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.