Morgunblaðið - 16.06.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 16.06.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 og hjólreiðum núna. Ég var með hrossin þegar dæturnar voru ung- lingar og voru með í þessu, en einn daginn þegar ég uppgötvaði að ég væri alltaf einn í hesthúsinu þá hætti ég. Ég byrjaði fyrir tíu árum í golfinu og undanfarin ár höfum við hjónin farið með hópi fólks vikuferð erlendis að hjóla. Það verður ekkert úr því í sumar en við erum að und- irbúa skemmtilega hjólaferð hér innanlands í staðinn.“ Fjölskylda Eiginkona Gunnars er Ragna Ragnars, f. 20.8. 1963, geislafræð- ingur á Landspítalanum. Þau eru búsett í Garðabæ. Foreldrar Rögnu eru hjónin Karl Ragnars, f. 17.2. 1941, verkfræðingur, og Emilía Jónsdóttir, f. 7.12. 1940, húsmóðir. Þau eru búsett í Garðabæ. Dætur Gunnars og Rögnu eru: 1) Þórhildur Edda, f. 26.7. 1986, verk- fræðingur og eigandi ráðgjafar- fyrirtækisins Parallel, búsett á Álftanesi. Maki: Arnór Ólafsson, tölvunarfræðingur. Börn þeirra eru Gunnar Karl, f. 24.5. 2011, Margrét Ólafía, f. 30.1. 2015, og Bríet Emilía, f. 18.4. 2017; 2) Emilía, f. 4.4. 1991, markaðsfræðingur hjá Kosmos & Kaos, búsett í Garðabæ. Maki: Engilbert Aron Kristjánsson við- skiptafræðingur. Systkini Gunnars eru Sólveig Guðlaugsdóttir, f. 15.3. 1957, skrif- stofumaður í Reykjavík; Hannes Guðlaugsson, f. 5.12. 1958, mat- sveinn í Hafnarfirði, og Hólmfríður Guðlaugsdóttir, f. 13.1. 1963, bóndi á Svínafelli í Öræfum. Foreldrar Gunnars voru hjónin Guðlaugur Gunnarsson, f. 17.9. 1924, d. 7.6. 2013, bóndi á Svínafelli, og Ingibjörg Ester Einarsdóttir, f. 16.5. 1931, d. 17.3. 1985, húsmóðir á Svínafelli. Gunnar Guðlaugsson Jón Jónsson bóndi á Svínafelli Þuríður Jónsdóttir húsfreyja á Svínafelli Gunnar Jónsson bóndi á Svínafelli Sólveig Pálsdóttir húsfr. á Svínafelli Guðlaugur Gunnarsson bóndi á Svínafelli Páll Þorláksson bóndi í Prestbakkakoti Guðrún Halldórsdóttir húsfreyja í Prestbakkakoti á Síðu, V-Skaft. Davíð Scheving Thorsteinsson héraðslæknir, síðast á Ísafirði Þórunn Stefánsdóttir Stephensen húsfreyja á Ísafirði og í Rvík. Einar Scheving Thorsteinsson verslunarmaður í Rvík Hólmfríður Hannesdóttir starfsstúlka í Kaupmannahöfn Hannes Sveinbjörnsson bóndi á Sólheimum Ingibjörg Kristjánsdóttir húsfreyja á Sólheimum við Svínavatn,A-Hún. Úr frændgarði Gunnars Guðlaugssonar Ingibjörg Ester Einarsdóttir húsmóðir á Svínafelli í Öræfum „MÉR LÍÐUR EINS OG ÉG BERI ALLAR ÁHYGGJUR HEIMSINS Á ÖXLUNUM” „VERST AÐ ÞÚ ERT ATVINNULAUS. ÞÚ ÞARFT AÐ VERA Í VEIKINDALEYFI NÆSTA HÁLFA MÁNUÐINN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að taka honum fagnandi við heimkomuna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRETTIR, ÞAÐ ER NÓVEMBER … HVAÐ ERTU AÐ GERA MEÐ BUSLULAUGINA? ÁTTU VIÐ SÓSU- SKÁLINA MÍNA? ÞEGAR ÉG HÆTTI MEÐ FYRRVERANDI KÆRASTANUM MÍNUM SAGÐI HANN AÐ ÉG ÆTTI EFTIR AÐ IÐRAST ÞESS! VO FF VO FF VO FF ÉG HEFÐI ALDREI ÁTT AÐ VERA MEÐ DÁVALDI! Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum frammi á Seltjarnarnesi á sunnudaginn, þar sem hann horfði til Snæfellsjökuls. Hann fór að tala um Snjódrífurnar, þessar vösku ungu konur sem voru í þann mund að ljúka 150 km skíðagöngu sinni eftir endilöngum Vatnajökli. Með því vilja þær safna fé fyrir samtökin Líf og Kraft, sem hvor tveggja styðja við krabbameins- sjúka, en í hópnum eru konur sem hafa greinst með krabbamein. Um þetta var karlinn að tala, leit síðan til mín og sveigði höfuðið aftur og út á vinstri hliðina í kunnuglega stellingu og kvað: Allar hressar eins þótt hvessi á jökli eru á göngu uppi þar ellefu Snjódrífurnar. Davíð Hjálmar orti í Krossanes- borgum á laugardag: Blikar stör í bleytupolli, blæs á flautu ýlustrá. Brosmild Flóra kankvís kolli kinkar gul og rauð og blá. Þetta minnir mig á stöku, sem ég orti fyrir margt löngu þar sem ég gekk niður Oddeyrargötu: Hver er þessi eina á sem aldrei frýs gul og rauð og græn og blá og gjörð af SÍS? Helgi Ingólfsson yrkir á Boðnar- miði um tíðindi helgarinnar: Nú smitandi lið er við lýði og líka einn hópur, sem flýði, en raun af því hlýst. Svo reynist það víst að Rúmenar hlýða’ ekki Víði. Er ráð til við rúmenskum lúða sem ruplar og skýst milli búða? Ef vondan skal hræða þá verður að klæða hann Víði í einkennisskrúða. Indriði á Skjaldfönn yrkir og kallar „mikilvægan innflutning“: Eftir þjófa brot og bax brátt sig kóvíd herðir þó settir verði í sóttkví strax sextán lagaverðir. Kristján H. Theódórsson yrkir „eftir tíðindi dagsins“: Erfðagreining einkar djörf, og ekki þeirra viskan rengd. En skyldi ei núna skýrust þörf, að skima meinta fingralengd? Pétur Stefánsson lítur yfir farinn veg á Leir: Um ævina hef ég unnið nóg ýmis störf á landi og sjó sem gáfu mér gigtarmeinin. Er nú í sælli sálarró sestur í helgan steininn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á jökli og mikilvægur innflutningur ER PLANIÐ SKÍTUGT? Fáðu tilboð í s: 577 5757 GÖTUSÓPUN ÞVOTTUR MÁLUN www.gamafelagid.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.