Morgunblaðið - 16.06.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 16.06.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Þýskaland Úrslitakeppnin, B-riðill: Alba Berlín – Ludwigsburg ............... 97:89  Martin Hermannsson lék í sex mínútur með Alba Berlín, skoraði fjögur stig og átti eina stoðsendingu.  Lokastaðan: Alba Berlín 8, Ludwigsburg 6, Bamberg 4, Frankfurt 2, Vechta 0. Í 8- liða úrslitum leikur Alba Berlín við Gött- ingen.  KNATTSPYRNA 4. deild karla: Grýluvöllur: Hamar – KM ................... 19.15 Borgarnes: Skallagrímur – Samherjar ... 20 Víkingsvöllur: Berserkir – KFB .............. 20 Í KVÖLD! 1. UMFERÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Norðankonan Karen María Sigur- geirsdóttir átti stórleik fyrir Þór/KA og skoraði tvívegis þegar liðið vann 4:1-sigur gegn Stjörnunni í 1. umferð úrvalsdeildar kvenna, Pepsi Max- deildarinnar, á Þórsvelli á Akureyri á laugardaginn síðasta. Karen María, sem er 18 ára gömul en verður nítján í næstu viku, er upp- alin á Akureyri og byrjaði að æfa knattspyrnu með KA í sjöunda flokki. Hún á að baki 29 leiki í efstu deild með Þór/KA þar sem hún hefur skor- að sex mörk, tvö þeirra á laugardag- inn, en Karen María fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Stjörnunni og er sá leikmaður sem þótti skara fram úr í fyrstu umferð deildarinnar að mati Morgunblaðs- ins. „Ég er uppalin hjá KA og þar spil- aði ég upp alla yngri flokkana,“ sagði Karen María í samtali við Morgun- blaðið. „Í 2. flokki sameinast svo KA og Þór í Þór/KA og árið 2017, þegar Donni [Halldór Jón Sigurðsson], var með liðið tók hann mig upp í meist- araflokkinn. Ég var á bekknum fyrstu tímabilin mín þar og það var ekki fyrr en í fyrra sem ég varð í raun fastamaður í liðinu. Síðasta sumar var því í raun mitt fyrsta alvöru tímabil í efstu deild. Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref með meistaraflokknum þá get ég alveg viðurkennt það að ég fann fyrir miklu stressi í leikjunum og var hrædd við að gera mistök. Pressan núna fyrir þetta tímabil er því mun minni finnst mér en fyrir síðasta tímabil sem dæmi. Ég er reynslunni ríkari og mér líður mjög vel, farandi inn í þetta tímabil sem hófst um síð- ustu helgi,“ sagði Karen María sem hefur leikið þrettán leiki með yngri landsliðum Íslands og skorað fjögur mörk fyrir U19 ára landsliðið. Leikplanið gekk upp Andri Hjörvar Albertsson tók við Þór/KA-liðinu af Halldóri Jóni Sig- urðssyni eftir síðasta sumar og segir Karen að úrslitin gegn Stjörnunni hafi ekki komið sér á óvart. „Það hafa alveg átt sér stað ein- hverjar áherslubreytingar eftir þjálf- araskiptin en að sama skapi var Andri aðstoðarþjálfarinn hans Donna þannig að breytingarnar eru kannski ekki miklar. Við erum vissu- lega að vinna mikið með þá hluti sem Donni kenndi okkur og svo hefur Andri sett sinn svip á liðið líka. Þetta voru ekki óvænt úrslit fyrir okkur. Við lögðum leikinn vel upp og við gerðum okkur grein fyrir því að Stjarnan væri ekki að fara að gefa okkur neitt. Stjarnan er með mjög flott lið en leikplanið okkar gekk full- komlega upp í þetta skiptið.“ Trúin skiptir öllu Þór/KA er spáð köflóttu gengi í sumar en liðið hefur verið að berjast í og við toppinn í rúman áratug. „Það eru ekki margir leikmenn í liðinu sem eru með reynslu af efstu deild og þar af leiðandi þá finn ég kannski fyrir aðeins meiri pressu núna að þurfa að leiða með fordæmi og standa mig. Það er ákveðinn sökn- uður að Mexíkóunum sem voru með okkur síðasta sumar, þeim Biöncu Sierra og Stephany Mayor, en þetta er líka tækifæri fyrir aðra leikmenn til þess að stíga upp. Við gerum okkur grein fyrir því að við erum ekki með jafn sterkt lið og undanfarin ár. Það eru margar ungar og efnilegar í hópnum hjá okkur og við þurfum að nota þá leikmenn sem eru til taks. Ég hef engar áhyggjur af því að við séum að fara að falla eða neitt slíkt. Ég hef mikla trú á hópn- um hjá okkur og ég tel okkur geta farið eins langt og við viljum, ef við höfum trú á okkur sjálfum.“ Háleit framtíðarmarkmið Karen María er að ljúka námi í Menntaskólanum á Akureyri og set- ur stefnuna á atvinnumennsku í framtíðinni. „Ég kláraði MA í vor og er að út- skrifast 17. júní. Í sumar er ég svo að vinna í Kirkjugörðum Akureyrar og planið í vetur er svo bara að taka sér smá frí frá námi og finna sér góða vinnu. Ég var aðeins að skoða há- skólanám í Bandaríkjunum en ég hugsa að af því verði ekki. Ég hef mikinn hug á því að reyna fyrir mér í atvinnumennsku og ég tel að Svíþjóð gæti verið mjög góður staður til þess að byrja á. Það er hins vegar eitthvað sem kemur með tím- anum og ég er ekki að drífa mig neitt en það er ekkert leyndarmál að ég er með háleit markmið fyrir framtíð- ina,“ bætti Karen María við í samtali við Morgunblaðið. „Tel okkur geta farið eins langt og við viljum“  Karen María Sigurgeirsdóttir 18 ára er komin í hóp leiðtoganna í liði Þórs/KA Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Stórsigur Karen María Sigurgeirsdóttir, númer sex, fagnar einu markanna gegn Stjörnunni ásamt liðsfélögum sín- um í Þór/KA. Akureyrarliðið verður aftur á heimavelli næsta laugardag þegar það tekur á móti ÍBV. 1. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2020 3-4-3 Cecilía Rán Rúnarsdóttir Fylki Karlena Miksone ÍBV Sveindís Jane Jónsdóttir Breiðabliki Karen María Sigurgeirsdóttir Þór/KA Hlín Eiríksdóttir Val Alexandra Jóhannsdóttir Breiðabliki Elín Metta Jensen Val Katla María Þórðardóttir Fylki Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór/KA Miyah Watford ÍBV Lillý Rut Hlynsdóttir Val Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud kastaði 61,24 metra á móti í Svíþjóð á sunnudaginn en þetta er hennar lengsta kast frá árinu 2017. Íslandsmet hennar í greininni er 63,43 metrar en það setti hún árið 2017. Þetta er sjöunda lengsta kast ársins í heiminum og setti hún einn- ig vallarmet og mótsmet. Ásdís verður 35 ára á árinu og er því orð- in gjaldgeng í flokk öldunga en hún bætti Norðurlandamet öldunga með kastinu í gær. Ásdís hefur ákveðið að leggja spjótið á hilluna eftir þetta keppnistímabil. Besta kastið hjá Ásdísi í þrjú ár Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lokaárið Ásdís Hjálmsdóttir kemur sterk til leiks á síðasta tímabilinu. Handboltavefmiðillinn Handball Planet stendur þessa dagana fyr- ir kjöri á efnilegasta handbolta- manni heims fyrir keppnis- tímabilið 2019-20. Tveir íslenskir leikmenn eru meðal þeirra sem eru tilnefndir en kosningin er í gangi á vefnum til 25. júní. Teit- ur Örn Einarsson, örvhenta skytt- an hjá Kristianstad í Svíþjóð, er einn af fjórum sem eru tilnefndir í sína stöðu og sama er að segja um Viktor Gísla Hallgrímsson, landsliðsmarkvörðinn unga hjá GOG í Danmörku. Tveir í hópi þeirra efnilegustu Ljósmynd/Kristianstad Sterkur Teitur Örn Einarsson vakti athygli í Meistaradeildinni.  Knattspyrnumaðurinn Stefan Alex- ander Ljubicic er genginn til liðs við HK og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Kópavogsfélagið. Stefan, sem er tvítugur framherji, var búinn að semja við Riga FC í Lettlandi en spilaði ekkert með liðinu þar sem keppnin þar í landi var ekki hafin þeg- ar útbreiðsla kórónuveirunnar stöðv- aði fótboltann. Stefan á að baki 17 leiki með yngri landsliðum Íslands en hann lék þrjá leiki 15 ára með Keflavík í efstu deild áður en hann fór til Brighton þar sem hann lék með ung- linga- og varaliðum í þrjú ár. Hann sneri aftur til Íslands síðasta sumar og lék átta leiki með Grindavík á loka- spretti úrvalsdeildarinnar þar sem hann skoraði eitt mark, einmitt gegn HK.  Rúnar Kristinsson þjálfari Íslands- meistara KR í knattspyrnu sagði við mbl.is í gær að tvísýnt væri með mið- verðina Arnór Svein Aðalsteinsson og Finn Tómas Pálmason fyrir leik liðsins gegn HK næsta laugardag. Báðir fóru meiddir af velli gegn Val á laugardags- kvöldið, Finnur fékk högg á rist og Arnór gæti verið tognaður í baki, að sögn Rúnars.  Í dag verður dregið í riðla fyrir und- ankeppni Evrópumóts karla þar sem úrslitakeppnin fer fram í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar 2022. Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki ásamt Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi, Frakk- landi, Slóveníu og Tékklandi og mun því ekki þurfa að mæta neinu af allra sterkustu landsliðum Evrópu í undan- keppninni.  Iker Casillas, fyrrverandi markvörð- ur spænska landsliðsins, er hættur við að gefa kost á sér í kjöri til forseta spænska knattspyrnusambandsins. Casillas skýrði frá því á Twitter að hann hefði ákveðið að draga sig í hlé vegna hinnar erfiðu stöðu sem væri í landinu vegna útbreiðslu kórónuveir- unnar en rúmlega 27 þúsund manns hafa látist á Spáni af völdum hennar. „Þetta setur kosn- ingarnar aftar í for- gangsröðina,“ sagði hinn 39 ára gamli Ca- sillas. Þar með verður Luis Ru- biales vænt- anlega endur- kjörinn forseti sambandsins án mótfram- boðs til næstu fjögurra ára í ágústmánuði. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.