Morgunblaðið - 16.06.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 16.06.2020, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Ferna Uppfærsla Þjóðleikhússins á Atómstöðinni – endurliti hlaut fern Grímuverðlaun. Magnús Geir Þórðarson veitti verðlaununum viðtöku. Eyður Saga Sigurðardóttir og Katrín Gunnarsdóttir tóku við verðlaunum fyrir hönd hópsins Marmarabarna. Atómstöðin – endurlit eftir Halldór Laxness Halldórsson og Unu Þor- leifsdóttur byggt á skáldsögu Hall- dórs Laxness í leikstjórn Unu í Þjóð- leikhúsinu hlaut flest verðlaun þegar Íslensku sviðslistaverðlaunin, Grím- an, voru afhent í 18. sinn við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Sýn- ingin var tilnefnd til tólf verðlauna og hlaut alls fern, sem sýning ársins, fyr- ir leikstjórn, leikkonu ársins í aðal- hlutverki og lýsingu. Uppfærsla sviðslistahópsins Marmarabarna á Eyðum hlaut næstflest verðlaun eða þrenn, fyrir búninga, tónlist og dans- og sviðshreyfingar. Alls skiptu ellefu sýningar með sér verðlaununum 18 auk þess sem Ingibjörg Björnsdóttir hlaut heiðursverðlaun Sviðslista- sambands Íslands árið 2020 fyrir ævi- starf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Birna Hafstein, forseti Sviðslista- sambands Íslands, minnti í ávarpi sínu á að fjöldi listamanna hefði verið sviptur starfsvettvangi sínum og framfærslumöguleikum um óákveð- inn tíma þegar samkomubann var sett á hérlendis út af kórónuveiru- faraldrinum. „En listin lætur ekkert stoppa sig. Enginn veirufaraldur, hversu skæður sem hann kann að vera, getur gert út af við listina. Af hugsjón og ástríðu hélt listafólk sköp- uninni áfram og fann með mikilli út- sjónarsemi nýjar aðferðir til að miðla henni. Listin sameinar okkur, gefur okkur kraft, vitsmunalega og tilfinn- ingalega örvun og hugrekki. Óeigin- gjarnt framlag íslensks listafólks – við skulum kalla það gjafir – til sam- félagsins á erfiðum vetri verður seint fullþakkað. Við lifum ekki án listar- innar, hún er sannarlega súrefnið í samfélaginu,“ sagði Birna og kallaði í framhaldinu eftir því að ráðamenn sæju til þess að menning, listir og skapandi greinar skipuðu hærri sess í framtíðarsýn þjóðarinnar. „Það er löngu tímabært að stofna sérstakt ráðuneyti utan um listir, menningu og skapandi greinar, nýsköpun ætti sömuleiðis vel heima í slíku ráðuneyti. Þessar greinar eru sannarlega lykillinn að framtíðinni og því að við séum samkeppnishæf þjóð meðal þjóða. Í þessum greinum leynist dýrmætasti auður okkar Íslendinga.“ silja@mbl.is Ellefu sýningar verðlaunaðar  Níu af 19 verðlaunum kvöldsins til Þjóðleikhússins  Ebba Katrín Finnsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson verðlaunuð fyrir leik í aðalhlutverki  Una Þorleifsdóttir verðlaunuð fyrir leikstjórn Morgunblaðið/Arnþór Atómstöðin Ebba Katrín var verðlaunuð fyrir Uglu. Kröftugur Sveinn Ólafur var verðlaunaður fyrir Rocky! Barnasýning Gosi, ævintýri spýtustráks í leikstjórn Ágústu Skúladóttur var valin barnasýning ársins. Sýning ársins Atómstöðin – endurlit í svið- setningu Þjóðleikhússins Leikrit ársins Helgi Þór rofnar eftir Tyrfing Tyrfingsson Leikstjóri ársins Una Þorleifsdóttir – Atómstöðin – endurlit Leikari ársins í aðalhlutverki Sveinn Ólafur Gunnarsson – Rocky! Leikkona ársins í aðalhlutverki Ebba Katrín Finnsdóttir – Atómstöðin – endurlit Leikari ársins í aukahlutverki Hilmir Snær Guðnason – Vanja frændi Leikkona ársins í aukahlutverki Kristbjörg Kjeld – Er ég mamma mín? Leikmynd ársins Finnur Arnar Arnarson – Engillinn Búningar ársins Guðný Hrund Sigurðardóttir – Eyður Lýsing ársins Ólafur Ágúst Stefánsson – Atómstöðin – endurlit Tónlist ársins Gunnar Karel Másson – Eyður Hljóðmynd ársins Nicolai Hovgaard Johansen – Spills Söngvari ársins Karin Björg Torbjörnsdóttir – Brúðkaup Fígarós Dans- og sviðshreyfingar ársins Marmarabörn – Eyður Dansari ársins Shota Inoue – Þel Danshöfundur ársins Katrín Gunnarsdóttir – Þel Sproti ársins Reykjavik Dance Festival Barnasýning ársins Gosi, ævintýri spýtustráks Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands Ingibjörg Björnsdóttir Atómstöðin – endurlit hlaut fern Grímuverðlaun 2020 HANDHAFAR GRÍMUVERÐLAUNANNA 2020 Ljósmynd/Hörður Sveinsson Áhrifamikil Ebba Katrín Finnsdóttir sem Ugla í sýningunni Atómstöðin – endurlit. Við erum sérfræðingar í malbikun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.