Morgunblaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BOLLARNIR ERU ALLIR ÓHREINIR. VILTU
FÁ KAFFIÐ Í ÞESSUM?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga einhvern
að sem gleður þig að
hugsa um.
MÝS Í KASSANUM
MEÐ SKRAUTINU
VILTU DRYKK? MEINARÐU EKKI „MÁ
BJÓÐA ÞÉR” DRYKK?
JÚ, ÞAKKA ÞÉR
KÆRLEGA FYRIR!
„ÞETTA ER BARA ÞYKKILDI. ÖRUGGLEGA
EKKERT. EKKI HUGSA OF MIKIÐ UM ÞAÐ.
ÁHYGGJUR FLÆKJA BARA MÁLIN.”
íþróttaáhugann til þess að skrifa
BA-ritgerðina mína í félagsfræði en
hún fjallaði um árangur knatt-
spyrnuliðs Leiknis 2014 út frá fé-
lagsfræðilegu sjónarhorni. Ég hljóp
Berlínarmaraþonið 2018, er byrj-
aður að reyna fyrir mér í golfi og
hef mjög gaman af því að vera í eld-
húsinu.“
Fjölskylda
Sambýliskona Egils Þórs er Inga
María Hlíðar Thorsteinson, f. 2.8.
1991, ljósmóðir. Foreldrar hennar
eru Esther Hlíðar Jensen, f. 1.1.
1969, sérfræðingur í landmótunar-
upplýsingum, búsett í Reykjavík, og
Steingrímur Árni Thorsteinson, f.
29.7. 1966, vélvirki og rennismiður,
búsettur í Reykjavík. Þau eru frá-
skilin.
Sonur Egils Þórs og Ingu Maríu
er Aron Trausti Egilsson, f. 13.12.
2019.
Systkini Egils Þórs eru Linda
Björk Jónsdóttir, f. 13.11. 1984,
margmiðlunarhönnuður, búsett í
Þorlákshöfn, og Aron Örn Jónsson,
f. 28.6. 1988, bílasmiður, búsettur í
Þorlákshöfn.
Foreldrar Egils Þórs: Díana Sæ-
rún Sveinbjörnsdóttir, f. 8.7. 1961,
deildarstjóri á leikskólanum Suður-
borg, búsett í Reykjavík, og Jón
Þór Traustason, f. 13.5. 1960, d.
21.4. 2013, meistari í bifreiðasmíði.
Þau voru í sambúð fram að dánar-
degi Jóns Þórs.
Egill Þór Jónsson
Kristín Soffía Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Pétur Pétursson
verkstjóri í Reykjavík
Trausti Pétursson
gullsmiður í Reykjavík
Þórunn Jónsdóttir
handverkskona í Þorlákshöfn
Jón Þór Traustason
bifreiðasmiður í
Reykjavík Jón Óskar Guðmundsson
bóndi í Norður-Nýjabæ og
verkamaður í Reykjavík
Sigurbjörg Ingvarsdóttir
húsfreyja í Norður-Nýjabæ í Þykkvabæ og Reykjavík
Birta Árdal
listakona
Jón Óskar
myndlistarmaður
Pálína Jónsdóttir
kennari
Ragnheiður Jónsdóttir
myndlistarmaður
Bergsteinn Björgúlfsson
kvikmyndatökustjóri
Ingibjörg Sveinsdóttir
húsfreyja í Grundarfirði
Þórður Valdimar Þorvaldsson
sjómaður í Grundarfirði
Magnþóra Þórðardóttir
húsfreyja í Grundarfirði
Sveinbjörn Árnason
sjómaður og vörubílstjóri í Grundarfirði
Herdís Sigurlín Gísladóttir
húsfreyja á Hellnafelli og í
Grundarfirði
Árni Sveinbjörnsson
bóndi og vélstjóri á Hellnafelli í Eyrarsveit
Úr frændgarði Egils Þórs Jónssonar
Díana Særún
Sveinbjörnsdóttir
deildarstjóri á
leikskóla í Reykjavík
Ég rakst á þessar vísur eftirKristján Fjallaskáld þegar ég
fletti gömlu stúdentasöngbókinni,
sem faðir minn kallaði brennivíns-
bókina:
Framar enginn maður má
minni gleði raska;
trú þér festi ég einni á
allíknandi flaska.
Þitt mér brosið skærast skín,
er skelfur negg af móði;
þú hefur ein af ást til mín
úthellt þínu blóði.
Hart og biturt harmaél
hryggu þrengdi geði;
en þú hefur grátið þig í hel
það svo fengi gleði.
Þar eru líka þessar stökur eftir
Sigurð Pétursson:
Fæ ég ekki að faðma þig?
flest trúi’ eg drengi bagi;
ástin lætur innan um mig
eins og naut í flagi!
Fæ ég ekki að faðma þig?
Foldin sjóar birtu;
ástin stekkur innan um mig
eins og fló í skyrtu!
Fæ ég ekki að faðma þig?
Falda blóminn ljósi;
ástin drynur innan um mig
eins og kýr í fjósi!
Fæ ég ekki að faðma þig?
flest vill afla þrauta:
ástin hvirflar innan um mig
eins og þyrill flauta!
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-
fönn yrkir um jarðskjálftann:
Hér er meiri hasarinn,
heldur lítill friður.
Hræddur um að húskofinn
hrynja mundi niður.
Jón Atli Játvarðarson skrifar:
„Tilbrigði íslenskunnar fara sko
ekki versnandi. Hérna er ort um
erfiðleika þess að sjötugur kall
rúmlega sé að vinna við hellusteyp-
un í skúralofti. Nafnorðið „djókur“
kemur hér sterkt inn sem rímorð“:
Spennir greipar gamall þegn,
gjarnan hleypur króka.
Kom á steypu steypiregn,
stóðust fleipur „djóka“.
Séra Jón á Bægisá orti:
Hryssutjón ei hrellir oss,
hress er ég þó dræpist ess;
missa gjörði margur hross;
messað get ég vegna þess.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Flaskan og mismunandi
líki ástarinnar
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Hollywood Glow gerir húðina þéttari og
gefur henni samstundis aukinn ljóma.
g Þéttir slappa húð á
andliti og hálsi
Hollywood Glow
Gerir áferð húðarinnar fallegri