Morgunblaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020 »Mikið líf var í mið- bænum síðdegis á miðvikudag þegar HönnunarMars hófst í tólfta sinn. Hátíðin teygir sig yfir allt höfuð- borgarsvæðið. Alls er boðið upp á um 80 sýn- ingar sem spanna allt frá vöruhönnun til arki- tektúrs, grafískri hönn- un til gullsmíða. Um- hverfismál og sjálfbærni eru í forgrunni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hönnun Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ásamt hönnuðunum sem standa að Torgi í speglun, Valdísi Steinarsdóttur og Arnari Inga Viðarssyni. Samstiga Tveir gestir virða fyrir sér hluta af því sem til sýnis er á HönnunarMars. Verðlaun Krystian Dziopa og Iga Szczugiel sigruðu í Hugmyndasamkeppni um götugögn á borgarlínustöðvar. Borgarlína Sýning flytur úr Ráðhúsinu á bókasafnið í Kópavogi til þess að rýma fyrir forsetakosningum. Opnun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ávarpaði gesti við opnun verksins Torg í spegli á Lækjartorgi í fyrradag, þar sem margt var um manninn. Sýnishorn Brot af hinum ýmsu sýningum má finna við göngugötuna við Hafnartorg. Áhugasöm Á Hafnartorgi í miðbænum hefur HönnunarMars komið sér fyrir í tómum rýmum. HönnunarMars hófst með opnun fjölda sýninga á miðvikudag Hljómsveitin Skítamórall heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu í kvöld, föstudag, og verða það fyrstu tónleikarnir þar fyrir fullum sal af gestum eftir samkomubannið vegna Covid-19. Í tilkynningu segir að liðsmenn hljómsveitarinnar hafi „engu gleymt og ætla að keyra sumarið ærlega í gang“ með þessum stór- tónleikum. Umgjörðin verður hin glæsilegasta og ekkert „til sparað við að búa til ógleymanlega kvöld- stund sem enginn sannur Skímó- aðdáandi má láta fram hjá sér fara“. Eldborgarsalnum verður skipt í þrjú 500 manna hólf, með sér salerni og veitingasala fyrir hvert svæði. Skítamórall í Eldborg í kvöld Morgunblaðið/Ómar Vinsælir Skítamórall á tónleikum fyrir nokkrum árum. Sveitin er 30 ára gömul. Fyrir skömmu voru píanóleik- urunum Ernu Völu Arnar- dóttur og Romain Þór Denuit veittir styrkir til fram- haldsnáms í pí- anóleik úr Minn- ingarsjóði um Birgi Einarson apótekara. Nam fjárhæð styrkj- anna einni milljón kr. til Romain Þórs en tveimur milljónum kr. til Ernu Völu sem nú hlýtur styrk úr minningarsjóðnum í annað sinn. Frá árinu 1999 hafa 28 veglegir styrkir verið veittir úr minningar- sjóðnum, sem styrkir efnilega pí- anóleikara til framhaldsnáms er- lendis, og hafa sumir hlotið styrki oftar en einu sinni. Tveir píanóleikarar styrktir til náms Erna Vala Arnardóttir Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Aðrar Christopher Nolan myndir: The Dark Knight, The Dark Knight Rises Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI 30 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFAN SÝND Í NOKKRA DAGA.Sýnd með íslensku tali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.