Morgunblaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020
Við vitum öll að
Guðni Th. Jóhann-
esson er besti dreng-
ur. Könnunin í dag
staðfestir að hann
hefur á fjórum árum
komið því til skila við
almenning. Hann lenti
í því sem ungur mað-
ur að fara til Bret-
lands og nema til
doktors í þorskastríð-
unum. Það var ekki honum að
kenna að í því landi voru allar
heimildir um þorskastríðin ritskoð-
aðar af flotamálaráðuneytinu, já og
snyrtar verulega. Með þessa „vitn-
eskju“ kom hann heim til að kenna
okkur sem þekktum atburðina af
eigin raun nýja sögu og sögu-
skoðun. Flestir Íslendingar vita að
við hvert fótmál í Íslandssögunni
eru skýr dæmi um að fullveldi þjóð-
arinnar er sívirk auðlind. Þegar
Danir fóru með okkar mál fórnuðu
þeir fiskimiðum Íslendinga og
leyfðu Bretum veiðar í íslenskum
fjörðum og flóum gegn því að Bret-
ar keyptu danskt svínakjöt. Báðar
þjóðirnar kappkostuðu að leyna Ís-
lendinga samningunum, sem voru
gerðir í tvennu lagi, 1901. Af þess-
um ástæðum börðust forfeður okk-
ar fyrir fullveldi og síðar lýðveldi,
með forseta kjörnum í allsherj-
aratkvæðagreiðslu, aðallega til að
standa vörð um áunnin réttindi og
hag þjóðarinnar og leggja að sama
skapi síðri áherslu á pitsuát og
sokkalit. En það er alls ekki við
Guðna, þann mæta
mann, að sakast þótt
honum yfirsjáist allt
þetta því hann hefur
lent í því óláni eins og
margir ungir menn að
taka ESB-vírusinn. Og
þar er komið að kjarna
þessa máls. Á vef
Ríkisendurskoðunar
kemur fram að þeir að-
ilar sem hafa fjárhags-
lega hagsmuni af sam-
þykkt Orkupakka 3
lögðu framboði hans til fjármuni og
vinnu, sjá: https://rikisendur-
skodun.is/wp-con-
tent/uploads/2016/09/Gudni-Th-
Johannesson.pdf.
Ljóst er að þeir vildu að forset-
inn gæfi þjóðinni ekki leyfi til að
hindra framsal á orkulindunum til
ESB. Ég býst við að þetta hafi sett
núverandi forseta í afleita stöðu því
hann hafði verið upplýstur um al-
varleika málsins. Ég get því ekki
varist þeirri hugsun að ef Guðni
forseti, sá góði maður, fær afger-
andi kosningu muni hann for-
herðast í að taka ákvarðanir gegn
hagsmunum þjóðarinnar. Forðum
honum frá þeirri ógæfu.
Björgum Guðna
Eftir Sigurð
Þórðarson
Sigurður Þórðarson
» Fullveldi þjóðar-
innar er sívirk
auðlind.
Höfundur var stýrimaður á
varðskipum Landhelgisgæslunnar
í þorskastríðinu.
siggiginseng@gmail.com
Eftirfarandi bragur er ortur í til-
efni af 100 ára afmæli Rannveigar
Sigríðar. Hægt er að syngja braginn
við lagið „Dísa heitir draumlynd
mær“.
Veigu Siggu senda vill
nú sundhópurinn brag,
hún kynngimögnuð kona er
og kann á flestu lag.
Við færum henni heillaóskir
hjartanlegar nú.
Tímamótum merkum á
við mærum þessa frú.
Viðlag:
Hún Veiga, ó, Veiga,
ó, Veiga í Skólatröðinni.
Veiga Sigga sundhópinn
með sinni glöðu lund
hefur prýtt um allmörg ár
og aðstoðar við sund,
til dáða okkur örvar hún,
svo allir taka á sprett,
og harla fáir hlífa sér,
því hátt er markið sett.
Veiga Sigga var í „denn“
að Vogi á Mýrum fædd,
af góðu bergi brotin er
og bestu kostum gædd.
Á heimilinu ólst hún upp
við alls kyns sveitastörf,
reytti lunda, þvoði þvott,
og þótti rösk og djörf.
Á sprækum fákum spretti hún
úr spori á söndunum.
Hún hneigð er fyrir fagran söng
og flink í höndunum,
hún söng í kirkjukórnum og
á kirkjuorgelið
hún lék, sem kirkju organisti
Akrakirkju við.
Á menntasviði myndlist nam
og margs kyns handíðir,
hún fæst við listir fjölþættar
og fata hannanir.
Og handavinnu helguð kennslu
hennar starfstíð var.
Á geðþekkan og góðan mann
og glæstrar dæturnar.
Veiga Sigga víðsýn er
og vill margt heyra og sjá.
Er meistari í matargerð,
Það minnt skal hérna á.
Hún elskar öll sín barnabörn
og börnum þeirra ann.
Og lífsins stríði og stormum í
hún styrk í trúnni fann.
(GA)
Með afmæliskveðju fyrir hönd
sundhópsins,
Erla Óskarsdóttir.
Afmælis-
bragur
Rannveig Sigríður
Sigurðardóttir 100 ára
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Við Íslendingar lif-
um nú á þeim und-
arlegu og örlagaríku
tímum þegar leynt og
ljóst er grafið undan
fullveldi landsins.
Minnir það á sumt
sem gerðist á fyrri
hluta 13. aldar þegar
við komumst undir er-
lend yfirráð, illu heilli.
Hér nefni ég fáein dæmi þess
hvernig vegið er að því sem þjóð-
legt og íslenskt er. 17. júní fyrir ári
var erlend kona klædd í gervi
„Fjallkonunnar“ og særði það þjóð-
erniskennd margra. Nú í eldhús-
dagsumræðunum tók ein þingkonan
upp á því að mæla nokkur orð á er-
lendri tungu á sjálfu Alþingi Íslend-
inga. Flutt er hrátt kjöt til landsins
og eru miklar líkur á að það leiði
síðar til þess að erlendir sjúkdómar
berist í búfénað okkar og skerði þar
með þá stöðu okkar að geta í fram-
tíðinni séð þjóðinni fyrir nægum
matvælum. Ekki fær hinn mörg
þúsund ára gamli laxastofn okkar
að vera í friði, því hér hafa verið
settar upp sjókvíar með erlendum
laxastofni, sem vafalítið á eftir að
blandast okkar stofni. Erlendir
dómstólar eru látnir hafa áhrif á
niðurstöðu sumra mála okkar, eins
og við þekkjum þegar okkar dóms-
málaráðherra vék úr starfi. Erlend-
ir auðmenn hafa keypt margar jarð-
ir og verði þar ekkert haldfast að
gert, þá er það líklega aðeins byrj-
unin á því að útlendingar eignist
hér mjög stór landsvæði.
Við getum séð fyrir okkur hvern-
ig þessi græðgis- og yfirdrottnunar-
öfl hugsa. Næst munu þau reyna að
finna ráð til að eignast
okkar miklu auðlindir
og á ég þar við fersk-
vatnið, heita vatnið,
raforkuverin, fisk-
vinnslustöðvarnar og
fiskveiðiheimildirnar.
Sennilega hefur meiri-
hluti alþingismanna
engan áhuga á að
hamla gegn þessu
ferli. Hins vegar getur
forseti Íslands neitað
að undirrita slík land-
ráðalög og þar með skotið slíkum
málum í þjóðaratkvæði. Erlendir
auðmenn þurfa ekki að óttast að
Guðni Th. Jóhannesson á forseta-
stóli verði þeim til vandræða, því
miðað við hans orð og framgöngu,
þá mun hann vart gera annað en
það sem stjórnvöldum hvers tíma er
þóknanlegt.
Þótt ég sé ekki í öllum málum
sammála hinum forsetaframbjóð-
andanum, Guðmundi Franklín Jóns-
syni, þá treysti ég honum til að
beita valdi sínu sem forseti, til að
vernda fullveldi lands og þjóðar.
Þar er allt í húfi. Heilshugar greiði
ég honum því atkvæði mitt.
Forsetakosningar
og fullveldið
Eftir Gunnar
Guðmundsson
frá Heiðarbrún
» Þótt ég sé ekki í
öllum málum sam-
mála hinum forseta-
frambjóðandanum,
Guðmundi Franklín
Jónssyni, þá treysti
ég honum til að beita
valdi sínu sem forseti.
Gunnar Guðmundsson
Höfundur er fræðimaður og
rithöfundur.
Velferðarþjóðfélag?
Við skilgreinum ís-
lenskt samfélag sem
velferðarþjóðfélag, en
er það rétt skilgrein-
ing?
Vinnumálastofnun
hefur borið hitann og
þungann af umsóknum
þeirra sem smituðust
og var skipað í ein-
angrun og þeirra sem
misstu atvinnu að hluta eða öllu leyti
vegna afleiðinga COVID-19.
Margir hafa enn ekkert fengið eft-
ir þriggja mánaða bið.
Sem dæmi má nefna einn sjúkling,
bílstjóra, fjölskyldumann, tveggja
barna föður, sem í örvæntingu reynir
að koma sögu sinni á framfæri með
von um lausn sinna mála. Hann
veiktist 13. mars og greindist 18.
mars með COVID-19. Hann losnaði
úr einangrun 30. mars.
Fór aftur í greiningu 8.
apríl, greinist með
erfðaefni veirunnar og
var gert að halda sig frá
eldri borgurum og fólki
með undirliggjandi
sjúkdóma í 14 daga.
Hann fór aftur í grein-
ingu 22. apríl og greind-
ist enn með erfðaefni.
Sem fyrr var honum
gert að halda sig frá
eldra fólki og þeim sem
hafa undirliggjandi
sjúkdóma. Frá því hann veiktist og
fram til þessa dags hefur hann ekki
fengið krónu í bætur. Hann seldi at-
vinnubílinn sinn til að eiga fyrir út-
gjöldum.
Svörin sem fengust frá Vinnu-
málastofnun eru þau að fyrst hann sé
sjúklingur eigi hann að fá bætur frá
Tryggingastofnun. Þar var honum
vísað aftur á Vinnumálastofnun sem
sagði honum að leita til félagsþjón-
ustu sveitarfélagsins. Þar sem maki
hans þénar yfir 330.000 á mánuði
reyndist hann ekki eiga rétt á fé-
lagslegri aðstoð. Aftur talaði hann
við Vinnumálastofnun og var þá bent
á að leita til stéttarfélags, en eins og
margir einyrkjar er hann í félagi sem
er aðeins hagsmunafélag en greiðir
ekki bætur vegna veikinda.
Hann skráði sig atvinnulausan í
byrjun apríl, umsókn hans átti að
fara fyrir fund innan 6-8 vikna. Nú á
hann að fara aftur í greiningu. Hvað
myndir þú gera í hans sporum? Er
Vinnumálastofnun að stuðla að því að
senda veikt fólk með smitsjúkdóm út
á vinnumarkaðinn?
Hann fékk svo það svar í vikunni
að hann ætti 25% bótarétt frá Vinnu-
málastofnun sem virðist hafa úr-
skurðarvald um bótarétt og beita því
nokkuð frjálslega. Enginn rökstuðn-
ingur var veittur fyrir þessari
ákvörðun eða upplýsingar um á
hverju hún byggist.
Æðstu lög lands eru stjórnarskrá
sem öllum ber að virða. Þar segir í
76. gr. að tryggja skuli öllum, sem
þess þurfa, rétt til aðstoðar vegna
sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis,
örbirgðar og sambærilegra atvika.
Vinnumálastofnun verður að hafa
þessa grundvallarreglu í hávegum og
sjá til þess að enginn fari á mis við þá
aðstoð sem almennt býðst þeim sem
á þurfa að halda.
Velferðarþjóðfélag?
Eftir Bjarna Berg-
mann Vilhjálmsson
Bjarni Bergmann
»Æðstu lög lands eru
stjórnarskrá sem
öllum ber að virða. Þar
segir í 76. gr. að tryggja
skuli öllum, sem þess
þurfa, rétt til aðstoðar
vegna sjúkleika, örorku,
elli, atvinnuleysis,
örbirgðar.
Höfundur er atvinnubílstjóri.
… gerirðu eins og Rómverjar. Þú
ferð í sóttkví ef þarf og gefur upp
réttan dvalarstað við komu. Þú ferð
aðeins inn í verslun á afgreiðslutíma
og notar sömu dyr og aðrir. Þó að þig
langi í eitthvert dót, sem þú sérð í
búðinni, læturðu það ekki freista þín,
því í Róm tíðkast slíkt ekki.
En svo að líka sé minnst á yfirvöld,
sem eiga að hafa eftirlit með gesta-
gangi, mætti spyrja hvort það væri
nokkuð of persónulegt eða meiðandi
að grennslast fyrir um erindi ferðar
til landsins. Eru menn ráðnir til vinnu
og hafa pappíra upp á það? Er gest-
urinn ferðamaður með áveðin plön og
tímaramma, eða kannski námsmaður
að skoða heiminn?
Ég hygg að slíkar spurningar
þættu eðlilegar í mörgum löndum og
það jafnvel þúsundfalt fjölmennari en
okkar. Afdrifaríkir samningar hafa
verið gerðir í hinni margríkja Evr-
ópu, í þeim tilgangi að sameina hana.
EES og frelsin fjögur og annað álíka.
Það er eins ólíklegt að það takist og
að ætla að blanda saman olíu og vatni.
En tilraunin getur orðið skálkunum
skjól.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Komur Mikilvægt er að fólk fari
eftir reglum við komu til landsins.
Sértu í Róm, þá …
Morgunblaðið/Ómar