Morgunblaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020
✝ Guðfinna El-ínborg Guð-
mundsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 11.
nóvember 1955.
Hún lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 18. júní
2020.
Móðir hennar
var Guðfinna Krist-
jánsdóttir hús-
freyja, f. 27.1. 1917,
d. 7.12. 1955. Faðir hennar var
Guðmundur Valdimar Ágústs-
son sjómaður og verkamaður, f.
14.2. 1909, d. 18.12. 1987. Guð-
finna átti tvo bræður, Kristján,
kennara, f. 17.5. 1950, d. 20.2.
2012, og Ágúst Sævar, f. 22.5.
1952.
Guðfinna giftist 7.8. 1982
tóku mikinn þátt í uppeldi henn-
ar.
Guðfinna gekk í Brunna-
staðaskóla og Gagnfræðaskól-
ann í Keflavík. Á yngri árum
hjálpaði hún til við ýmis störf í
sveitinni og vann á unglings-
árum í frystihúsi frænda sinna í
Vogum. Veturinn 1974-75 flutt-
ist hún til Reykjavíkur til að
stunda nám við Húsmæðraskól-
ann. Þar tengdist hún bekkjar-
systrum sínum ævilöngum vin-
áttuböndum. Stuttu seinna hóf
hún sambúð með Kjartani í
Reykjavík. Fjölskyldan og móð-
urhlutverkið var Guðfinnu mik-
ilvægt og sinnti hún því sam-
viskusamlega. Guðfinna starfaði
lengst af í bönkum og versl-
unum og vann síðast sem lækna-
ritari hjá Lækninga- og sál-
fræðiþjónustunni. Guðfinna var
einstaklega ættrækin og hafði
gaman af ættfræði og sögum og
gat oft rakið ættir fólks.
Útför hennar fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 1. júlí 2020, og
hefst athöfnin klukkan 13.
Kjartani Egilssyni
kerfisfræðingi, f.
26.2. 1955. Synir
þeirra eru Ragnar
Már, f. 20.8. 1977,
og Hlynur Örn, f.
31.5. 1984. Eigin-
kona Hlyns er Tara
Brekkan Péturs-
dóttir, f. 21.6. 1985.
Börn þeirra eru
Natalía Marín, f.
24.10. 2006, og Pét-
ur Ragnar, f. 13.3. 2012.
Guðfinna ólst upp í Halakoti á
Vatnsleysuströnd og var tekin í
fóstur af föðurömmu sinni, Þur-
íði Kristínu Halldórsdóttur, f.
22.5. 1885, d. 11.5. 1971, eftir
ótímabært andlát móður sinnar.
Föðursystkini hennar, Ragnar,
Magnús og Katrín Ágústsbörn,
Elsku besti vinur minn og fé-
lagi til 45 ára er látinn langt um
aldur fram. Ég kynntist henni í
gleðskap hjá vini elsta bróður
míns árið 1975, voru þar á ferð
nemendur úr húsmæðraskólanum
sem var í grenndinni við Sólvalla-
götuna í Vesturbænum. Ég bauð
henni út og þannig hófust okkar
kynni sem hafa varað æ síðan, hún
var með mittissítt svart krullað
hár, mjög glæsileg kona í alla
staði. Við fluttum í Stórholt 19 árið
1977 í tveggja herbergja íbúð á 2.
hæð, og undum hag okkar vel,
frumburðurinn Ragnar Már
fæddist 20. ágúst 1977 á fæðing-
arheimilinu þar sem hún hafði
starfað sem aðstoðarmaður við
umönnun ungbarnanna á vöggu-
stofunni eftir fæðingu og undi hún
hag sínum vel. Ég fékk fljótt að
kynnast fjölskyldunni hennar á
Vatnsleysuströnd, sem var henni
mjög kær. Allar helgar fórum við
þangað í heimsókn í Halakotið til
hans Ragga, föðurbróður hennar.
Fjármálastofnanir hafa alltaf
heillað hana og fékk hún vinnu í
Verslunarbankanum í Banka-
stræti við afgreiðslustörf, ég vann
sjálfur í tölvudeild Eimskips í
Pósthússtræti á sama tíma, með
aðsetur í bankanum. Mörg voru
ferðalögin með Finnu, um Evrópu
og Bandaríkin, og oft með karla-
kúbbnum Roundtable sem hún
hafði mjög gaman af og var hún
góður ferðafélagi. Ferð sem er
minnisstæð í huga er ferðin sem
við fórum árið 1980, þegar við tók-
um Dettifoss til Felixstowe og tók-
um bílinn með. Þar keyrðum við
um England, til Austuríkis og
heimsóttum önnur lönd á megin-
landi Evrópu og tókum svo sama
skipið heim frá Hamborg. Þú
hafðir einnig gaman af ferðalög-
um til Norður-Ameríku. Við gift-
um okkur þann 7. ágúst 1982 eftir
sjö ára samferð. Hlynur, annað
barnið okkar, fæddist 31. maí árið
1984 og sama ár fluttum við í
Blönduhlíð 19 með stuttu stoppi í
Breiðagerði 19 hjá henni móður
minni, Siggu. Það var frekar
merkilegt fannst henni að öll þessi
hús voru númeruð tölunni 19. Árið
1998 fluttumst við búferlum til
BNA, vorum lengst af í Denver í
Colorado. Þar fékk hún að kynn-
ast Costco sem hún hafði mjög
gaman af. Finna var alltaf hörku-
dugleg til vinnu og vel liðin af
flestum. Hugmyndarík og
skemmtileg manneskja varstu og
mikill félagi og góður vinur. Mikið
tómarúm hefur myndast eftir frá-
hvarf þitt og þín verður sárt sakn-
að.
Megir þú ganga á Guðs vegum.
Þinn eiginmaður,
Kjartan.
Ég er þakklátur, sorgmæddur
og ringlaður allt í senn þegar ég
hugsa um þig á þessum tíma,
elsku mamma. Ég fékk þau fríð-
indi og heiður að eiga þig sem
móður í 36 ár, þótt ég hefði viljað
eiga þau fleiri þá er ég þakklátur
fyrir þann tíma og lífið sem þú
gafst mér. Ég sit hér, velti því fyr-
ir mér um hvað ég eigi að skrifa og
margar minningar berast til mín
sem hlýja mér innan frá og ég
gæti skrifað þær margar. Minn-
ingar frá æskuslóðum þínum sem
þú talaðir alltaf um af svo miklum
hlýhug. Samheldnin, fjölskyldan
og tíminn sem þú áttir í Halakoti,
með langömmu Þuríði og föður-
systkinum þínum, Ragga, Magga
og Kötu, talaðir þú alltaf um af svo
mikilli ást. Þú varst fjölskyldu og
vinum hjálpsöm og ráðagóð. Þú
varst sú sem tókst upp símann og
reddaðir málunum, það var ein-
faldlega þinn karakter. Heiðar-
lega, samviskusama og góða
manneskju hafðir þú að geyma.
Ættfróð varstu og sýndir ættfræði
mikla ástríðu. Hamingjan sem það
færði þér að fletta í gegnum gaml-
ar myndir, lesa niðjatöl, gamlar
greinar um fólk, tala við annað
ættfrótt fólk, fara í ferðalög og
kynnast fólki og hefðum var þér
hugleikið.
Ein besta gjöfin sem ég gat
fært þér, árið 2006, eftir áratuga
bið, var lítil prinsessa, ömmubarn-
ið þitt hún Natalía. Það var eins og
spenna hefði losnað og flóðgátt af
ást, tjullpilsum, kjólum, og skóm
hellist yfir hana, og okkur. Litla
prinsessan og prinsinn, hann Pét-
ur Ragnar, voru elskuð og dekruð
af þér. Glöð og þakklát erum við
fyrir þann tíma með þér og þær
minningar sem við eigum með þér
og börnunum.
Minningar um æsku mína eru
yfirfullar af ást og áhyggjuleysi,
þú kenndir mér margt um lífið og
gerðir mig að sjálfstæðum ein-
staklingi sem ég er ævinlega
þakklátur fyrir. Tómarúmið sem
varð til í hjarta mínu við fráhvarf
þitt, elsku mamma, er stórt. En
mun fyllast hægt og rólega af
gömlum, góðum minningum sem
og nýjum ævintýrum morgun-
dagsins. Nú ertu frjáls, á betri
stað, með fólkinu þínu.
Ég bið Guð að gæta mín,
góða anda að hugga mig.
Sama ósk er eins til þín:
Almættið það sjái um þig.
(Leifur Eiríksson)
Takk fyrir allt ástkæra móðir.
Þinn sonur,
Hlynur Örn.
Nú er hún mamma farin of
snemma. Náinn var ég mömmu
minni og skilur hún eftir stórt
skarð í mínu lífi sem erfitt verður
að fylla. Mamma var heiðarleg,
samviskusöm, traust og góð kona
og móðir.
Það sem kemur upp í hugann
eru ótalmargar góðar minningar
um það sem við gerðum saman.
Margar ferðirnar fórum við suður
með sjó í heimsókn til Ragga
frænda og Snotru sem voru henni
og mér kær. Ferðalögin til Evr-
ópu og Bandaríkjanna fannst
henni skemmtileg og einkum var
hún hrifin af Boston og New York.
Ég á eftir að sakna göngutúranna
sem við tókum oft saman. Kær er
minningin í hjarta mínu þegar við
tókum göngutúr í Alicante, í henn-
ar síðustu utanlandsferð, þar sem
við löbbuðum síðla kvölds á marm-
aralagðri göngugötu meðfram
sjónum og töluðum saman. Allar
þær góðu minningarnar sem ég á
með henni í sumarbústaðnum í
Kjós þar sem við áttum margar
góðar stundir saman. Hún var
móðir sem stóð ávallt mér við hlið
og studdi mig. Með hryggð og
söknuð kveð ég þig. Með ást og
gleði ég minnist þín.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Þinn sonur,
Ragnar Már.
Elsku Guðfinna mín. Ég trúi
ekki að þú sért farin. Þetta er allt
svo óraunverulegt og gerðist svo
hratt þó að þú hafir strítt við veik-
indi lengi. Eina stundina vorum
við að borða ís með þér og hlæja á
afmælinu hans Hlyns og þá næstu
ertu bara farin. Ég hef þekkt þig
meira en hálfa ævina mína síðan
ég kynntist Hlyni þínum, aðeins
17 ára gömul. Þú hefur alltaf verið
svo stór hluti af lífi okkar. Þetta er
mikill missir og þú skilur eftir þig
stórt tóm.
Við gátum alltaf talað endalaust
um hluti sem strákarnir skildu
ekki alltaf og þá sérstaklega um
make-up og fína stelpulega hluti.
Þú varst alltaf svo glæsileg og fal-
leg. Alltaf gaman þegar þú kíktir á
mig í förðun og sýndir mér fullt af
vörum sem ég þekkti ekki og hafð-
ir svo mikinn áhuga á því sem ég
var að gera, gátum endalaust pælt
í þessum hlutum saman og þú
trúðir svo á hvað ég var að gera.
Þú hefur alltaf verið í hálfgerðu
strákaveldi þangað til ég kom inn í
líf þitt og þú fékkst elsku Natalíu
þína. Vá hvað þú varst hamingju-
söm að fá loksins stelpuna þína,
hana Natalíu, til að dekra við,
kaupa kjóla á og dúllast með. Ég
hafði varla tíma til að setja hana í
alla þessa fallegu kjóla og föt sem
þú keyptir á hana. Natalía var svo
sannarlega dekruð af ömmu sinni
og naut sín svo vel á kaffihúsi í fín-
um fötum með ömmu sinni að
spjalla um lífið og tilveruna, litla
konan. Ég er svo þakklát fyrir að
hún eigi þessar fallegu minningar
um þig og hún man allt eins og þú
og getur sagt bróðir sínum sögur
um þig og ykkar ævintýri saman,
skemmtilegu stundirnar í Hala-
koti hjá Ragga frænda, fara í Perl-
una, leikhús o.fl.
Svo kom Pétur Ragnar aðeins
seinna og auðvitað dekraðir þú við
hann líka og það sem skipti þig
miklu máli áður en þú kvaddir
þennan heim var að hann fengi
hjól frá ömmu sinni og þér tókst
að gera það eins og þér var lagið.
Ég er svo þakklát fyrir þessa
ómetanlegu tíma sem ég átti með
þér og að þú ólst þennan magnaða
dreng upp sem ég get kallað
manninn minn, hann elsku Hlyn
þinn. Þín verður sárt saknað og
munum við aldrei aldrei gleyma
þér. Ég man allt sem þú sagðir
mér og ég lofa að passa upp á
strákana þína.
Ég set með lagið sem þú söngst
alltaf fyrir Natalíu áður en hún fór
að sofa þegar hún gisti hjá ykkur
Kjartani.
Þú ert mitt sólskin mitt ljósið bjarta
Veitir mér gleði sérhvern dag
Geislarnir ylja mér inn að hjarta
og þaðan syng ég þetta lag
(Höf. óþekktur)
Tara Pétursdóttir,
Natalía Marín B. Hlynsdóttir
og Pétur Ragnar B. Hlynsson.
Elskuleg vinkona okkar er fall-
in frá langt fyrir aldur fram.
Finnu, eins og við kölluðum hana,
kynntumst við haustið 1974 þegar
við settumst á skólabekk í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur. Finna
og Anne May mættu saman en
þær hafa verið vinkonur frá sjö
ára aldri og ólust upp á Vatns-
leysuströnd. Við hinar þrjár kom-
um úr Hafnarfirði og bjuggum við
allar fimm saman á Hávallagötu
17 en ekki á vistinni í skólanum.
Þar sem við bjuggum svo náið
saman myndaðist mjög góður og
traustur vinskapur á milli okkar.
Fyrir utan frábært nám í skólan-
um var ýmislegt brallað, sem
dæmi: spáð í spil, stolist í sjoppuna
eftir kvöldsögu, spiluð tónlist og
spjallað fram á nótt. Það var bara
einu sinni í viku sem við máttum
fara út að kvöldi til og var það á
fimmtudagskvöldum. Við fundum
fljótlega út að Klúbburinn var op-
inn þessi kvöld og urðum við þar
af leiðandi fastagestir. Þar var
dansað, bömpað og tjúttað til kl.
23:15 en þá var tekinn leigubíll
heim svo við yrðum ekki læstar úti
því við vorum með umsjónarkonu
sem passaði að allir virtu reglurn-
ar. Á þessum tíma vorum við farn-
ar að spá í hitt kynið og ungum
manni leist vel á eina okkar, kom
þá í ljós að hann bjó í kjallaranum
og fengum við fljótt boð í partí.
Það var þar sem Finna okkar hitti
Kjartan sem varð síðar eiginmað-
ur hennar.
Minningarnar frá þessum tíma
eru óþrjótandi og höfum við haldið
vinskapnum í gegnum öll þessi ár.
Við höfum átt gott trúnaðarsam-
band og getað leitað hver til ann-
arrar í gegnum súrt og sætt. Alltaf
var gaman og mikið hlegið þegar
við hittumst. Ógleymanlegar eru
þær stundir sem við áttum saman
á ferðalögum, sumarbústaðaferð-
um, á tónleikum og úti að borða.
Við erum þakklátar fyrir að hafa
fengið að vera með vinkonu okkar
þessa síðustu daga.
Elsku Kjartan, Ragnar Már,
Hlynur Örn og fjölskylda, við vott-
um ykkur okkar innilegustu sam-
úð vegna fráfalls elsku Finnu.
Minningin lifir í hjörtum okkar
um einstaka vinkonu.
Vinir að eilífu,
Anne May, Birna,
Hafdís og Lára.
Guðfinna Elínborg
Guðmundsdóttir
Elsku mamma mín, tengdamamma, amma,
langamma og sálufélagi,
LÁRA RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR
Lóló,
Fellsási 1, Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
föstudaginn 3. júlí klukkan 13.
Streymi (bein útsending) verður á slóðinni www.sonik.is/lolo
og FM útsending við kirkjuna á tíðni 106,1
Sigurður Jón Grímsson Rósa Sveinsdóttir
Sólveig Lára Sigurðardóttir Friðrik Arnar Helgason
Grímur Snæland Sigurðsson
Elínborg Rós Sigurðardóttir
Benjamín Thor og Karlotta Rós Friðriksbörn
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR
húsfreyja,
Bjargi, Eyjafjarðarsveit,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð 23. júní.
Hún verður jarðsungin frá Munkaþverárkirkju fimmtudaginn
2. júlí klukkan 14.
Ævar Ragnarsson Ragna Pálsdóttir
Katrín Ragnarsdóttir
Bolli Ragnarsson Laugheiður Gunnarsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Ástkær eiginkona mín og móðir mín,
VALGERÐUR MARINÓSDÓTTIR
hagfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
þriðjudaginn 23. júní.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðmundur Sigurðsson
Guðbjörg Erla Guðmundsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
JÓN KARL ÚLFARSSON
útvegsbóndi frá Eyri
í Fáskrúðsfirði,
sem lést miðvikudaginn 24. júní á
Dvalarheimilinu Fossahlíð á Seyðisfirði, verður jarðsunginn frá
Fáskrúðsfjarðarkirkju föstudaginn 3. júlí klukkan 14.
Jarðsett verður í Kolfreyjustaðarkirkjugarði.
Fjölskyldan
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar