Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 5
5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
+ Hlynur Hallsson
Safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Ljóst er að heimsfaraldur kórónu-
veiru mun setja mark sitt á fjölda
samkoma í sumar. Nú um helgina
fer nokkur fjöldi hátíða fram víðs-
vegar um landið. Verða framan-
greindar samkomur með talsvert
breyttu sniðu vegna áhrifa og út-
breiðslu veirunnar.
Á Akureyri fer þrítugasta og
fjórða N1 mótið í knattspyrnu
fram. Mótið hófst í hádeginu í gær
og mun standa til laugardags. Mót-
ið er einn vinsælasti íþrótta-
viðburður landsins þar sem rétt
tæplega tvö þúsund ungir drengir
leggja land undir fót og etja kappi í
knattspyrnu. Samtals eru 212 lið
skráð til leiks en aldrei hafa fleiri
lið tekið þátt í mótinu. Að sögn
Sævars Péturssonar, framkvæmda-
stjóra KA, hefur skipulagning
mótsins litast mjög af ástandinu í
þjóðfélaginu. Þannig hafa verið
gerðar miklar ráðstafanir til að
draga úr líkum á smiti. „Við erum
búin að setja upp girðingar á svæð-
inu þannig að því er skipt upp í
fjórar einingar. Við erum síðan með
gæslu og reynum að takmarka
samrými í litlum rýmum. Þá verða
sprittstöðvar út um allt og dómarar
munu notast við einnota flautur,“
segir Sævar.
Undanfarin misseri hefur smitum
hér á landi fjölgað nokkuð og svo
virðist sem enn sé lítillegur kraftur
í veirunni. Sævar segir að fregnir
síðustu daga hafi reynst holl
áminning. „Þetta setti okkur upp á
tærnar, ég get alveg verið heiðar-
legur með það. Við erum að gera
miklar ráðstafanir til að tryggja að
dregið sé úr líkum á smiti eins mik-
ið og mögulegt er,“ segir Sævar.
Þétt dagskrá í Búðardal
Nú um helgina fara sömuleiðis
fram Írskir dagar á Akranesi.
Verður hátíðin með breyttu sniði og
eilítið minni í sniðum en undanfarin
ár. Þar hafa fjölmennustu viðburð-
irnir verið felldir niður auk þess
sem einstaklingar eru hvattir til að
huga að sóttvörnum. Þó verður ým-
islegt frumlegt í boði fyrir gesti
hátíðarinnar, en til að mynda verð-
ur götugrill og verðlaun fyrir mest
skreyttu götuna.
Svipað er uppi á teningnum á
Bæjarhátíðinni í Búðardal þar sem
þétt dagskrá er um helgina. Hátíð-
in hefst á föstudag og stendur fram
til seinni parts sunnudags. Af-
þreying verður í boði fyrir eldri
kynslóðina auk þess sem skemmti-
atriði standa krökkum til boða.
Goslokahátíð
með breyttu sniði
Í Vestmannaeyjum fer Gosloka-
hátíðin fram með breyttu sniði.
Hefur goslokanefnd unnið hörðum
höndum að því að gera hátíðina að
veruleika með hliðsjón af núverandi
fjöldatakmörkunum. Erna
Georgsdóttir, æskulýðs- og íþrótta-
fulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ, seg-
ir að búið sé að gera ráðstafanir.
Hátíðin hefst í dag og stendur fram
til sunnudags.
Til að draga úr líkum á smiti
hafa stærri viðburðir verið blásnir
af og þess í stað verður fjöldi minni
viðburða á dagskrá. „Við erum búin
að gera ráðstafanir. Á dagskránni
eru margir litlir viðburðir sem
rúmast innan þeirra fjöldatakmark-
ana sem eru í gildi,“ segir Erna.
Hátíðir haldnar með breyttu sniði
Skipta upp svæðum til að draga úr líkum á smiti Stórir viðburðir blásnir af Miklar ráðstafanir
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Mót Hátíðir og knattspyrnumót verða með breyttu sniði í sumar.