Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 16

Morgunblaðið - 02.07.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með áralanga reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151tímapantanir Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Allt frá því að áhrif kórónuveirufar- aldursins á alþjóðlegt ferðafrelsi komu fram af fullum þunga hefur verið tómlegt um að litast í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, eða Leifsstöð. Mannlausir gangar, tóm töskubelti og auð bílastæði er sú raunalega sýn sem tók við af annars iðandi flug- starfsemi. Tímamót urðu sem kunnugt er 15. júní sl. þegar kerfisbundin skimun hófst við landamærin, sem opnaði raunhæfa möguleika á áætlunarflugi til og frá landinu. Nýtt líf hefur færst í Leifsstöð. Flugvélar og strokpinnar hafa tekið á loft. Á tímabilinu 15. til 30. júní voru rúmlega 14 þúsund farþegar skimað- ir í Leifsstöð, minnst um 700 og mest um 1.400 á dag. Enn er því svigrúm fyrir því 2.000 farþega marki sem nefnt hefur verið. Skimun gengur vel Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis- ins annast skimun í Leifsstöð. Tekið er á móti farþegum í 10 básum og tekur skimunin sjálf ekki nema 1-2 mínútur að skráningu lokinni, en um 30 starfsmenn koma að ferlinu þegar mest lætur. Í samtali við Jórlaugu Heimisdóttur verkefnisstjóra kemur fram að verkefnið hafi gengið vel og að farþegar „taki þessu ótrúlega vel“. Mikil áhersla er lögð á forskráningu sem skilar sér í því að „fólk veit hverju það á von á“ við komuna til landsins. Nær engin brögð eru að því að farþegar afþakki skimun og kjósi sóttkví þess í stað. Milill samdráttur í flugi Þrátt fyrir góðan gang skimana sýna tölur að umferð um Keflavíkur- flugvöll er ekki svipur hjá sjón miðað við venjulegt árferði. Á heimasíðu Isavia eru skráðar 346 komur og brottfarir áætlunarflugs um völlinn í júní, en á sama tíma í fyrra voru skráðar 8.353 hreyfingar. Upplýsing- ar um farþegafjölda liggja enn ekki fyrir, en í júní í fyrra er skráður far- þegafjöldi um Leifsstöð 787.752. Borið saman við fjölda skimana er ljóst að samdráttur í millilandaflugi er verulegur. Sama er uppi á teningnum þegar kemur að fjölda flugfélaga sem hing- að sækja. Í fyrrasumar hafði 21 flug- félag viðkomu í Keflavík í áætlunar- flugi, en það sem af er sumri hafa sjö félög haldið uppi þjónustu. Icelandair á þar stærstan hlut með 58% ferða og á eftir fylgir Wizzair með 23%. Önnur félög eru Atlantic Airways, Air Greenland, Czech Airlines, SAS og Transavia. Tengingum við önnur lönd og borgir hefur einnig fækkað, en flogið hefur verið milli Keflavíkur og 20 evrópskra áfangastaða í júní. Flug vestur um haf liggur að mestu niðri, utan þess að Icelandair hefur haldið uppi áætlun til Boston á austurströnd Bandaríkjanna. Aukið líf færist yfir Leifsstöð  Góður gangur skimana í Leifsstöð  Í júní voru um 14 þúsund farþegar skimaðir  Farþegum til landsins fer fjölgandi  Mikill samdráttur frá fyrra ári  Icelandair með 58% ferða og Wizzair 23% Fjöldi skimana í Keflavík frá 15. júní 2020 15 12 9 6 3 0 1.500 1.200 900 600 300 0 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29 30. 849 1.022 1.310 1.416 Sk im an ir Lendingar Fjöldi lendinga á Keflavíkurflugvelli Fjöldi skimana 8 7 8 7 10 10 12 10 8 9 9 11 10 15 11 9 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leifsstöð Glaðlyndir leigubílstjórar bíða eftir farþegum sem koma nú til landsins í auknum mæli eftir opnun landamæranna um miðjan júní. Alþingi hefur samþykkt tvö frum- vörp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, um einföldun regluverks. Með lögunum voru alls 33 lagabálk- ar felldir brott í heild sinni, fimm stjórnsýslunefndir lagðar niður og stjórnsýsla og regluverk á mál- efnasviðum ráðherra einfölduð töluvert. Frumvörpin eru afrakstur sam- ráðs sem haft var við helstu hags- munaaðila og stofnanir ráðuneyt- isins. Um er að ræða fjölmargar breytingar á núgildandi lögum á sviði matvæla, landbúnaðar, sjávar- útvegs og fiskeldis. Fyrr í vetur felldi ráðherra brott 1.242 reglugerðir og tvo lagabálka auk þess sem regluverk sem gildir um matvælakeðjuna var einfaldað, sem var liður í fyrsta áfanga að- gerðaráætlunarinnar. Verkefnið er unnið í samræmi við stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar. Fellir burtu 33 laga- bálka í heild sinni Í kjölfar aukinnar aðsóknar hafa Stígamót sett á fót biðlista í fyrsta skipti í 30 ára sögu samtakanna og er nú biðtími eftir viðtali um tveir mánuðir. „Við erum ekki að skrá fleira fólk núna í viðtöl, það fara bara all- ir á biðlista,“ segir Steinunn Gyðu- Guðjónsdóttir, verkefnastýra hjá Stígamótum. „Þetta er farið að hafa hamlandi áhrif á þjónustuna sem við bjóðum upp á. Við höfum mætt þessari auknu aðsókn með fjáröflun meðal almennings og reynt að bæta við stöðugildum en við þurfum aðstoð frá ríkinu og framlag okkar þaðan hefur ekki hækkað síðan 2013,“ segir hún. Búast megi við aukinni aðsókn til samtakanna vegna kórónuveir- unnar. „Oft getur það tekið tíma fyrir fólk að leita sér hjálpar. Einn hluti af heimilisofbeldi er kynferðisof- beldi gegn börnum á heimilum, þar sem foreldrar eða systkini beita börn kynferðisofbeldi. Það eru all- ar líkur á að þetta hafi aukist á tímum faraldursins,“ segir hún. 52 karlar leituðu til Stígamóta Ekki liggur enn fyrir hve margir nýir brotaþolar hafa leitað til Stígamóta árið 2020 en í fyrra voru þeir 411 talsins og 2018 voru þeir 418. Fjöldinn var mestur árið 2017 þegar 484 nýir brotaþolar leituðu til samtakanna. Kemur þetta fram í ársskýrslu Stígamóta. Alls leituðu 52 karlar til Stíga- móta árið 2019, 331 kona og 2 af öðru kyni. 53,3% gerendanna eru karlmenn á aldrinum 18-29 ára sem teljast til vina eða kunningja þolenda. „Stærsti gerendahópurinn sem er á bak við okkar fólk er vinir, ungir karlar, sem nauðga vinkon- um sínum. Næststærsti gerenda- hópurinn er þessir fjölskyldumeð- limir sem beita ofbeldi inni á heimilinu,“ segir hún. Flestir leituðu til Stígamóta árið 2019 vegna nauðgunar (33,4%), næstflestir vegna kynferðislegrar áreitni (21,7%) og 16,2% leituðu að- stoðar vegna sifjaspells. Aðrar ástæður voru nauðgunartilraunir, klám, stafrænt ofbeldi, vændi og annað. Leita aðstoðar 18 árum síðar Áfengisneysla er helsta athöfnin sem brotaþolar leita til í kjölfar kynferðisofbeldis, en samkvæmt skýrslu Stígamóta leituðu 37,8% til þess. Næstflestir (22,8%) leituðu í auknum mæli í mat og leituðu 22,3% í vímuefni eða lyf. Þolendur kynferðisofbeldis á heimilum leita sér aðstoðar að meðaltali 18 árum eftir að brotin eru framin. Alls leit- uðu 885 manns til Stígamóta á árinu 2019. Flestir þolendur (35,9%) urðu fyrir ofbeldi á aldrinum 11-17 ára og tilkynntu ofbeldið á aldrinum 18-29 ára, en næstflestir (26%) urðu fyrir kynferðisofbeldi á aldr- inum 5-10 ára. Þegar litið er til tengsla brota- þola við ofbeldismenn sem beittu þá sifjaspellum eru 23,5% gerenda feður eða stjúpfeður, og 17,6% bræður eða stjúpbræður. „Það sorglega við þetta er hvað fólk er að koma ótrúlega mörgum árum seinna. Þau eru að verða fyr- ir þessu ofbeldi þarna langflest á aldrinum 5-15 ára. Við myndum vilja ná þeim þá og geta veitt þeim aðstoð áður en þau sitja uppi með þessar afleiðingar og nota fíkniefni eða áfengi til að deyfa sig og sjálfs- skaði kemur í kjölfarið,“ segir Steinunn. Biðlisti í fyrsta sinn hjá Stígamótum  Um tveggja mánaða bið er eftir viðtali hjá Stígamótum  411 nýir árið 2019 Fjöldi nýrra þolenda kynferðisofbeldis 2014-2019 500 400 300 200 100 0 2014 2015 2016 2017 2018 2019 306 330 372 484 418 411

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.